Helgarpósturinn - 07.12.1979, Qupperneq 6
6
Föstudagur 7. desember 1979 hp/rjFirpncztl irinn
Texti: Gu
eggjaputtapikkari Myndir: Frið
i
Viðurnefni og uppnefni:
Siggi sæinú
Jón snarsnúningur
Mangi ansvíti
Kristján
og fleiri og fleiri
Gvendur jaki er líklega sá Islendingur núlifandi sem þekktastur er undir viður-
nefni. Hann er líka kallaður Jakinn, til styttingar, en heitir auðvitað opinberlega
Guðmundur J. Guðmundsson. Jakanafnið fékk Guðmundur fyrir vöxtinn og jaka-
lega framgöngu í lögreglustarfi á Siglufirði fyrr á árum.
Viðurnefni hafa alla tíð loðað við fslendinga. Jón Sigurðsson, fyrrum formaður
Sjómannasambandsins, hefur til dæmis haft fleiri en eitt. Stundum var hann
kallaður Jón klofningur, stundum Jón dreki, og Jón forseti og Jón Kvisthagi hafa
lika heyrst. Jón Kvisthagi var reyndar bundið við samninga, þar sem hann átti við
Jón Þjóðhaga að etja. Jón Þjóðhagi, eða Jón hagi, er Jón Sigurðsson forstöðu-
maður Þjóðhagsstofnunar. Þriðji Jón Sigurðssonurinn, núverandi forstjóri
Grundartangaverksmiðjunnar og fyrrum f jármálaráðuneytisstjóri, var kallaður
Jón fjári.
En það er ekkert nýtt að menn
séu uppnefndir á fslandi. A
landsnámsöld var annar hver
maður kenndur við eitthvað
annað en bara fööur sinn. Sum-
ir voru meira að segja skráðir
synir viðurnefnis föður sins.
Ketill hængur átti til dæmis
fyrirson Hrafn Hængsson.
Annars mátti, og má senni-
legast enn, flokka viðurnefni i
fimm flokka.
1. Viðurnefni sem lýsa útliti eða
persónueinkennum viðkomandi.
2. Viðurnefni sem lýsa atburði.
3. Viðurnefni sem einkenna
persónu með sambandi viö aöra
manneskju, venjulega iatur.
4. Viðurnefni sem gefa upp bú-
stað, eða fyrrum bústað við-
komandi.
5. Viðurnefni sem gefa til kynna
atvinnu.
Agætt dæmi um fyrsta atriðið
er Gvendur jaki. „Stóri bor-
inn” var viðurnefnið sem Har-
aldur heitinn Guðmundsson, Al-
þýðuflokksleiðtogi, fékk þegar
myndaruglingur varð í einu
dagblaðanna. Þar birtist mynd
af Haraldi og undir stóð: Stóri
borinn er kominn til landsins.
Það er dæmi um annað atriðið.
Helgi Dan er dæmi um þriöja*
Hriflu-Jónas um fjórða, og Jón
þjóðhagi um það fimmta.
Einar S. Einarsson hefur þá
óvenjulegu tómstundaiðju að
safna viðurnefnum .Einar upp-
nefni er að vestan, og þau við-
urnefni sem hann hefur safnað
eru bundin við Isafjörð og ná-
grannasveitirnar. „Mest er
þetta frá siðustu 30 árum”,
sagði Einar uppnefni við Helg-
arpóstinn. „Þetta er mest fólk
sem maðurkannast við, en ýmis
eldri uppnefni fylgja þó með”.
Einar heldur skrá yfir nöfnin,
og þær sögur sem i kringum þau
eru. „Oft eru þetta bæði
skemmtileg og meinleg viður-
nefni, og stundum ekkert annað
en uppnefni. Vafalitið er það
ekki eins algengt og áður að fólk
fær viöurnefni, en fyrir vestan
og viöar úti á landi er þetta þó i
góöu gengi ennþá. Ég hef safnað
um 500 atriöum og flokkað þau
niður.”
„Sumt eru hrein uppnefni. Ég
man til dæmis eftir Tittlinga*
Björgu og Lárusi vinkil. Þau
voru þekkt um allt land enda
varö dómsmál útaf þeim upp-
nefnum. Björg fór i mál við Lár-
us vegna þessa i kringum strið,
en sú saga öll er varla prenthæf.
Svo eru hrein viðurnefni, sem
hljóta af ýmsum ástæöum.
Gvendur þari hét maður til
dæmis af þvi aö hann var frá
Þaralátursfirði.
Ýmis aukanefni fylgja lika
fólki fyrir vestan, eins og til
dæmis Gvendur með pipuna.
Aðrir fá niðurnefni eftir útliti
sinu og þar er oft um að ræða
öfugmæli. Einn maður var
kallaður sléttbakur, af þvi hann
var með herðakistil. Annar fékk
viðurnefni eftir útlitinu og var
kallaður Kristján hallin-
kjammi, vegna þess að hann
var eitthvað skakkur til höfuðs-
ins.
Atvinna manna ræður þessu
lika. Faðir Ólafs Ragnars
Grimssonar er aldrei kallaður
annað en Grimur rakari. Bjarni
keyrari er einnig til.
Klæðaburður dregur lika dilk
á eftir sér. Stebbi á viöu buxun-
um var t.d. þekkt persóna fyrir
vestan.
Menn hlutu oft viðurnefni af
orðatiltækjum sinum. Þar eru
til nokkur dæmi. Siggi sko, hét
einn, Magni ansviti var annar.
Bjössi heyriðmér og Siggi
sælnú voru aðrir menn.
Atgerfi manna er eðlilegt til-
nefni. Oli sterki var einn kallað-
ur. Annar Siggi Syrefellir,
sem afrekaði þaö einhverntima
aö leggja danskan mann að
nafni Syre i slagsmálum.
Káti-Láki var svo maður kall-
aöur eftir viðmóti sinu.
Menn fá viðurnefni af atburð-
um. Ég man eftir Kristjáni ti-
unda fyrir vestan. Hann var ti-
unda barn foreldra sinna.
t ööru viðurnefnum felst hrós,
eins og til dæmis Valdi kúfisk-
kóngur.
Svo er lika til i dæminu að
menn fá ekki viðurnefni sin fyrr
en eftir dauðann. Jón snarsnún-
ingur er dæmi um það. Hann
átti að hafa sagt við konu sina á
dánarbeðinu að i hvert skipti
sem nú tæki saman við nýjan
karlmann myndi hann snúa sér i
gröfinni.”
Einar bætti við að erfitt gæti
verið að losna við viðurnefni.
Einhver drengur að vestan
hafði verið kallaður Halli hrúka,
og fannst foreldrum hans það
miður. Þau ákváðu að skýra
hann upp þegar hann var
fermdur, og létu hann heita As-
geir. Ekki tók þá betra við. Til
aðgreiningar frá öðrum Geirum
var hann kallaður eftir það:
Geiri bróðiir Halla heitins
hrúku.
Að uppnefna fólk getur verið
ansi skemmtilegt, og um leið
dálitið illkvittnislegt. Stjórn-
málamenn ganga jafnan undir
ýmsum nöfnun meöal almenn-
Jón: „Drekar eru miklar
skepnur”
„Nei, nei, þetta breytti engu
fyrir mig”, sagði Jón Sigurðsson,
fyrrum formaður Sjómannasam-
bandsins, þegar Helgarpósturinn
spurði hann hvort viðurnefnin
hefðu komið illa við hann.
„ Ég var kallaður Jón klofn-
ingur vegna þess að ég stofnaði
allmörg verkalýðsfélög á stöðum
þar sem kommúnistar voru fyrir
með verkalýðsfélög. Þessi félög
min eru flest lifandi enn”, sagöi
Jón.
„Jón dreki, var hinsvegar
stytting úr erindreki, en embætti
mitt hjá Sjómannasambandinu
hét það á sinum tima”.
„Þetta voru miklu frekar hrós-
yrði heldur en annað”, sagöi Jón
þegar hann var spurður hvort
honum hefði þótt þetta miður.
„Þetta eru dugnaðarheiti”, sagöi
. hann. „Drekar eru miklar
skepnur, og i striðinu komu svo
flugdrekarnir. Þetta er merki um
að ég hafi unnið af krafd”.
ings. Kratastjórnin, eða Krata-
strófan, eins og hún hefur verið
kölluð gæti til dæmis verið
svona:
Forsætisráðherrann er Benni
Goodman ., af þvi að fólki í
utanrikisráðuneytinu finnst
hann svo þægilegur i umgengni.
Dómsmálaráðherrann er
Möppu-Vimmi, sem varla
þarfnast skýringa.
Sjávarútvegsráðherra er
Kjartan þorskur, sem heldur
þarfnast ekki skýringa.
Fjármálaráðherrann er
Hvati-krati, sem sömuleiðis
skýrir sig sjálft.
Iðnaðarráðherra er Bragi
bragi, vegna þess hvað auðvelt
hann á að koma saman brögum.
Heilbrigðisráðherrann er sið-
an Magnús gosi, vegna vask-
legrar framkomu i eldgosum.
Og svo var það maðurinn fyrir
vestan, sem aldrei var kallaður
annað en Jón þjófur, vegna þess
að einhverntima var brotist inn
hjá honum og stolið lausamun-
um,!
Guðni: „Áreiðanlega síðastur til
að heyra þetta”
— segir Guðni
kjaftur
„Það veit ég ekki. Ég var
áreiðanlega siðasti maður til að
heyra þetta”, sagði Guðni Guð-
mundsson rektor Menntaskóians
þegar hann var spurður hvenær
hann hefði oröiö var við Kjafts-
nafnið, sem hefur fylgt honum um
langt skeiö.
„Það er óralangt siöan”, bætti
hann við. „Ég held að ástæðan
fyrir þessu hafi verið sú aö ég
þótti taka sterklega til orða”.
„Mér var illa við þetta til að
byrja með, en nú er mér nokkuð
sama. Það er engum manni alveg
sama um að vera uppnefndur,
þegar fyrst fer að kræla á upp-
nefninu, en það venst. Ég hef að
minnsta kosti ekkert gert til að
reyna að losa mig við það. Ég hef
ekki á neinn hátt breytt minum
stil, eða kennsluháttum”, sagði
Guðni.
„Dugnaðarheiti” „Ekki breytt
- segir Jón dreki mínum stÍIM