Nýja öldin - 01.12.1899, Blaðsíða 41
Jónas Uallgrímsson.
185
Rafn Fornfræðafélagið, sein þegar tekur til starfa og á
fám árum kemur út meðal annars 12 bindum af Forn-
mannasögum og 3 bindum af Fornaldarsögum Norður-
landa. Bókmentafélagið, sem Rask stofnaði 1816, hafði
þegar geflð út Sturlungu. Sveinbjörn Egilsson hafði á
Hafnarárum sínum lagt þá stund á móðurmál sitt og
förnrit vor, sem síðar bar svo ríkan ávögst. Hafði hann
átt mikinn þátt í útgáfu fornrita vorra. Þessar útgáfur:
Sturlunga, Fornmannasögurnar og Fornaldarsögurnar, opna
eiginlega íslenzkum almenningi aðganginn að fornöldirmi,
og þetta ryður að ýrnsu leyti brautina því endurfæðing-
arstarfi (Renaissance) í máli og hugsjónum, sembráttfer
að koma í ljós.
Við skólann á Bessastöðum eru þá kennarar tveir
þeir menn, sem bezt eru að sór í tungu vorri og mestar
hafa mætur á henni, og svo ómetanlega mikla þýðingu
fá fyrir íslenzkar bókmentir fyrir sakir áhrifa þeirra, sem
þeii' hafa á þá lærisveina sína, er gáfu, lund og' gæfu
bera til að verða endurlausnarar tungu vorrar og bók-
menta. Pessir menn eru Svoinbjörn ílgilsson og Hall-
grímur Scheving.
Hór hefi ég þá reynt að gefa í fám dráttum laus-
lega mynd af íslenzka jarðveginum, sem Jónas Hailgríms-
son spratt upp úr.
Virðulegu tilheyrendur! Ég veit ekki, hvort þér haflð
allir tekið eftir því, hve undarlega því bregður við, að
raiklir menn hjá einhveni þjóð koma að vísu stundum fram
einn og einn í einu, en oft lika er svo sem á einu eða t.veim
árum fæðist fleiri miklir memi, en annars tíðrim á hálfri
öld. Stundurn koma samtíinis úr skóla margir and-
rikir menn, þar sem endranær er oftast strjált um
slika menn.
Af hverju skyidi þetta. koma, þegar það ber til ? Að
öllum líkindum má ganga að því visu, að líkt sé að