Freyja - 01.12.1907, Síða 27

Freyja - 01.12.1907, Síða 27
X. 5. FREYJA 123 Hve margir af frumherjum niannrétfindanna hafa ei fallið á veginum og völcvað hann hjartablóði sínu? En fall þeirra hefir vallt orðið öðrum herhvöt og bent þeim til sigurs og frama. Þeir dóu oftungir, stundum mitt í sigurdýrðirmi og það frelsaði þá ef til vill frá því að verða harðstjórar, sem aðrir síðar hefðu orðið að út- hella blóði sínu og annara til að velta af stóli. Því þeir eru og hafa verið og munu verða svo fáir, sem kunna að stjórna, án þess að kúga. Listamaðurinn er sjaldan viðurkenndur af samtíð sinni, sama gildirog þó öllu fremur um endurbótamanninn. Hve inargir af lieimsins veglyndustu, beztu og sönnustu sonum liafa ei barist við skort, fyrirlitningu og ofsóknir alla sína æti. Þeir sem hæst svifu á arnvængjum hugsjónanna og yfirgripsmikils skilnings voru sjaldnast ríkir. Flestir dóu þeir í örbirgð og sáu loftkastala sína hrynja með sér. En aðrir gripu hugsjónir þeirra á lofti, gjörðu þær að virkileik og urðu heimsfrægir menn, enda þó þeir hefðu það eitt til frægðar unnið, að hafa vit til að skilja hugsjónir hinna látnu og auðmagn til að koma þeim í framkvæmd og færa sér þær í nyt. Á meðal hinna gleymdu seinni tíma frelsis-frumherja, má telja Louise Michel. Alla sína æfi var hún fátæk og hún dó, án þes* að sjá einaeinustu hugsjón sína rætast, Þó voru vökudraumar henn- ar um frelsi og vellíðan mannanna, eins ljósir og virkilegir, eins pg þeirra, sem á vorum dögum eru lengst komnir í þeim efnuin. Nú er hún líka viðurlcennd af inilljónum manna og kvenna, sem minnast hennar með eins djúpri lotningu, og hinir fáu sem, veru- lega þekktu hana í iifanda lífi, unnu henni heitt, Nefna mætti menn hópum saman, sem voru af samtíð sinni ofsóktir og líflátnir, en seinni kynslóðir hófu í dýrðiingatölu. Nú hafaþeir sín laun úttekið. Það eru því ekki þeir, heldur þör. nafn- lausu, gleymdu hetjurnar, sem báruð aðra til sigurs, ánægðir með það eitt að launum, að sannleikurinn 0g réttlætið í heiminum stæði einu skrefi nær sigri fyrir baráttu yðar, sem vér viljum vefja að hjörtum vorum í minningum þessum. Yður viljum vér blessa, hvai’ sem þér eruð eða voruð, því hið sameiginiega, sanna göfgi, hefur yður yfir gröf og dauða á öilum tfmum, eins og hún hóf sálir yðar yfir hið lága og ljóta, meðan þarfir líkamans héldu yður við duftið. Blessuð sé minning yðar, þér frumherjar frelsis og sannleika, sem félluð á veginum, sem eigið ekkert nafn, og ef til vill enga gröf. Guð blessi yður, þér göfugu menn 0g konur, sem heimurinn

x

Freyja

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.