Freyja - 01.12.1907, Side 18

Freyja - 01.12.1907, Side 18
FREYJA X. 5- 114 Ég kunui þessu gaspri mjög illa, og bað mennina aö vísa mér á hús séra Patricks O’More. Ég gat þess jafnframt, að ég vœri langt að koininn og þreyttur og gæti ekki tekið neinu spauginf mönnum, sem mér væru alveg ókunnugir. Mennirnir hcettu þástrax að hloegja og litu hver til ann- ars. , .Þekkirðu annars hann séra Patrick O’More, drengur minn?” sagði Irinn og setti á sig alvörusvip. ,,Ég hefiséð hann einusinni”, sagði ég. ,,Og veiztu að hann er með köflum bandóður?”, sagði Ir- inn. ,,Nei‘‘, sagði ég og þóttist vita, að hann vœri að spauga. Ég kvaddi svo manninn og gekk út. Irinn gekk út í dyrnar á eftir mér og kallaði til mín: ,,Ef þú vilt endilega heimsœkja séra Patrick, drengur minn‘‘, sagði hann, ,,þá er húsið hans þarna uppi íhlíðinni beint á móti. En þú mundir ekki leita þar gistingar, ef þú þekktir piltinn eins vel og við‘‘. Ég hélt að hann vœri að spauga, oggekk upp í hlíðina. Þar stóð lágur og hrörlegur bjálkakofi með einum litlumglugga áannari hliðinni, var ein rúðan brotin og f jalarstúfur settur í hennar stað. Þegar ég kom nœr, sá ég að dálitlar grjóthrúgur voru allt í kringum kofann, og höfðu steinarnir auðsjáanlega ekki verið teknir þar úr jarðveginum nálægt kofanum, held- ur höföu þeir verið fluttir lengra að. Mér þótti þetta allt annað en skemmtilegt prestsetur, og ég fór að hugsa, að Irinn hefði gabbað mig og ekki vísað mér á hús prestsins, heldur eyðikofa, og það var rétt komið að mér, að snúa aftur og drepa ekki einu sinni á dyr. Samt gekk ég nú heim að kofanum, en þegar ég átti að eins fáein fet eft- ir að dyrunum, var hurðinni lokið upp og sjáifur séra Patrick 0‘More stóð á þröskuldinum. ,,Vertu velkominn — vertu œfinlega velkominn í mín hús!‘‘ sagöi hann og breiddi út faðminn á móti mér, ,,þú ert piltuiinn, sem fylgdi mérum árið frá íslenzku nýlendunni til Moose River Mines. Ég minnist þess of t með þakklæti, oghefi oft þráð að sjá þig, minn elskulegi! Og nú ertu kominn,—

x

Freyja

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.