Nýja öldin - 01.12.1899, Page 50
Í94
Nýja Öldin,
Yel ég mér ið vænsta hnoss,
vinur! gef mér lítinn koss!
Ber ég handa báðum oss
blíða gjöf á vörum mínum.
Ljúfi! gef mér lítinn koss,
lítinn koss af munni þínurri!
Leikur kossa lipur er,
lætur þeim er á kann halda,
listin sú ei leiðist mér,
loikui' kossa fimur er;
einatt reyni’ eg það hjá þér —
þiggja, taka, endurgjalda.
Leikur kossa lipur er,
lætur þeim er á kann halda.
Yinur! gef mér enn þá einn
ástarkoss af ríkum vörum!
einn fyrir hundrað, ungur sveinn!
einn fyrir þúsund — réttan einn!
Einn enn! Þú ert ofur seinn,
eg er betur greið í svörum.
Vinur! gef mér enn þá einn
ástarkoss af ríkum vörum!
Rétt sem örskot tæpur telst
tíminn mér við kossa þína;
tíminn, sem ég treindi helzt,
tæplega meir en örskot dvelst;
sárt er að skilja, gráti geldst
gleðin — þiggðu kossa mína!
Rétt sem örskot tæpur telst
tíminn mér við kossa þína.