Kjarnar - 01.10.1953, Blaðsíða 50

Kjarnar - 01.10.1953, Blaðsíða 50
Eða er ekki svo? Þeir eru asnar og hafa ekki hugmynd um, að skipið losnar án hjálpar. Við fáum björgunarlaun“. Bill glápti á Chimpy. í fyrsta skifti í h. u. b. sólarhring brosti hann og sagði: „Gamli sjóræn- ingi“. Það virtist svo, sem Chimpy hefði rétt að mæla. Vindurinn snéri sér, sjórinn hækkaði og brimið minnkaði. Þá fór reyk- urinn aftur að velta út úr reyk- háfnum á „Northstar“. Bill hafði hraðan á. Hann renndi skipi sínu mjög nærri „Northstar", greip kallarann og sagði: „Viljið þér fá trossu? Nú tekst það, ef til vill, að losa skipið“. Sir John kom aftur í augsýn á stjórnpalli. Hann hafði séð eftir því um nóttina, að hafa ekki þegið aðstoð Bills. Hann var orðinn hræddur, bæði um skip sitt og farþega, og skildi, hve heimskulegt það var, að hafa ekki kallað á hjálp. Nú létti honum, þar sem hjálpin var boðin. „Jæja“, hrópaði hann. „Kom- ið þá með trossuna þegar í stað“. Tveim mínútum síðar var bú- ið að koma trossunni í „North- star“ og festa hana í báðum skipunum. Bill setti „Sumarblæinn“ á 48 fulla ferð. Samtímis unnu vélar „Northstar“ af öllu afli. Og að fimmtán mínútum liðnum losn- aði skipið af hæðahryggnum. „Sumarblærinn“ dró inn trossuna, og er „Northstar“ fór fram hjá björgunarskipinu hljómaði rödd sir John úr há- talaranum: „Ohoj. Ég þakka ykkur fyrir góðan vilja“. „Góðan vilja“, endurtók Bill reiður í hátalara „Sumarblæs- ins“: „Við losuðum „Northstar“. Okkur ber að fá björgunar- laun“. „Kemur ekki til mála“, sagði sir John þrumandi röddu. „Þið gerðuð ekki svo mikið sem teygja trossuna11. „Það getið þér sannað við sjó- prófið eða réttarhöldin". Við þessu fékk Bill ekki svar. Hann mælti: „Nei, gamli auðmaður- inn losnar ekki við að greiða okkur björgunarlaun11. Ef Bill hefði getað séð fram- an í sir John, mundi hann hafa orðið forviða. — Sá gamli brosti íbygginn. Hann hafði verið óttasleginn. En er hættan var hjá liðin, létti honum svo í skapi, að hann hefði getað faðmað allan heiminn, einkum Bill Reed skipstjóra. Þetta at- vik hafði fært sönnur á það, að það var töggur í Bill. Sir John opnaði hátalarann og kallaði: Framh. á bls. 64. KJARNAR — Nr. 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Kjarnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.