Helgarpósturinn - 07.12.1979, Blaðsíða 26

Helgarpósturinn - 07.12.1979, Blaðsíða 26
26 helgarpósíurinn bladamadur í einn dag.... Helgi Daníelssori/ rannsóknarlögreglumaöur, formaöur lands- liðsnefndar í knattspyrnu með meiru er blaðamaður í einn dag fyrir Helgarpóstinn að þessu sinni. Helgi er vel kunnugur blaða- mannsstarfinu, og til dæmis starfaði hann sem slíkur með námi í lögregluskólanum á sinum tíma, þá á Alþýðublaðinu, auk þess sem hann hefur sinnt iþróttafréttamennsku í hjáverkum í mörg ár fyrir Morgunblaðið. Helgi skýrir sjálfur frá því í grein sinni af hverju hann valdi þetta viðfangsefni. Enoksen fagnar marki, en Helgi Dan. býr sig undir aOsparka knettinum. ÚRKLIPPUR ÁRSINS Ég er haldinn þeirri áráttu að safna og sanka að mér ýmsu, eins og t.d. frimerkjum, blöðum og öðru þess háttar, að ógleymdum blaðaúrklippum. Mig minnir, að eitt sinn þegar ég var i sveit, langt innan við fermingu, hafi ég klippt út úr Isafold og Verði og Timanum, allar myndir sem eg sá af fall- egum konum. Myndirnar limdi ég á karton og stillti þeim siðan upp i herberginu hjá mér. Siðar missti ég allan áhuga á konu- myndum. Þegar ég var 17 ára hóf ég að leika knattspyrnu i meistaraflokki með liði minu af Skaganum. Ekki vorum við sig- ursælir mitt fyrsta keppnisár, sem var árið 1950. Við gerðum mörg jafntefli. En árið 1950 byrjaði ég að safna öllu þvi sem skrifað var um þá leiki, er ég var þátttakandi i. Þessu hélt ég áfram af mikilli kostgæfni, ailt þar til minum knattspyrnuferli lauk endanlega, að ég held árið 1968. Eins og gefur að skilja, er blaðabunkinn orðinn nokkuð stór. Ég hafði aldrei manndóm i mér til að ganga frá þessu úr- klippusafni minu á viðunandi hátt, fyrr en nú nýverið að ég hóf verkið. Þegar Björn Vignir hringdi til min á dögunum og bað mig um að verða blaðamaður Helgar- póstsins einn dag, vildi svo til, að ég var að ljúka við að lima inn blaðaúrklippurnar frá árinu 1959, eða fyrir réttum 20 árum. Og þegar ég fór að velta fyrir mér, hvað ég ætti að taka fyrir sem blaðamaður einn dag, datt mér að sjálfsögðu barnaárið i hug. Eftir nokkra umhugsun fannst mér sem svo, að það væru margir færari mér að fjalla um það efni, svo mér datt i hug, að festa á blað nokkrar minningar frá knattspyrnunni árið 1959. Það fer kannski vel á þvi, að gera það á barnaári, þvi mörgum finnst það einungis við hæfi barna eða barnalegt, að vera að dunda timunum saman með lim og skæri og lima blaða- úrklippur i bók. Arið 1959 var um margt minnisstætt. Þá var t.d. i fyrsta skipti leikin tvöföld umferð i 1. deild, þ.e.a.s. heima og heiman. Islenskir knattspyrnumenn voru þá I fyrsta sinn þátttakend- ur i undankeppni fyrir Olympiu- leika og léku i riðli með Dönum og Norðmönnum, svo nokkuð sé nefnt. Snúum okkur fyrst að 1. deild- inni, sem eins og ég sagði hér að framan, var nú i fyrsta sinn leikin heima og að heiman. KR- ingar komu mjög sterkir til leiksþettavoroger skemmstfrá þvi að segja, að þeir unnu alla sina leiki og settu þar með met, sem enn hefur ekki verið slegið. Þeir hlutu alls 20stig og skoruðu 41 mark gegn 6. Næst komu Skagamenn, Fram og Valur, öll með 11 stig. A þessu sést hve miklir yfirburðir KR voru. Þórólfur Beck varð markakóng- ur með 11 mörk. Aðrir i KR liðinu voru, Gunn- ar Guðmannss., fyrirliði, Ellert B. Schram, Sveinn Jónsson,sem nú er form. KR, Felix- bræðurnir, Hörður og Bjarni, Helgi V. Jónsson, lögfræðingur, Garðar Arnason, Heimir markvörður Guðjónsson og Hreiðar Arsælsson, svo ein- hverjir séu nefndir. Það var óli B. Jónsson sem þjálfaði þetta skemmtilega lið, sem ég tel að sé eitt besta lið, sem nokkurt félag hefur teflt fram, fyrr og siðar hér á landi. Það er aðeins Gullaldarlið Skagamanna, sem kæmi til greina að gæti hafa verið betra. Þátttakan i undankeppni Olympiuleikanna vakti verð- skuldaða athygli og eyddu blöð, bæði hér og i Danmörku og Noregi miklu plássi vegna leikjanna. Mér er til efs, að i annan tima hafi islenskir knatt- spyrnumenn fengið jákvæðari skrif. Frammistaða Islands var góð i þessum leikjum og mátti ekki miklu muna, að svo færi, að það værum við, en ekki Danir sem yrðu meöal þátttakenda á Olympiuleikunum i Róm 1960. Fyrsti leikur okkar var gegn Dönum og fór hann fram i Reykjavik i lok júni. Fyrir mig var hann nokkurt áfall, þvi ég hafði varið mark landsliðsins allar götur siðan 1953, en nú sat ég á varamannabekknum. Danir unnu leikinn 4-2 og voru það þeir KR-ingar, Sveinn Jónsson og Þórólfur Beck sem skoruðu mörkin. Liðið var skip- að 7 KR-ingum, 3 skagamönn- um og einum Framara. Ég náði aftur sætinu i landsliðinu gegn Norð mönnum i byrjun júli. Þá voru 7 KR-ingar i liðinu, 3 Skagamenn og einn úr Val. Þetta var hörkuleikur og lauk honum með sigri Islands 1-0 og var það Rikharður er skoraði glæsilega með skalla á 85. min. eftir send- ingu frá Erni Steinsen. Aður hafði Rikharður skorað með skalla, en það mark var dæmt af. Ungur knattspyrnumaður úr KR sem jafnframt hafði lokið stúdentsprófi um vorið, lék sinn fyrsta landsleik og átti hann eft- ir að koma mikið við sögu knatt- spyrnunnar siðar. Þetta var Ellert B. Schram núverandi for- maður KSl. Næst mættum við Dönum á Idrætsparken i Kaupmannahöfn 18.ágúst. Dönum nægði jafntefli i leiknum til að tryggja sér far- 'seðilinn til Rómar. Voru flestir á þvi, að það yrði þeim létt, að hljóta bæði stigin, hvað þá annað. Þess er að geta, að við höfðum ekki þá og höfum raunar ekki enn, sigrað Dani i knattspyrnulandsleik. Þessi leikur við Dani verður mér lengi minnisstæður og gæti ég skrifað um hann langt mál. 1 þessum leik lék ég minn besta landsleik fyrr og siðar, og má raunar segja það sama um aðra leikmenn. Þeir náðu flestir sinum besta leik. Það var hátiðleg stund, er við stóðum og hlýddum á þjóð- söngvana leikna, en að þeim loknum kom Friðrik Dana- kóngur og heilsaði hverjum og einum leikmanni. Leikmenn ganga ánægðir af velli eftir að hafa unnið Norömenn. Rikharður gefur Þórólfi gott ráð, en aðrir á myndinni eru: Helgi Dan, Sveinn Jónsson, Garðar Arnason og Ellert B. Schram. Helgi Daníelsson rifjar upp minningar úrknattspyrnunni Islenska landsliðið sem gerði jafntefli við Dani. Frá vinstri: Björg- vin Schram form. KSÍ, Ríkharður Jónsson fyrirliði, Helgi Daniels- son, Hreiðar Arsælsson, Arni Njálsson, Þórólfur Beck, örn Stein- sen, Þórður Jónsson, Sveinn Teitsson, Sveinn Jónsson, Garðar Arnason og Hörður Felixson. Leikurinn var afskaplega spennandi og vel leikinn af beggja hálfu. Danir byrjuðu með stórsókn, en ekkert gekk. Smátt og smátt náðu íslend- ingar betri tökum á leiknum og á 29. min. sendi Sveinn Teitsson knöttinn i danska markið með góðu skoti og óverjandi fyrir danska markvörðinn. Áfram var barist og oft gerðu Danir harða hrið að marki okkar, en vörnin hélt. Minúturnar liðu hver af annarri og allt leit út fyrir, að Islendingar ætluðu i fyrsta sinn að leggja Dani að velli og það á heimavelli þeirra. En svo fór ekki, þvi miður. Þegar aðeins 8. min. voru til leiksloka tókst Henning Enoksen, sem siðar varð lands- liðsþjálfari Islands, að jafna. Ennþá var ekki öll nótt úti, þvi á lokaminútunni komst Þórólfur Beck frir innfyrir, lék á tvo eða þrjá Dani og skaut, en knötturinn sleikti stöngina utan- verða. Danir fögnuðu jafntefl- inu og þar með höfðu þeir tryggt sér farseðilinn til Rómar næsta ár og þess má geta, að þar stóðu þeir sig vel þvi þeir hlutu silfur- verðlaunin. Það var mikið skrifað um leikinn bæði i islensk og dönsk blöð og hygg ég að islensk knatt- ^pyrna hafi ekki i annan tima hlotið lofsanlegri ummæli. 1 sambandi við þennan leik skeði merkur atburður i islenskri blaðamennsku, þvi 19. ágúst gat að lita myndir frá landsleiknum á forsiðu Morgunblaðsins og voru það fyrstu simsendu myndirnar erlendis frá, sem birtust i blaði hérlendis. Var þessu likt við það er simasam- band var opnað við útlönd. Aðeins var nú eftir leikurinn við Norðmenn, en hann fór fram á Ulleval i ósló. Þeim leik töp- uðum við með 2-1 i jöfnum og spennandi leik. Mark íslands skoraði örn Steinsen KR. Blaðamaður einn dag á Helgarpóstinum hefur aðeins eina siðu til umráða. Nú er ég búinn að fylla hana og verð þvi að láta staðar numið, þótt fátt hafi verið sagt, en fleira er ósagt.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.