Helgarpósturinn - 07.12.1979, Síða 11
1
___hnlrjarpn <=:fi irinn Fostudagur 7 • desember 1979
Kosningasjónvarp og
framsækið skemmtiefni
Sennilega eru kosningar eina
keppnisgreinin þar sem allir
þátttakendur geta risið upp að
leik loknum og lýst sig sigur-
vegara á einn eða annan veg.
Kosningar eru lika eina
keppnisgreinin þar sem sigur er
i rauninni ósigur ef sigurinn er
minni en búist var við — og
sömuleiðis ku litill ósigur geta
veriö mikill sigur. Þetta er
kannski dáldið loðið, en þó ekki
loðnara en margt sem maður
hefur eftir stjórnmálamönnum
þessa dagana.
Þettavarað mörguleyti eftir-
minnileg kosninganótt, þótt
bannsett tölvan barnaði reynd-
ar fyrir manni söguna með þvi
að segja fyrir um úrslitin svo
næstum engu skeikaði strax
þegar fyrstu tölur bárust. Ég á
við tölvuna i sjðnvarpinu, þvi
kosninganóttinni eyddi ég vita-
skuld fyrir framan sjónvarpið
til aö fylgjast með leiftursókn og
Framsókn.
Það var búið að rugla kjós-
endur mikið fyrir þessar kosn-
ingar: Framsókn, sem hingaö
til hefur hugsað meira um kú-
gildi en manngildi, kvaðst að
þessusinni ætla að setja mann-
gildið ofar kúgildinu (eöa auð-
gildinu — eða hvernig sem þeir
nú þýða „kapital” hjá Sam-
bandinu). Þetta kom flatt upp á
marga, en hver veit nema fram-
sóknarbændur úti um land taki
nú að leggja ljóö og sögur inn i
kaupfélagsreikninga sina i staö-
inn fyrir lambaket og nýmjólk.
En þaö-voru fleiri en Fram-
sóknarflokkurinn sem komu
kjósendum i opna skjöldu fyrir
kosningar. Sjálfstæðisflokkur-
inn, sem hingaö til hefur verið
talinn hægfara ihaldsflokkur,
kastaði grimunni og boðaði
hvorki meira né minna en bylt-
ingu: Leiftursókn gegn verð-
bólgu. Eða eins og einn kunningi
minn sem býr i nýlegu raðhúsi
sem hann á i félagi við alla
banka og sparisjóöi I Reykjavik
sagði: Ef það á að drepa fyrir
mér verðbólguna með leiftur-
sókn þá er ég búinn að vera, ég
skulda tuttugu miljónir og ætla
að borga sjö og láta verðbólg-
una sjá um þrettán.
Alþýöuflokkurinn boðaði að
sjálfsögðu enga byltingu, enda
væri það andstætt kratisman-
um, og hefði s jálfsagt vakiö ugg
og skelfingu i brjósti gjaldkera
vinaflokka á Norðurlöndum.
Hins vegar voru kratarnir tölu-
vert hortugir og sögðust alls
ekki starfa i öörum rikisstjórn-
um en þeim, þar sem þeir
fengju öllu að ráða — og kváöu
minnihlutastjórnir eiga glæsta
framtiö fyrir sér. Þessu virðast
kjósendur hafa tekiö mark á
með þvi að efla sem mest
minnihluta kratanna.
Alþýðubandalagsmenn sáu aö
nú var fokið i flest skjól, góö ráð
dýr, og gripu til þess úrræðis að
bjóða fram Guðrúnu Helgadótt-
ur. Og auðvitað var hún kjörin.
Guðrún getur allt, segir ólafur
Jónsson, sem er sérfræðingur i
þvi hvað aðrir geta, og nú biöa
menn spenntir eftir að sjá
hvernig Gúðrún fer að þvi aö
gera Alþýðubandalagiö jafnvin-
sælt og Óvitana i Þjóðleikhús-
inu.
Og hafi kjósendur verið
ringlaðir i upphafikosninganæt-
ur, þá skýrðist ekki pólitikin
beinlinis fyrir þeim, þegar
leiftursóknin gufaði upp jafn
leiftursnöggt og hún byrjaði og
eftir stóð sú gamla Framsókn
meö hinn hógværa og ókrýnda
Ólaf Jóhannesson i fararbroddi,
hafandi stóraukið fylgi flokksins
með þvi að hætta við framboö i
einu kjördæmi og fara fram i
öðru; allt saman á leiðinni til
Bessastaða.
A meöan þessi tiöindi gerðust
Helgi Sæmundsson— Hrafn Gunnlaugsson — Jónas Jónasson —
AAagnea J. AAatthlasdóttir— Páll Heiðar Jónsson — Steinunn
Sigurðardóttir — Þráinn Bertelsson
Hringborðið
I dag skrifar Þráinn Bertelsson
og beöið var nýrrá stórtlöinda
voru sjónvarpsáhorfendum
styttar stundir með myndum og
músik og öðru skemmtiefni.
Einn þáttur þessa skemmtiefnis
var vægast sagt sérstæöur, en
það voru svipmyndir frá fram-
boðsfúndi fyrir vestan: Þar var
klæmst og djöflast, æpt og öskr-
að, skipst á persónulegum svi-
virðingum (rosknum ráðherr-
um brigslað um náttúruleysi,
svona rétt til gamans) talað um
aöb jóða fram klofið — og raun-
ar allt tint til,sem frambjóðend-
um þótti liklegt til að vinna
stjórnmálahugsjónum sinum
fylgi kjósenda.
Mér, sauðtryggum Alþýöu-
bandalagskjósandanum, kross-
brá við þessi ósköp. — Þarna er
Kjartan Ólafsson kolfallinn,
sagði ég strax, þvi ég heyröi
hann aldrei klæmast. Enda kom
það á daginn.
Þessi framboðsfundur þarna
fyrir vestan var semsagt frum-
legt skemmtiatriði og vonandi
eiga einhverjir sem þar komu
fram eftir aö taka sæti i út-
varpsráði og losa um þær höml-
ur sem rikja varðandi fram-
komu skemmtikrafta i Rikisút-
varpinu:
Menn sem láta sona þegar
þeir eru að koma hugsjónum
sinum á framfæri — hvaöa kröf-
ur gera þeir þá til skemmtiefn-
is?
Þetta eru framsæknir timar!
J ER EINL/EG
OG FALLEG
Rafvélar og stýringar
Ármúla 38 — Reykjavik — simi 38850
önnumst hverskonar vindingar á raf-
mótorum og ankerum ásamt viðgerðum á
hverskonar rafvélum.
Góð þjónusta. Vanir menn
Simi 38850.
Auglýsingasimi Q
Helgarpóstsins Oh
18-66
Látio
Hörpu
gefa
toninn
Leikandi létt
með Hörpusilki
Málning sem létt
er að mála með
og þekur þétt og vel.