Freyja - 01.03.1905, Síða 6
200.
FREYJA
VTT 8.
krjúpa í kringum hann og hafa þá svœfla, sem til þess eru gjöröir,
undir knjánum. I þessum stellingum tála Japar um landsins gagn
og nauösynjar, ástamál sín, eða hvaö annaö sem efst er á dagskrá
í það og þaö skiftiö. Ekki má kasta neinum úrgangi eöa hroöa,
svo sem bréfum, vindla endum eöa neinu þess háttar á eld þenna,
því þaö vœri aö vanhelga hann, og þfess utan .mundi það orsaka
reyk. En af þessum eldi kemur aldrei reykur eöa reykjareimur.
Það sýnir smekkvísi þjóðarinnar þessi snotri útbúnaður á eldfœri
þeirra, þegar þess er líka gætt, að eldsneytis ílát þeirra er vana-
lega ofurlítil bréfkarfa. Svo vel er þetta um gengið, aö eldstæöiö
sjálft gœti staöið á borði hinnar fínustu og hreinlátustu aðalskonu
á Englandi án þess að skemma eða ryka nokkurn hlut. Þegar menn
hafa gjört sér grein fyrir útliti og nytsemi þessa hibachi hjá jap-
önsku þjóðinni, og hversu gœtilega hún notar hann, hafa menn til
hálfs skilið lyndiseinkenni hennar.
Vér erum ekki lengur hjá hinni hæglátu japönsku þjóð, hjá
hverri vér vonuðumst svo lítils en fundum svo mikið, heldur á leið-
inni til Shanghai til að rannsaka þar nýja og oss óþekkta veröld,
og þangað búumst vér við að verða komnir innan 24 kl.
Þegar vér komum lengra upp eftir ánni Woosung og eftir ao
hafa farið fyrir langt nes serrj orsakaði stóran bug á henni, sáum
vér skamrnt frá oss Shanghai—mestu sjóborg Kína. Þegar vér kom-
um nær sáum vér mesta aragrúa af smábátum með kínversku iagi
og voru þeir allir mannaðir innlendum mönnum. Þá heyrðum vérog
allt í kringum oss þetta einkennilega hljóð,hi hi hi, sem einkennir
mál þeirra í eyrum þeirra, sem því eru ókunnir. Allt í kringum
lendinguna var og þétt skipað af fólki þessu, en borgin,það sem af
henni sást frá höfninni, var furðu lík ameríkanskri borg. Háir
kyrkjuturnar hófu sig upp í loftið, tvœr mótmælenda kyrkjur voru
þar allnœrri, mörg falleg íbúðarhús, og tilkoinumiklar stjórnar-
byggingar, ásamt stórkostlegum verkstœðum, nýmóðins kerrur og
akfæri með skrautbúnum ökumönnum þeyttust fram og aftur og
hurfu yflr brú spölkorn þaðan. Þetta var einungis enskumœlandi
hluti borgarinnar Shanghai. Hir er álíka munur á hinum enskumæl-
andi hluta þessarar borgar og ins kínverska, eins og milli þessara
sömu deiida í borginni San Eransisco á Kyrrahafsströndinni í