Kjarnar - 01.10.1953, Síða 53

Kjarnar - 01.10.1953, Síða 53
deildir, er voru vel faldar bak við vígstöðvar Ameríkana. Er hér var komið sögu, var þess stutt að bíða, að hafist skyldi handa. Varúlfarnir voru vopnaðir öllum tegundum „handvopna“, og höfðu miklar birgðir af sprengiefnum og mat- vælum. Joe hafði yfirgefið fé- lagið 24. apríl — eða' fyrir fjór- um dögum. Þvílík frásögn, væri hún sönn! „Láttu ekki undan síga, hvað sem það kostar“. Við fórum þegar í stað til aðal herstöðva okkar, Schwarz- enfeld. Ég fór á fund John H. Claybrook ofursta, og sagði honum, hvað fanginn hafði sag't okkur. Þetta var fyrsta raun- verulega sönnun þess, að félag varúlfa væri ekki hugarburður einn. „Trúið þér þessu, Melchior?“ spurði ofurstinn. „Já, sir“, svaraði ég. „Jæja. Láttu ekki undan síga, hvað sem það kostar“. Ofurst- inn hringdi til herflokka okkar, sem voru á svæði því, er aðal- bækistöð varúlfanna var sögð vera. Var herflokknum skipað að veita okkur aðstoð við vænt- anlega leit að varúlfunum. Alla nóttina og meiri hluta næsta dags, fram til hádegis, spurði ég Joe spjörunum úr. Sagði hann okkur, að flokkur sá, er hann taldist til, hefðist við á litlu, skógivöxnu svæði milli bæjanna Schönsee og Es- larn. Höfuðstöðvar okkar voru nú fluttar til Viechtach. Síðari hluta dagsins ókum við til aðalstöðva 97. herdeildar fót- gönguliðsins. í umdæmi þeirra voru varúlfarnir álitnir vera. Ég samdi um það, að tvær her- sveitir fótgönguliðsins (í hverri hersveit eru um 200 manns) skyldu rannsaka hið ákveðna skógarþykkni, og leggja af stað klukkan hálf sex, 30. apríl. Hver þumlungur skógarins rannsakaður nákvœmlega. Það var mikið sólskin og þurrviðri, er við hófum rann- sóknina. Við höfðum skipað herdeildum hvora gegnt annarri í hálfhring. Herliðið skyldi ganga um allan skóginn, mæt- ast og fara hverjir fram hjá öðr- um. A þennan hátt var komið í veg fyrir að nokkur sá, er í skóginum leyndist, slyppi. Liðs- mennirnir fengu fyrirskipun um það, að aðgæta hvern þuml- ung skógarins, og athuga, hvort nokkuð merki um veru óvin- anna væri þarna að sjá. Bud og ég gengum þá að húsi, er var þarna í grendinni. Ætluðum við KJARNAR — Nr. 30 51

x

Kjarnar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.