Freyja - 01.07.1903, Page 4

Freyja - 01.07.1903, Page 4
1% íyrir tönn, og hafa G yðingar tekið þessa somn reglu. Lög þessi mikla áherslu á helgi eiðsins, gegnir slíkt furðu, því þar virðist þó að meinsæri liafi verið all títt. Réttlœtisdómuk heilögu árinnar. Víða er talað um vatnsraunina og má af því sjá að fólk hefir trúað því, að hin heilaga á,Efrats-áin hafi verið óskeikuit efsta úrskurðarvakl eins og hólmgöngurnar eða járnburðurinn forðum. Ein af fyrstu greinunum því víkjandi hljóðar þannig: „Ilafi einn maður Jagt á ann- ann mann án þess að liafa sannað rfettmæti slíkra áiaga, þá sk-al sá sem fyrir álögunum verður steypa sðrí-ána iieilögu. Haldi áin honum (drekki honum) skal sá er álögin orsakaði, taka hús hans. En komist maðurinn úr ánni, og hafi þannig sannað sakleysi sitt, skal galdramað- urinn deyja í hans stað, og sá sem varð fyrir álögunum taka hús luins.“ Svo lítur út sein þessi Vatnsraun hafi verið notuð 1 fleiri tilfellum eins og sjá má á eftirfvlgjandi grein: „Bendi einhver flngri að annars manns konu og gefl með því til kynna að hún sé manni sínum ótrú án þess að það sfe sannað, skal hún fara í ána heilögu tii að hreinsa sig af áburði þessum.“ VÍNSÖLULEYFI 4OOO ÁRUM F. Kr. Einnig var þessi Vatnsraun úrskurðardómsákvæði, þegar nm brot á vínsöluleyfislögum var að ræða. Svo virðist sem allir vínsalar í Babylon hafl verið konur. „Ilafl vínsali ekki tekið korn fyrir drykk, en tekið silfur og selt vínið við lægra verði en kornið“ þá skal sú hin saina lúka sekt sinni I ánni heilögu.“ Og enn aftur. — „Hafl vínsali safnað að sér óeirðarfólki og ekki tekið þá sem óeirð- unnm ollu til hallarinnar, skal þessi sami vínsali deyja. Þyngst hegning var lögð á lausakonur fyrir óreglu. Lausakona sú, er ekki býr í klaustri, skyldi brennastá báli, yrði hún uppvís að því að fara inn í vínsölubúð og taka sér þar drykk af víni. Víðar er minnst á þessar konur og virðast þær hafa haft sömu rétt- indi og giftar konu, eins og eftirfylgjandi grein bendir til. Sá maður setn kemur því til leiðar að flngri fyrirlitningarinnar sé bent að lausakonu eða giftri konu án þess að geta sannað sekt þeirra, skal dreginn fyrir dómarann og brennimerktur á ennið. Hjónabandslögin í Babylon. Víða eru lög þessi óglögg, eins og til d. í eftirfylgjandi grein: „Hatt maður gifzt konu, án þess samningar eða skuldarbréf hennar væri fullgjört, er sú kona ekki eiginkona“.

x

Freyja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.