Helgarpósturinn - 16.11.1979, Side 24

Helgarpósturinn - 16.11.1979, Side 24
—helgarpásturinrL. Föstudagur 16. nóvember 1979 # Andstæðingar sjálfstæðis- manna gera nú harða atlögu að slagorði þeirra um Leiftursókn- ina gegn verðbólgunni. Gár- ungarnir úr röðum andstæðing- anna eru búnir að finna það út, að leiftursókn dugi ekki nema með skriðdrekaflota. Skriðdrekafor- ingjarnir séu Gunnarog Geirog þeirra skriðdrekar séu nákvæm eftirliking af itölsku skriödrekun- um I fyrri heimstyrjöldinni, sem voru með fjóra gira aftur á bak — til að auðvelda flóttann, og aðeins einn gir áfram — lika til að auð- velda flóttann, ef ráöist yrði á þá aftan frá. Gárungarnir láta ekki hér við sitja heldur halda þvi fram að sjálfstæðismenn hafi hingað til aðeins getað notað þennan eina gir áfram á undan- haldi sinu á Suðurlandi og Akureyri, þar sem bara hafi verið ráðist á þá aftan frá.... 0 Vilmundur Gylfason lét þau orö falla á dómaraþingi á dögun- um að sennilega fyndist ein- hverjum aö skæruliðar hefðu her- tekið dómsmálaráðuneytiö meö komu sinni þangaö. Sennilega er Armann Snævarr, forseti Hæsta- réttar þessarar skoðunar, þvi að eftir dómaraþingiö flutti hann tölu, þar sem hann hvatti dómara „til að standa saman á viðsjár- verðum timum” og eiginkonur dómaranna til aö standa vel við bakið á þeim.... 0 Vinnustaðafundir pólitikus- anna eru vinsælir um þessar mundir. Friðrik Sóphusson (S)er einn þeirra sem hefur verið á slikri yfirreið síðustu daga og einn daginn kom hann I kaffistofu Þórisóss. Hann lýsti þvi þar yfir, að kæmist flokkur hans í rikis- cMLAMI !REACH Vió bjóðum lúxus hótel: Konover og Flamingo Club hótel- íbúóir Um margs konar veró er aó ræóa, t.d. getum viö boðið gistingu í tvíbýlis- herbergi og ferðir fyrir kr.:322.000.- Enn ódýrari gisting er einnig fáanleg búi t.d. 5 fuliorónir saman í íbúö. Kr 309.000.- pr mann. Fyrir börn er verðið rúm lega helmingi lægra. 0 FLUGLEIÐIR Nánari upplýsingar: Söluskrifstofur okkar Lækjargötu 2 og Hótel Esju simi 27800, farskrárdeild, simi 25100, skrifstofur okkar úti á landi.umboösmenn og ferðaskrifstofur. stjórn og hefði ekki tekist að leysa efnahagsvandann innan niu mánaða, mundi hann segja af sér. Sagan segir að pöbbunum á kaffi- stofunni hafi verið skemmt.... ® Önundur Ásgeirsson, for- stjóri OLÍS, er nú i Nlgerfu aö semja þar við innfædda um möguleg kaup á hráoliu fyrir Islendinga. önundur er þar einn á ferð og hefur umboð fslenskra yfirvalda til ferðarinnar og samningaviöræðna. Nokkur aðdragandi mun þó vera að þess- ari ferð. Nigeriskur áhrifamaöur, sem sagður er bróðir forseta nigeriska þingsins, kom hingað til lands fyrir skömmu meö sviss- neskum kaupsýslumanni, en sá hefur veriö milligöngumaður i skreiöarviðskiptum Islendinga og Nigeriumanna um nokkurt skeið. önundur Asgeirsson tók þessa menn upp á arma sina, þegar þeir komu hingaö til lands og mun hafa farið einar tvær ferðir til Túnis, sem er einn helsti spá- kaupsmarkaðurinn i oliubransan- um. Eftir þessar ferðir fór önundur að þvi sagt er upp i við- skiptaráðuneyti og sagði mögu- leika á að ná helmingi lægra verði i Nigeriu en nú fengist, en lagði þunga áherslu á að hann fengi að standa einn i þessum samning- um. Kjartan viðskiptaráðherra Jóhannsson mun hafa gripiö agn- ið, þótt ýmsir teldu eðlilegast að opinberir embættismenn yröu I fylgd önundar. Sem sagt önund- ur er einn á ferð og niðurstöðu ferðar hans er beðið með eftir- væntingu. Svo blðum við Helgar- póstsmenn spenntir eftir upp- lýsingum um umboðsgreiöslur eins og alltaf þegar Nigeriuvið- skipti eiga i hlut... # Fleiri hafa haft áhuga á að selja okkur oliu. Hingað kom svissneskur kaupsýslumaður og fyrir einhverja milligöngu Krist- ins Finnbogasonar fékk hann áheyrn hjá stjórnvöldum. Maður- inn kvaðst geta útvegaö oliu á kostakjörum en vildi fá2milljdoll ara fyrir viðvikið. Oliunefndin svonefnda ákvaö að tékka á hver maöurinn væri og spurðist fyrir um hann hjá svissneskum banka. Svarskeyti barst um hæl: „Dirti- est crook world over”... £ En þar sem verið er að tala um oliu þá blæs ekki byrlega I verðlagsmálum hennar fyrir okk- ur Islendinga. Fyrirsjáanlegt þykir að olia muni hækka enn á Rotterdammarkaði I kjölfar á- kvöröunar Bandarikjastjórnar um að hætta oliukaupum frá Iran, sem talið er að hún muni að ein- hverju leyti bæta sér upp með kaupum annars staðar frá. Þá hefur lika verið að koma i ljós núna allra slöustu daga að Rúss- arnir eru algjörlega lens með ollu og mun það ekki bæta ástandið.... 0 Svavar Gests, hljómplötuút- gefandi er kominn með dægur- lagaþátt á laugardagseftirmið- dögum. Svavar er vandvirkur og ágætur útvarpsmaður. Jafnan hafa þættir hans þó verið nokkuð umdeildir, einkum vegna þess að ýmsum þykir óeðlilegt að hljómplötuútgefandi fái þannig þátt til umráða. Nú hefur Helgar- pósturinn heyrt, aö tveir af helstu keppinautum Svavars I bransan- um, Steinar Berg og Jón ólafsson I Hljómplötuútgáfunni, ætli að leggja fram ósk um það til út- varpsráös, trúlega meir I gamni en alvöru, að þeir fái sams konar þætti til umsjónar... ,Tvær nýjar bæktir Það sem 9er' n%ennar sem einstaeða er \ að engtnn er ^ hölundur hetur þann'háttsemba^.n ersVQ NA'S'Öínien «lsreyns'Usaga að átakan\eg ndl tyUist» veniulegur sketf\ngu vlð . senn undru" ®eð sbgumanm asakyggn®. mhann 'nni SomUunnatla.su lýsir at svo i kUnl að SSer'i°^vergÞiðð^' semviðWtumi. Þettaerspennand'^v^ð er raUríSfk 09 mörgum mun sbgunna ónurnareru s'1Ón'r'n?rásögninnivindur fáar.og^soy ^ og hratUr^örkuðumköt\um. skýrtatmorkuo^sorgog petta er sag Frásogmn g»eð\,ástogha. unaleg 0 Hin svokölluöu IB-lán og önnur slik sem lönaðarbankinn.og fleiri naia boðið eru sogo nafa náð miklum vinsældum. Tveir bankar, Búnaðarbankinn og Ct- vegsbankinn, hafa þó ekki tekið upp þetta lánaform. Astæðan mun vera sú, að útstreymið af IB- lánunum sé svo mikið að bankinn ráði illa við það. Þannig valdi IB- lánin,„lánin sem bankastjórarnir ráða engu um”, eins og þau eru auglýst, þvi að venjuleg lána- starfsemi til fastra viðskiptavina, — lánin sem bankastjórarnir ráða þó öllu um —, eigi oröið um sárt aö binda... 0 Flugleiðamenn hafa jafnan verið stórtækir I hótelmálum. Nú hefur heyrst að Siguröur Helga- son, forstjóri Flugleiða og sálu- félagar hans I peningamálum (ekki Flugleiöir h/f sjálft) hafi fest kaup á City Hótel við Ránar- götu... '# Þá höfum við fregnað að nokkrar deilur og bréfaskriftir hafi staðið undanfarið milli Flug- leiða og Flugfreyjufélags tslands i framhaldi af uppsögnum á flug- freyjum s.l. vor. Astæöan mun vera sú að nokkrar flugfreyjur úr Loftleiðaarminum (sem jafn- framt munu vera félagar i sam- tökunum Módel ’79) sem ráönar hafi verið til sumarstarfa hafi fengið vinnu út árið á meöan aðr- ar og reyndari flugfreyjur úr Flugfélagsarminum hafi ekki fengið sina ráðningu fram- lengda.... ® Af þvi að við minntumst á flugfreyjur þá er sýnt að breytingarnar á Norður-Atlants- hafsflugi nú muni valda mikilli röskun á högum þeirra, þar sem beina flugið milli Ameriku og Evrópu mun hafa I för með sér að þær verða langtimum saman að heiman. Þetta hefur valdið þvi aö flugfreyjur hafa nú hug á þvi að koma upp barnaheimili eöa vöggustofu til að hafa börnin á, allan timann sem þær eru I burtu og er það mál nú i athugun..... # Enn reynir á þanþol Islenska blaðamarkaðarins. Umfangs- rriesta blaðaútgáfufyrirtæki landsins, Frjálst framtak er i þann veginn að færa út kviarnar rétt einu sinni enn. Nú I byrjun desember hefur göngu sina nýtt vikublaö Frjáls framtaks. Það ber nafnið Fólk og fyrirmyndin eru bandarisku ritin People og Us. Ritstjóri Fólks verður óli •Tynes, sem um langt skeið hefur veriö blaðamaður á Visi og haldið þar m.a. úti vinsælum dálkum eins og Sandkorni og Sandkassan- um. Eins og nafnið gefur til kynna mun hið nýja blaö leggja höfuðáherslu á fréttir og viðtöl og frásagnir af fólki en ekki af at- burðum, og þá vitaskuld þekktu. Ráðgert er að 70-90% efnisins verði af innlendum vettvangi en afgangurinn að utan. Fólk verður 20 siður að stærð meö litprentaðri kápu, þar af 5 auglýsingasiður og i sama broti og sérrit Frjáls framtaks. Upplag mun ráðgert 16.000 eintök, og lögð áhersla á knappt form og liflega framsetn- ingu. Ekki er búist við að ráðnir verði blaðamenn að hinu nýja blaði sérstaklega, enda flest fyrir hendi til þessarar útgáfu hjá Frjálsu framtaki en Fólk er talið nema um 8% útgáfuaukningu hjá fyrirtækinu... # Fleiri breytinga mun að vænta hjá Frjálsu framtaki. Við sögðum frá þvi nýlega aö rit- stjóraskipti væru I vændum á Sjávarfréttum. Nú mun Hildur Einarsdóttir, sem verið hefur rit- stjóri tlskublaðsins LIF frá upphafi hafa ákveöið að hætta upp úr áramótum. Ekki er ljóst hver verður eftirmaður hennar I þeirri stööu... # Meira um nýjungar 1 blaðaút- gáfu: Aöstandendur kvikmynda- félagsins Sóleyjar hafa rætt um það sin á milli að hefja útgáfu á kvikmyndatimariti. Þetta er þó enn sem komið er aðeins lausleg hugmynd, sem kom fram þegar verið var að ræða um hugsanleg framtiðarverkefni félagsins, þegar Róska hefur lokið við kvik- mynd sina, Sóley. Ef af þessu verður, verður brotið blaö i sögu blaðaútgáfu á Islandi, þvi til þessa hefur aldrei verið gefið út islenskt kvikmyndatimarit...

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.