Freyja - 01.03.1908, Qupperneq 9
X. 8.
FREYJA
193
II. -- Lýðveldi mannsins.
I.
Piazza Nevana er sá hluti Rómaborgar sem sérstak-
lega er rómverskur. I öilurn öörum pörtum borgarinnar gæti
maöur hugsaö sig staddan í Lnndúnaborg, París, Berlín eöa
jafnvel í New York. Á efsta lofti í fjórlyftri byggingu í þessum
hluta borgarinnar haföi Rossi búiö síðan hann varð þingmaö-
ur, en þaö voru sjö ár. Húsinu niöri var skift í matsöluhús og
vínsölubúö. Öðrumegin viö vegginn lá stigi upp á loftin, bak
viö stigann var herbergi dyravaröarins og þar bjó nú gamall
Garibaldi-sinni meö konu sinni. Frammi fyrirþessu herbergi
glitti œfinlega í rauðleita ljóstýru. Rossi leigöi þrjú herbergi,
tvö í framparti hússins og eitt hiiöarherbergi og lá úr þvístigi
upp á þakiö.
I einu af framherbergjunum í húsi þessu sat ungleg kona
°g prjónaöi. Hjá henni kraup drengur, á að gizka sex vetraog
las í opinni bók sem lá í kjöltu hennar. Konan var auösjá-
anlega af alþýðufólki, falleg en feimnisieg, en drengurinn son-
ur hennar fjörlegur eins og Ijónsungi^, með hrokkið hár og
greindarleg augu. ,,Haltu áfram, Jósef,“ sagði konan og
benti á blaðsíðuna. ,,og það skeði, “ las drengurinn en komst
ekki lengra því hugurinn var annarstaðar. ,,Þúsagðir að þeir
kæmu kl. tvö,“ sagði hann. ,, Já góði minn, þeir œtluðu að
sleppa herra Rossi strax og pabbi hljóp heim til að segja okk-
ur tíðindin og fór svo til að sækja hann. Svona, lestu nú. “
,,Og það skeði að hann fékk ást á konu í dalnum Sórek,
og höfðingjar Filistea báðu ’nana aö komast að þvíí hverju lœgi
styrkur hans“— „En mamma—?“ —, ,Lestu, drengur. “
,,Og þegar Samson var sofnaður kallaöi hún á mann til að
skera hár hans—, “ nú heyrðist hávaði úti fyrir svo dreng-
urinn hentist ofan og hrópaði með barnslegri kæti: ,,David,
David frændi!“ En gleðilætin híjóðnuðu brátt er hann sá að
komumaðurinn var honum ókunnugur og fylgdi hann honum
upp. Maður þessi var ný-týzkuklœddi rómverjinn sem stóð
hjá kerru franska mannsins í St. Péturs súlnagöngunum.
II.
,,Ég þarf aö tala við Rossi, fólkið kemur með hann, en ég