Kjarnar - 01.10.1953, Blaðsíða 40
mikið saman. Menn urðu varir
við þau hingað og þangað sama
daginn. Að lokum urðu menn
ásáttir um það, að hinn alkunni
forstjóri tók þessa ungu stúlku
fram yfir allar aðrar konur.
Kjellás forstjóri veitti því at-
hygli, er hann gekk um salinn,
að menn hvísluðust á, réttu upp
höfuðin og störðu á hann. Það
var ekki í fyrsta sinn, sem hann
daðraði við unga stúlku á há-
fjallahóteli. En, ef til vill í síð-
asta sinn, hugsaði hann og
reyndi til þess að ganga keikur,
þótt hann hefði þrautir í bak-
inu.
Menn höfðu tálað margt á
hótelinu þennan dag, og hafði
Helen heyrt ýmislegt af því.
Meðal annars að Kjellás for-
stjóri ætti tvö uppkomin börn.
Er hún hitti hann, drap hún á
þetta mál. Hún mælti:
„Hugsa sér, þú átt tvö upp-
komin börn og hefir ekki nefnt
það með einu orði“.
„Nei“, sagði hann önugur.
„Það er engin ástæða til þess,
að tala mikið um þau“. Hann
var ekkert hrifinn af þeim,
Gitta og Tone. Þau höfðu aldrei
skilið hann, og hann ekki þau.
Eigi að síður skiftu þau sér af
því, hvað hann gerði, og hædd-
ust að honum fyrir kvennahylli
hans og unglega útlit. Þau
stríddu honum. Hann þoldi
ekki að hlusta á samtal þeirra
um hann, að honum viðstödd-
um. Þau voru ekki vingjarnleg
við föður sinn né nærgætin og
hugulsöm. Nei, honum geðjað-
ist ekki vel að börnum sínum.
Hann leit á Binken. Hún var
indæl. En það var leiðinlegt,
hve erfitt var að vera með
henni. Hann andvarpaði og hélt
áfram að borða.
„Ég get kennt þér samba í
kvöld“, sagði Binken með ákafa.
„Inni í knattborðsherberginu
er aldrei nokkur sál“.
„Samba? í knattborðherberg-
inu? Hann vildi gjarnan kenna
henni annan dans. Hann játaði
því, að fara með henni inn í
knattborðsherbergið.
Hann tók utan um hina fjör-
ugu og lífsglöðu Binken og
þrýsti henni að brjósti sér, og
tautaði lágt nokkrum friðandi
orðum í eyra hennar.
„Vertu ekki að þessu“, sagði
Binken. „Þú gerir mig að
klessu!“
í sömu svipan voru dyrnar
opnaðar, rödd hvíslaði: „Fyrir-
gefið“. Svo var dyrunum lokað
gætilega.
Forstjórinn var nú orðinn svo
æstur, að honum var sama, þótt
allt færi á annan endann í
gistihúsinu. Hann þráði að
kyssa Binken ofsalega, og það
gerði hann, þar til dyrnar voru
38
KJARNAR — Nr. 30