Kjarnar - 01.10.1953, Page 30

Kjarnar - 01.10.1953, Page 30
svörtu silkikápu. Viðhafnar- samkoman er því almennt nefnd „to take silk“ (taka á sig silkið). Þessi núverandi „Queens Counsil“ kvenlögfræðingur, er að flestu leyti sérstæð kona. Hún er þrjátíu og átta ára, þessi Rose Heilbron. Og um hana hafa myndast margar sögur. Hún er mjög fríð, ungleg og óvenjulega. aðlaðandi. Um hana er talað í dálkum blaðanna jafnhliða hertogaynjum, tign- atsa fólks hirðarinnar, og mestu kvikmyndadísunum. Eigi að síð- ur er hún uppvaxin í jarðvegi, sem ekki var líklegur til þess að framleiða þvílíkan kjörgrip. Frú Rose Heilbron er fædd í Liverpool, af fátækum Gyð- inga smáborgurum, sem ráku matsöluhús fyrir innflytjendur og hafnarverkamenn. Að Rose Heilbron komst svo fljótt áfram var fyrst og fremst móður henni að þakka, er snemma veitti því athygli, hve dóttirin var óvenju gáfuð, og lét sér ekki annt um annað en sjá um að Rose næði hárri menntun. Þegar móðirin dó, 1938, brosti hún. Dóttirin, sem þá var tutt- ugu og fjögurra ára hafði þá fyrir skömmu verið „Called to the bar“j eða í hið fræga félag verjenda. Hún var afburða vel að sér í réttarfarssögu Englend- inga. Hún varð doktur juris, er hún var aðeins tvítug, og mynd- ir komu af henni í blöðunum með titlinum „Bachelor of law“. Skólabróðir hennar skrifaði í því sambandi: „Hún lifði og hrærðist einungis við vinnu. Ég man ekki til þess að ég, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, fengi hana nokkru sinni á dansleik með mér. Tvisvar fékk ég hana til þess að drekka með mér te. Það var allt og sumt. Og pró- fessor hennar við háskólann sagði: „Hún var ágætlega gáfuð. En mig hafði aldrei dreymt um, að hún yrði ríkisins fyrsta kvenlega „Queens Counsil“. En það varð hún árið 1949. Það kvað vera merkileg sjón að sjá hina unglegu dömu með hvíta hárkollu og í svartri silki- kápu meðal félaga sinna, er gætu verið feður hennar og afar. Dugnaður hennar er svo mikill, að hún fær skjólstæð- inga sína sýknaða umvörpum. En svo var éitt sinn komizt að orði um hinn mikla norska málafærslumann, Hauglund Eitt af málum Rose Heilbron var gegn lögmanni, sem ákærð- ur var vegna þess, að hafa myrt unnustu sína. Annað frægt morðmál stóð yfir í þrettán daga í Liverpool. Rose Heilbron var stanslaust í réttinum í tutt- ugu klukkustundir og varnar- ræða hennar var h. u. b. 150.000 28 KJARNAR — Nr. 30

x

Kjarnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.