Freyja - 01.12.1907, Síða 39

Freyja - 01.12.1907, Síða 39
X. 5- FREYJA 135 Börnin mín góö!— Ég hefði viljað segja yöur jólasögu, en bæði eru nú jólin liðin og mér er sagt að rúmið í blaðinu sé lítið. Samt œtla ég að taka yður með mér aftur í tímann um liðug 60 ár og segja yður frá því jólakvöldi, sem mérvarð minnistæðast allra heima á Islandi, því nú þori ég ekki fyrst um sinn að ympra á drenglyndi, af því að inér er sagt, að fyrir það sem ég sagði síðast um það efni, hafi Freyja tapað nokkrum áskrifendum, sem telja sig til hærri stétta mannfé- lagsins. Af hvaða ástœðum þeir hefndust á blaðinu fyrir það, vita þeir bezt sjálfir. Engu að síður vil ég leggja yður á hjarta kenninguna, sem í þeirri grein felst. Ilún á við á öllum tím- um. En það sem ég œtlaði að segja yður er sem fylgir: Við vorum þrjú systkinin, tvœr stúlkur og einn drengur, frá sex til tíu ára. Það var komið myrkur, samt fannst okk- ur enn langt að bíða jólahelginnar. Reyndar fundum við til hennar allt í kringum okkur, loftið var þrungið af henni,lyktin af jólamatnum vitnaði um hana, sparifötin okkar, sem búið var að taka upp úr kistunum, askarnir og gólfin, sem ný-búið var að þvo og loksins við sjálf, sem vorum táhreinfrá hvirfli til ylja—höfðum fengið verulegt bað, eins og venja var til fyrir jólin. Við áttum einungis eftir að fara í sparifötin okkar. Ég er samt hrœdd um að ykkur þætti þau ekki sparileg ef þið sæuð þau nú, samt þótti okkur eins vœnt um þau, og ykkur um sparifötin ykkar þótt þau séu mikið fínni. Sparifötin okk- ar voru úr vaðmáli, sem upprunalega var grátt, með hvítum röndum, Haföi það fyrst verið litað úr dökkum hellulit og síðan brugðið ofan í rautt, voru fötin okkar því kaffibrún að lit með langröndum, vitund ljósari. Nú lágu þau á einhverju rúminu og biðu þess að við yrðum fœrð í þau.

x

Freyja

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.