Freyja - 01.05.1905, Qupperneq 7
V ii io.
FREVJA
249.
mæfiur vissra manna í hverri herdeild senda þeim ritgjörðir til aö
styrkja þá og kenna þeim skoðanir flokkanna. Hafa margir her-
menn verið ^kotnir fyrir að lesa slíkar ræður. Allra handa meðul
haia notuð verið til að koma bókmenntum þessara flokka í hendur
hermannanna, og hefir nú í seinni tíð meira oiðið ágengt í sjó-
bernum en landhernum. Osvoboshdenie flokkurinn prentar í
biaöi smu málsóknir allar og hegningar á hendur hermönnum þeim,
sem uppvísir verða að þeim voða glœp, að lesa ritgjörðir byltinga-
manna.og er frásögnin æfinlega jjörð sem átakanlegust. Þessi út-
gáfa er vitanlega í forboði stjórnarinnar, en hefir engu að síður
mikla útbreiðslu. Ekkert hefir orðið byltingamönnum að eins miklu
liöi eins og það,að þeim hefir tekist að ná nokkrum hluta lögreglu-
liðsins á sitt vald, því með þeirra aðstoð geta þeir sent starfsmenn
sína um þvert og endilangt Rússaveldi, auk þess sem þeir eru þeim
að óútsegjanlega miklu liði á ýmsan annan hátt. Á útjöðrum rík-
isins er félagsskapur þessi búinn að ná sér svo vel niðri, að hann
getur farið ferða sinna og ráðið ráðum sínum eftir eigin geðþótta,
með tiltölulega lítilli hœttu.
Eitt af stór atriðum byltingamanna er að koma vopnum til
alþýðunnar og gengur það furðu fljótt. Skammbyssur eru að
mestu leyti valdar og eru þær fluttar inn í landið í stór slumpum,
auk þess eru þær drjúgum keyptar heima á Rússlandi, með tilstilli
herforingja við herinn, sem hlynntir eru byltingamönr>um,og stund-
um keyptir af öðrum,sem láta sig jafn litlu skifta um stjórnarsinna
og andstæðinga hennar. Yfir höfuð veitist byltingamönnum mjög
létt að útvega nauðsynleg hergögn.
Skaðlegust af öllum vopnum uppreistarmanna eru Bresent
sprengikúlurnar (Bresent bombs) en þeim hefir verið utbýtt í þús-
undatali um meiri hluta Rússaveldis. Hve mikið hver sprengi-
kúla fær áorkað þegar sá tími kemur að til þeirra verður tekið,
leiðir tíminn í ljós. En margir menn á Rússlandi hafa nú verið
til dauða dæmdir af byltinga mönnum, og eru þessir meðal inna
fyrstu: Pobiedonostzeff umsjónarmaður hinnar ,,heilögu Synodu, “
Trepoff, Grand Duke Sergius, Gesse og keisarinn sjálfur. Engan
af þessum mönnum vildi ég taka í lífsábyrgð upp á 99ýá eftir að
uppreistin hefst.