Freyja - 01.05.1905, Blaðsíða 8
250.
FREYJA
VII. io.
En hvenœr byrjar hún? spyrja menn. Foringjarnir bíöa eftir
tœkifærinu. Fyrst og fremst verða byltingamenn að hafa nógu
mikið fylgi innan vebanda hersins bæði á sjó og landi. Ekkert nema „
keisarinn eða stjórnarbylting bindur enda á stríðið, segja gætnustu
fylgimenn stjórnbyltmgarinnar. Léti keisarinn stríðið hætta,hefði
hann fuilnœgt einu aðal atriðinu, sem komið hefir stórum fjölda
rússneskrar alþýðu til að ganga í lið með byltingaflokkunum, og
skyldi hann nú gefa þjóðinni þingstjórn, myndi hann gjöra allan
þorra af þessu fólki ánægðan. En eitt af því, sem leiðandi menn
á rússlandi óttast mest af öllu, er það, að þegar bœndalýðurinn
Rússneski, sem sendur hefir verið í stríðið áustur frá, kemur heim
áftur að bújörðum sínum óyrktum, til skorts og armóðs enn þá á-
takanlegri en þeir áttu við að búa áður en þeir fóru f stríðið, nið-
urbeygðir af óförum og ósigrum sém stríðinu fylgdu muni sá hóp-
ur verða nœgilæga stór og nœgilega óánœgður til þess að stjórninni
standi stuggur og hœtta af, án allra þeirra óeirða sem fyrir eru,
'* og menn. eru hrœddir um að sá hópur muni meira en bæta bvlt-
ingamönnum fyrir alla hina, sem þeir eru líklegir til að missa úr
sínum hóp, ef keisarinn færi svo viturlega að ráði sínu, sem þegar
hefir verið framtekið. Annað aðal atriðið sem eðlilega tefur fyrir
uppreistinni er fjárþröng, því svo stórkostleg bylting útheimtir
mikið fé. Ejnn af leiðandi mönnum byltingaflokkanna í Péturs-
borg sagði nýlega við mig: ,,Ef einhver vildi gefa okkur 15,000,-
000 rúblur, skyldum vér hefja uppreistina á morgun.
A skjölunum með rauða innsiglinu, sem liggja á borðinu fyrir
framan mig.eru skýrslur um þúsundir rúbla samskot, sem gjörð
voru milli hins 9.og 13. og áskorun um meiri samskot til að hjálpa
fjölskylduleifum þeirra, sem skotnir voru niður fyrir framan keis-
ara höllina,sunnudaginn góða.sem síðan hefir verið kallaður ,,bióð-
baðs-sd. “ Að vísu er snertur af öfgum í þessu orði.en hver sá sem
staddur var í Pétursborg þenna dag og næstu daga á eftir getur vel
gjört sér í hugarlund, hvað verða muni þegar dagur hefndarinnar *
kemur, og eftir því sem meira kreppir að stjórninni á allar hliðar
—og sú kreppa fer stöðugt vaxandi—eftir því verður hægra að
steypa henni.
P'rh. bls. 259.