Kjarnar - 01.10.1953, Page 61

Kjarnar - 01.10.1953, Page 61
að hinn ákærði gæti eins verið hinn rétti Peter Linley, og maður sá, er hún daginn áður hafði lagt eið upp á, að væri ferðafélagi sinn á skipinu frá Höfðaborg til Englands. Peter varð viss um að Mary hefði talað við verjandann í máli hans, er hann var skyndilega spurður um það, hvort hann hefði gleymt því, hvað hann ætti að hugsa um í hvert sinn, er hann kveikti í vindlingi með silfurkveikjar- anum. Peter leit á Mary. Hún spennti greipar með eftirvænt- ingu. Hann braut heilann til hins ítrasta, til þess að muna hvað hún, hlæjandi og áhyggjulaus, hafði sagt við hann á þilfari skipsins í sambandi við kveikjarann. Að lokum varð hugsun Peters skýrari. Hann mundi hvað Mary hafði sagt. Hann sagði hægt og fálmandi: „Þessi eldur er tákn hinna hlýju tilfinninga, er ég ber í brjósti til Mary Lan- caster“. Mary létti. Hún brosti og allir, er í réttarsalnum voru, hlóu. En saksóknarinn kvað það mjög sennilegt að bræður segðu hvor öðrum frá smáviðburðum, eins og þessum um grímudansleikinn, og kveikjarann. Áheyrendurnir horfðu á Peter og Mary og hlóu enn meira. Auðséð var, að þeir álitu, að Peter og' Mary hefðu daðrað hvort við annað á ferðalaginu. Þau roðnuðu og fóru hjá sér, er þeim varð ljóst, hvað áheyrendurnir voru að hugsa um. Mary féll illa að þessi saklausu ummæli hennar um silfurkveikjar- ann skyldu komast út meðal almennings og verða birt í öllum dagblöðum landsins, og álitin sönnun þess, að þau, Peter og hún, væru léttúðug. „Hvað mundi Eva segja, er hún læsi þessa sögu?“ hugs- aði Peter. Hann óskaði þess, að mega faðma hana, þótt ekki væri nema eina mínútu, og geta sagt henni, hve heitt hann elskaði hana. Þá yrði allt léttbærara. — Nr. 30 59

x

Kjarnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.