Kjarnar - 01.10.1953, Síða 43

Kjarnar - 01.10.1953, Síða 43
Frú Churchill TZ'ONA Winston Churchill er gáfuð, fríð og glæsileg kona. Churchill hefir oft í vinahópi vottað henni ást sína og virð- ingu með hrífandi orðum. En opinberlega flíkar hann ekki ágæti konu sinnar. Hún er mjög hreinlynd og laus við allt und- irferli. Þeir, sem heimsótt hafa Churchill í Downing Street 10, bæði á meðan styrjöldin stóð yfir, og á öðrum tímum, hafa sífellt heyrt forsætisráðherrann hrópa: „Clementine!“ Churchill hrópar og hefir hrópað á hina ómissandi konu sína. Það er ekki aðeins nú hin síðari ár, er Churchill gerist gamall og stirður, að hann vill hafa konuna sem oftast við hlið sér. Clementine hefir verið hon- um ómissandi frá því er þau giftust, árið 1908. Hann var þá þegar orðinn kunnur rithöf- undur og stjórnmálamaður, er spáð var miklum frama á þess- ari braut. Á flestum ljósmynd- um er Clementine Churchill hlæjandi, svo tennurnar koma í Ijós. Og minnir það á myndir af Ameríkönum. Fyrr á árum hélt Clementine ræður á fram- boðsfundum með manni sínum og Randolph, syni þeirra. Er það allra manna mál, að frú Churchill hafi staðið sig með ágætum á fundunum. Clementine lætur ekki mikið á sér bera, en mun þó hafa tölu- verð áhrif. Hún ber mikla per- sónu. Hún er fríð sýnum, sem fyrr er sagt, vel klædd en ekki áberandi skrautleg. Hún hefir í eitt skifti fyrir öll valið sér það hlutskifti, að vera félagi Churchills, húsfreyja og ráðunautur. Hún er mat- reiðslustjóri og tekur á móti gestum og vinum Churchill, er góðgerðir fá. Clementine lítur eftir klæðnaði manns síns og ræður miklu um fatakaup hans. Hún hreinsar málarapensla hans, hnýtir bindið á hann. Hún ann mjög barnabörnum sínum og gætir þeirra oft. Það mætti ímynda sér, sam- 41 KJARNAR — Nr. 30

x

Kjarnar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.