Freyja - 01.12.1907, Page 7

Freyja - 01.12.1907, Page 7
x. 5- FREYJA 103 því, þó gleraugun hans dingluðu á öðru eyranu á honum og ísra- el gamli teygði irefötinn fram í ganginn á milli sætanna án þess að vita af því, og allir biðu óþreyjufullir eftir því að heyra, hver hefði verið að skrifa prestinum okkar ástabréf. „Centin eru frá Dovie Swallow og frændi varð svo reiður þegar ég færði honum bréfin, að hann reif þrjCiafþeimí smá agnir, án þess að lesa þau. Svo ög áleit að ég ætti skilið að eiga þrjúsíðustu 5c.“ sagði Angela. Eg hafði ekki hjarta til að líta til vesalings Dovie. En þeir sem gjörðu það —» og þeir voru margir, héldu að það myndi líða yfir hana. Hvílíkt líka undur, að einurðarlausa, guðrækna Do- vie skyldi fara að skrifa prestinum, eða nokkrum karlmanni ástarbréf. Menn hefðu ekki orðið meira hissa þó sprengikúlu hefði verið kastaðinn í kyrkjuna, en að heyra nafn hennar nefnt á þenna hátt. En meðan undrunin stóð sem hæst, hóf Bloomer upp rödd sína og sagði: ,,Láttu ekki þina vinstri hönd vitahvað sú hægri aðhefst". Og þetta átti svo einkar vel við Dovie. „Þetta hylki er tómt“, tók Angela til máls, ,,og þó hefðu átt aðveiaáOe. í því. Einusinni í júlívarð mör reikað fram hjá laufskálanum hans Hartly kaupmanns og heyrði ég hann þá segja við konuna sína, að hún skyldi ekki fá eitt einasta cent hjá sér, fyr en hún hefði losað sig við alla svikna silfurpeninga, (Silfurpeningar,sem ekki voru teknir neina með miklum afföllum) sem hefðu verið sviknir inn á sig í rökkrinu í búðinni kvöldið áð- ur. Eg bauðst til að þegja yfir þessu fyrir 30c., því alltaf var ég að hugsa um trúboðssjóðinn, Eu hann vildi ekki gefa neina lóc. og það varð ég að taka út í brjóstsykri og hnetum. Eg get ekki sagt að mér þyki mikið varið í þessar vörur hjá honum, enda er vigtin svikin, því hann hefir lag á að hafa þumalfingurinn á vog- inni þegar hann vigtar og það munar fljótt á litlu, Það eru bæði betri vörur og betur vigtaðar hjá honum Darky kaupmanni. Hann lætur sig ekki muna það að vigta almennilega. Og þarna sjáið þið livers vegna bankinn sá arna er tómur“. Það getur skeð að Angela hafi gengið fulllangt. En ég sá að börnin öll tóku vel eftir því, sem hún sagði um vigt og útlát á brjóstsýkri og hnetum, og ég býst ekki við að það hafi aukið sæt- indaverzlun hans Hartlys fyrst um sinn. Við sjáum líka hvernig stóð á fölsuðu silfurpeningunum, sem rllt í einu fiugu inn á inarkaðinn, og sem við höfðum verið að kenna aumingja drengnum frá fátækraheimilinu.

x

Freyja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.