Helgarpósturinn - 07.12.1979, Page 5
__helgarpósturinn
5
9 Einu sinni var vatni breytt i
vin, en hefur nokkur heyrt að
hundi væri breytt i hest?,Varla.
En það gerðist nú samt i
Bretlandi fyrir skömmu. Já
kannski var hundinum nú ekki
beint breytt i hest, en hann var
dulbúinn sem slikur. En það er
best að byrja á byrjuninni.
Þannig var að Power-hjónin
voru að flytja búferlum til Nýja-
Sjálands og vildu að sjálfsögðu
taka Lonnie — stóra úlfhundinn
sinn — með sér. En Lonnie greyið
var hjartaveikur og hjónin óttuð-
ust að hann myndi ekki lifa flug-
ferðina af innilokaður í ein-
hverjum hundakassa um borð i
flugvélinni.
Hestar fá hins vegar mun betri
umönnun en hundarnir. Þeir fá
rúmgóðan bás og eigendum er
leyft að vera við hlið hrossins og
hugga það á leiðinni. Þvi voru það
Power-hjónin sem skráðu úlf-
hundinn Lonnie sem hross og
fengu þar af leiðandi rúmgóðan
bás fyrir hjartaveika hundinn
sinn. Og alla leiöina sátu þau
hjónin hjá Lonnie og klöppuðu
honum og reyndu að gera honum
ferðina sem þægilegasta. Segir
sagan að hundhrossið Lonnie hafi
komist á leiðarenda og hjartaö
staðið sig með sóma alla leiðina.
9 „Járnfrúin”, Magga Thatch-
er gerir nú uppskurð á hverju
þjóöfélagsmeininu af öðru i
Bretaveldi. Og hún gerir ná-
kvæmlega það sama og fslensku
stjórnmálamennirnir eru alltaf
að tala um, þ.e. að sópa fyrst
heima hjá sér áöur en maður fer
aö taka til hendinni i hilsi ná-
grannans.
Og hvaö skyldi Magga svo vera
að gera? Jú, hún er óhress mjög
með matseðilinn i Downing
Street nr. 10 ætlar að
stokka hann upp. Henni finnst að
matarvenjurnar hjá Jim Callagh-
an fyrrverandi forsætisráðherra
hafi ekki verið eins og sæmdi i
húsakynnum forsætisráNierra.
Þaö þýöi t.d. ekkert aö bjóða er-
lendum gestum upp á hamborg-
ara meö frönskum, eða hakkað
buff með ufstúfi. Þessvegna skal
breyta matseðlinum og hafa þar
finar steikur og ljúffengt meölæti.
Þá stendur einnig til að hressa ör-
litið upp á boröbúnaðinn, sem
Möggu finnst helst til alþýðlegur.
Jafnvel hefur verið minnst á að
kaupa nokkrar tylftir mávastella,
en HP selur þá sögu þó ekki dýr-
ari en keypt var.
Eldhúsiö i Downingstræti og
borðstofan eru þar af leiðandi að
breytast. Grillréttunum og kaffi-
teríumóralnum skal kasta, en
innleiða virðulegan blæ i anda
breska kóngafólksins.
Já, það er sko aldeilis tekið til
hendinni hjá henni Möggu
Thatcher og enginn óhultur fyrir
siðvæöingarherferð hennar.
Mynda albúm
Litskyggnuskoðarar
Mynda-
rammar
Leifutrljós, (Flösh)
Sjónaukar
Myndavélatöskur
nSi hans petersen hf
| v ly | ■ B^81 mr flv B BiBHVBn BB Beb fl^
BANKASTRÆTI AUSTURVER GLÆSIBÆ
S: 20313 S: 36161 S: 82590
þú getur bókaö þaö
Andrés Indriöason:
Lyklabarn
Verölaunabókin í barnabókasamkeppn
Máls og menningar. Hér er sagt frá Dísu,
sem flyst í nýtt og hálfbyggt hverfi með
foreldrum sínum og litla bróður. Hún er
einmana í fyrstu, en smám saman
stækkar kunningjahópurinn og Dtsa fer
að kunna vel við sig. En það fer margt
öðru vísi en krakkar vilja. Þessi saga
segir líka frá því.
Verð kr. 5.490. Félagsverð kr. 4.665.
Ármann Kr. Einarsson
Mamma í uppsveiflu
Nýi strákurinn í 6. bekk H. B., Geiri, er
söguhetjan í þessari bók ásamt fjöl-
mörgum dugmiklum bekkjarfélögum
sínum. Krakkarnir innrétta gamalt
pakkhús og hyggjast hefja leiksýningar
til styrktar heyrnardaufri bekkjarsystur
sinni. En einmitt þegar frumsýning er i
nánd fer mamma Geira „i uppsveiflu"
og hætta er á að öll fyrirhöfnin sé til
einskis.
Verð kr. 5.310. Félagsverð kr. 4.515.
Maria Gripe:
Náttpabbi
n Xr £ina
r«so n
up
hxt.mTo\
Asttkl lindwren
á Saltkráku
Ví's( A
sra
Astrid Lindgren:
A Saltkráku
Sagan um fjölskylduna sem leigir sér
ókunnugt hús á ókunnri eyju og lendir
þar í ótal ævintýrum. Eftir þessari bók
hafa verið sýndir mjög vinsælir sjón-
varpsþættir. Þýðandi Silja Aðalsteins-
dóttir.
Verð kr. 5.490. Félagsverð kr. 4.665.
Astrid Lindgren:
Víst kann Lotta
næstum allt
K. M. Peyton:
Erf ingi Patricks
Falleg og athyglisverð unglingasaga,
þriðja og síðasta bókin um vandræða-
gripinn og hæfileikamanninn Patrick
Pennington. í upphafi bókarinnar situr
hann í fangelsi fyrir að ráðast á lög-
regluþjón við skyldustörf. Þýðandi Silja
Aðalsteinsdóttir.
Verð kr. 5.915. félagsverð kr. 5.025.
Astrid Lindgren:
Ný skammarstrik
Emils í Kattholti
Frábærar barna-
og unglingabækur
Bráðskemmtileg barnasaga eftir höfund
bókanna um Húgó og Jósefínu. í þessari
bók er sagt frá ungri stúlku, Júliu, sem
eignast náttpabba, sem gætir hennar á
meðan mamma er í vinnunni. Náttpabb-
inn á ugluna Smuglu, og uglur vaka á
næturnar... Þýðandi Vilborg Dag-
bjartsdóttir.
Verð kr. 4.940. Félagsverð kr. 4.210.
Gullfalleg myndabók fyrir yngri börnin.
Sagan um Lottu litlu sem getur allt —
nema renna sér í svigi á skíðum. Og
þegar öll jólatré í bænum eru uppseld
tekur hún til sinna ráða. Þýðandi Ást-
hildur Egilson.
Verð kr. 3.295. Félagsverð kr. 2.800.
Önnur bókin um hinn óforbetranlega
Emil í Kattholti. Þegar þessi bók hefst
hefur Emil tálgað 99 spýtukarla í
skammarkróknum, en þegar henni lýkur
eru þeir orðnir 125. Þýðandi Vilborg Dag-
bjartsdóttir.
Verð kr. 5.000. Félagsverð kr. 4.250.
Mál og menrúng lH