Helgarpósturinn - 16.11.1979, Page 3
3
hplrjrirpn^tl irinn Föstudagur 16. nóvember 1979
Vinnuaöstaöa lögreglu-
manna fer svolitið eftir
efnum og aðstæðum hverju
sinni. Á þessum myndum,
sem teknar voru við mót-
mæli herstöðvarand-
stæðinga gegn NATÓ skip-
urri/ er hún með verra
móti. Ungur maður skvett-
ir á þá vökva og berst siðan
á hæl og hnakka.
Hengingartak
Hengingartakið svokallaða,
sem minnst var á hér aö framan
virðist einhverra hluta vegna i
þann veginn að verða sérstakt
lögreglutak. Helgarpósturinn
hefur fyrir þvf áreiðanlegar
heimildir að allir eða alllflestir
lögreglumenn kunni þetta tak,
enda þykir það mikiö þarfaþing,
ef sljákka þarf I óstýrlátum.
Takið er tekið um hálsinn og
þrýst að slagæöum þannig að
blóðrásin til heilans stöðvast f um
10 sekúndur. Afleiðingin er sú að
menn missa allan mátt og með-
vitund í 10—15 sekúndur og verða
svo slappir f smástund eftir að
þeir ranka við sér. Þá kunna þeir
að tryllast ennþá meir, og litið
annaö að gera en að taka takið á
nýjan leik.
Oftast eru þessi tök tekin þar
sem aðstæður til slagsmála eru
erfiðar, til dæmis innan húss, i
lögreglubifreiðum og öðrum
þröngum stöðum.
í sjálfu sér má segja að þegar
menn tryllast bókstaflega, er að
ýmsu leyti „hagstæðara” að nota
þetta tak heldur en að slást með
hnúum og hnefum. Meiðslahætt-
an er út af fyrir sig minni — en
eins og gefur aö skilja er þetta tak
afskaplega vandmeöfarið.
Kylfan
Bjarki Elfasson, yfirlögreglu-
þjónn, sagði allt þetta tal um
hengingartak, á misskilningi
byggt. I lögregluskólanum væru
kennd önnur tök, og þó tekið væri
undir hökuna á mönnum, þýddi
það ekki að verið væri að hengja
þá.
Um kylfunotkun sagði Bjarki
að gilti sérstök reglugerð, sem
dómsmálaráðuneytið hefði gefið
út 1940 og væri enn f fullu gildi.
Þar stendur meðal annars aö lög-
reglumenn skuli leitast við að
hæfa aðeins handleggi, brjóst eöa
bak þess sem með kylfu er
sleginn. Þar segir einnig að kylf-
unni skuli aðeins beita f vörn, við
handtöku hættulegs brotamanns,
sé það nauðsynlegt, ef störf lög-
reglunnar eru hindruð, og að lok-
um til að knýja fram hlýðni við
skipun ef henni er ekki hlýtt með
venjulegum fortölum.
Ánægður
1 Lögregluskólanum eru menn
og konur þjálfaðir f notkun kylfu
og annarra tækja lögreglunnar,
og þar verða lögregluþjónar að
standast vissar kröfur svo þeir
eigi möguleika á ráöningu. Að
sögn Williams Möller, fulltrúa
lögreglustjóra, eru menn ráönir
upphaflega til reynslu, og siðan
fastráðnir þegar lögregluskólan-
um er lokið og menn hafa öðlast
einhverja reynslu i starfi.
Skilyrði fyrir inngöngu I lög-
regluna eru fremur almenns
eðfis. Umsækjendur verða aö
vera bærilegir f islensku, á aldr-
inum 21—30 ára, fjár sfns ráð-
andi, hafa gott mannorð, vera
heiibrigöir andfega og lfkamlega
— og vera sæmilegir að burðum.
Þeir verða að hafa að minnsta
kosti gagnfræöapróf — og bílpróf.
Helgarpósturinn spuröi Sigurjón
Sigurðsson, lögreglustjóra hvort
hann væri ánægður með mann-
valið og svarið var stutt og lag-
gott: „Já, það er ég nú”.
Harðræði islensku lögreglunnar
virðist þess vegna af framan-
sögðu ekki fyrirferðamikið I
skýrslum og gögnum lögreglu og
dómskerfis, þótt ýmislegt bendi
til að alltaf ööru hverju kastist f
kekki milli lögreglu og borgara
án þess þó að þau mál nái svo
langt að lögreglan sé kærð. Innan
lögreglunnar eru vafalaust ein-
hverjir sem ættu betur heima i
öðrum starfsgreinum, en hins er
einnig aö gæta að lögreglan
vinnur oft störf sfn við erfiöar að-
stæður og það sem f fyrstu kunna
að virðast hrottaháttur af hennar
hálfu eru ef til vill nauðsynlegar
varnaraðgerðir.
Eða eins og Magnús Einarsson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn, sagði
við Helgarpóstinn: „Auðvitað
þykir mér miður þegar lögreglan
er sökuð um harðræði og þegar
lögreglan sýnir vangæslu I starfi.
En á meðan við erum menn, get-
títíUk
apurnar
insœlu
omnar
íftur
Litir:
Dökkblátt,
svart og Ijóst
tweed efni
Stœrðir: 34-40
Verð: 48.600.-
SEnDum GEcn pústkröfu
ur okkur orðið á f messunni. Það
kemur að mfnu mati sjaldan fyr-
ir, sem betur fer, þvi f slíkum til-
fellum er ekki annað hægt að gera
en að biðjast fyrirgefningar og
reyna að bæta fyrir mistökin. J
300 manna lögregluliði hljóta slfk
mistök að eiga sér stað”.
eftir Guðjón Arngrímsson
myndir: Leifur
Um 40 hiutir verða keyptir til
birtingar í bókinni. Greiddar
verða ailt að 40 þús. krónur
fyrir minni háttar hiut og ailt
að 70 þús, krónur fyrir meiri
prjónað eða hekiað. í hátlarhlul- Ákveðið
Einnig hvers konar VtÍAvtJlíllUi i IriJiJl hefur verið aðverð-
prjón og hekl til ___ _____ ____ launa þá flik. sem að
Ullarverksmiðjan Gefjun efnir
til samkeppni um efni í 3. hefti
Prjónabókarinnar Elínar. Það
skal vera á börn. unglinga og
fullorðna. Handprjónað. vél-
heimilisnota eða heimilis-
prýði.
200
mati dómnefndar ber af í
samkeppninni.með þvi að
greiða fyrir hana 200 þús.
krónur.
þús. króna aukaverðlaun
Unnið skal úr eftirtöidu Gefjunargarni og lopa
Golfgarni Loðbandi Grilon nterino Superwash
S-kantbgarni Hespulopa Grilon merino, eingirni Súium.
Grettisgarni Plötulopa.
Senda skal flikurnar greinilega merktar dulnefni tii Iðnaðardeildar
Sambandsins. Sölvhólsgötu 4. 101 Reykjavík. fyrir 1. febrúar 1980. Þeirn
fylgi nafn og heimilisfang sendanda i lokuðu umslagi rnerktu sama dulnefni
í umslaginu sé einnig uppskrift eða eins glögg verklýsing og kostur er.
Allar náttari upplýsingar gefur Gunnsteinn Karlsson i síma 91-28200.
Reykjavík. Dóntnefnd Elínar lýkurslörfum i lok febrúar 1980 og munu þær
flíkur, sem ekki hljóta verðlaun. verða endursendar þá.
PRJÓNABÓKIN ELÍN
ULLARVERKSMIÐJAN GEFJUN