Helgarpósturinn - 07.12.1979, Síða 28
turinrL- Föstudagur 7. desember 1979
9 Þaö hefur löngum verið
grunnt á þvi góða milli
Framsóknarflokksins og Sjálf-
stæðisflokksins .samanber
framsóknarmálsháttinn, sem var
hampað töluvert í kosninga-
baráttunni að „allt er betra en
ihaldið.” En andúðin er nú alveg
gagnkvæm og sagt er að sjálf-
stæðismenn hugsi með hryllingi
til áramótanna 1980/81, þegar
Steingrimur Hermannsson
forsætisráðherra flytur áramóta
ávarp i sjónvarpi á gamlárskvöld
og forseti Islands, herra
ÖlafurJóhannesson flytur
forsetaávarp sitt i sjónvarpi á
nýársdag...
# Og af þvi að við erum að tala
um sigurvegara kosninganna þá
er hér ein saga til viðbótar: Það
gerðist nefnilega á þriðjudag sl.
eftir að kosningaúrslit lágu fyrir
að Jón Sigurðsson Timaritstjóri
birtist skyndilega á ritstjórn
Morgunblaðsins i fylgd með
slatta af guðfræðingum i
einhverjum erindagjörðum.
Fyrrum samstarfsmanni Jóns á
Timanum og núverandi frétta-
hauk á Mogganum , Freysteini
Jóhannssyni, varð þá að orði
þegar hann sá til ferða Jóns:
„Jæja, Jón minn, ertu þá kominn
til að reka endanlega smiðshögg-
ið á það að Óli Jó verði tekinn i
guðatölu...”
9 Og enn um Framsókn. Það
vakti nokkra athygli á lokadögum
kosningabaráttunnar i
Borgarnesi, að þar var kosninga-
stefnuplaggi Framsóknar dreift
með jólapöntunarlista
Kaupfélags Borgfirðinga. Náin
tengsl þar...
9 Jón Sólnes hefur tekið niður-
stöðum kosninganna i
Norðurlandskjördæmi eystra af
stakri karlmennsku. Morgun-
blaðið hefur eftir Jóni að hann
hafi skrifað i dagbókina sina eftir
að úrsMt lágu fyrir: „PóMtikin
búin i biM. sný mér að öðru.”
Akureyringum , sem hittu Jón i
sundlauginni á þriðjudagsmorgni^
komu þessi ummæM spánskt fyrir
sjónir, þvi að þar var gamli
maðurinn glaðbeittur og hélt þvi
fram að nú væri kominn góður
grundvöHur til að stofna almenni-
legan og hreinræktaðan hægri
flokk...
9Þorgrimur Eiriksson verkfræð-
ingur er nú á förum til Kenya til
að mæla fyrir undirstöðum að
gufuaflspipum fyrir jarðhitastöð,
sem þarlendir eru að reisa.
Nokkrar islenskar verkfræðistof-
ur, sem eru aðilar að verkfræði-
þjónustunni Virki.hafa unnið að
undirbúningi virkjunarinnar
nokkur undanfarin ár. Að þeim
undirbúningi hefur verið staðið á
nokkuð annan hátt en að undir-
búningi Kröfluvirkjunar á sinum
tima. t upphafi var sett það
markmið að tveir þriðju hlutar
gufunnar að minnstakosti væru
tryggðir áður en bygging stöðvar-
hússins væri boðin út. Þær fram-
kvæmdir eru nú hafnar, og allt
bendir til þess, að Kenyamönnum
takist að koma sér upp gufwafls-
virkjun. sem virkar...
® Þótt yel virðist að gufuafls-
virkjun Kenyamannastaðið hefur
þó ekki allt gengið eftir áætlun.
Fulltrúi Virkis, sem hefur það
verkefni að vera miHigöngumað-
ur verktakans i Kenya og verk-
fræöistofana hér heima, var fyr-
irskömmu kallaður á fund i Nair-
obi.Hann brá við skjótt og lenti á
flugvellinum þar syðra á tilskild-
um tfma. En þar beið hans send;-
maöur sem tjáði honum að fund-
inum hefði verið frestað um óá-
kveðinn tima. Hann kom aftur
heim á þriðjudaginn og fékk þá
skilaboð um, að fundurinn verði
í þessari bók fjallar Hannes Péturs-
son um líf og list Jónasar Hallgrims-
sonar. Bókin er reist á vandlegri
könnun heimilda og snilldarvel
rimð. „Lestur bókarinnar er
skemmtun og hátíð sem heldur
áfram allt kvöldið og alla nóttina...“
Q.S./Tíminn). „Útkoma Kvæða-
fylgsna er mikill bókmenntalegur
viðburður.“ (J.Þ.Þ./Tuninn). „Eins
og vænta mátti er öll bók Hannesar
hin læsilegasta enda skrifar þar
skáld af umhyggju og ástúð um
annað skáld.“ (H.P./Helgarpóstur-
inn).
„. . . ýmis erindi, btmdin í erindi,
öll brýn. Ég geng þeirra hér í kverinu
og á þau við lesarann.“ - Þessi orð
lætur Þórarinn Eldjám fylgja
hinni nýju kvæðabók sinni.
Þórarinn á stærri lesendahóp en flest
önnur samtímaljóðskáld. Sá hópur
verður ekki fyrir vonbrigðum með
þennan beitta og skemmtilega kveð-
skap.
Thor Vilhjálmsson
TURNLEIKHÚSIÐ
Þetta er heildarútgáfa á ljóðum
Stefáns Harðar, eins sérkennilegasta
og listfengasta skálds samtíðarinnar.
Hér er hin torgæta fyrsta bók
skáldsins, GLUGGINN SNÝR í
NORÐUR, einnig SVARTÁLFA-
DANS og HLIÐIN Á SLÉTT-
UNNI. Bókin er prýdd myndum
eftir Hring Jóhannesson og til
útgáfunnar vandað eftir fongum.
„. . . ber vott um stolt og virðingu
fyrir ljóðinu."
(H.P. /Helgarpósturinn).
Þetta er fyrsta bókin í flokki sagna
um rarmsóknarlögreglumanninn
Margeir. Nýjung á íslenskum bóka-
markaði. GATAN LEYST er
spennandi saga sem gerist í Reykja-
vik og á Akuieyri og leikurinn berst
til Spánar. Umhverfið allt kunnug-
legt og greint frá atvikum sem standa
okkur nærri.
Auður Haralds
HVUNNDAGSHETJAN
Þrjár öruggar aðferðir til að
eignast óskilgetin böm
Ný skáldsaga eftir Thor Vilhjálms-
son, einn leiknasta prósahöfúnd vor
á meðal. Lesandinn er leiddur að
tjaldabaki í leikhúsi áður en sýning
hefst. Við erum stödd í kynlegum
heimi þar sem mörk draums og vöku
eru numin burt. Þetta er sýnishom
af stílgaldri höfundar sem vafalaust
þolir samanburð við hina fremstu
meðal evrópskrar samtíðar sinnar.
Haraldur Jóhannsson
PÉTUR G. GUÐMUNDSSON
og upphaf samtaka alþýðu
Þessi bók fjallar um einn stofnenda
Dagsbrúnar og helsta forusm-
mann í verkalýðsbaráttu á upphafs-
skeiði hennar. Aiarkvert framlag til
verkalýðssögu á Islandi.
Egill Egilsson
SVEINDÓMUR
Saga úr Reykjavik, lýsir lífi drengs á
unglingsaldri, heima og í skóla.
Hver em þau uppeldis- og þroska-
skilyrði sem samfélagið býr honum?
Áleitin og ögrandi bók, rauntrú
lýsing á umhverfi okkar sem ekki
verður vísað á bug. Tímabært
innlegg til umræðna um kjör bama
í samfélaginu.
Ólafur Jónsson
LÍKALEF
Úrval blaðagreina Ólafs Jónssonar
um samtímabókmenntir frá árunum
1963-79. Athyglisverð heimild um
viðbrögð við nýjtun bókmenntum:
í þeim er LÍKA LÍF. Bók fyrir
áhugasama lesendur.
Óvenjuleg reynslusaga, opinská og
hispurslaus enda hefur hún þegar
sætt miklum tíðindum: „... allmikil
nýlunda í íslenskum bókmenntum..
m.a. um rétt konunnar til að lifa
óþvinguðu kynlífi... Auður Haralds
er ágætlega ritfær höfúndur.“ (H.P./
Helgarpósturinn). „Ég spái að bók
þessi veki verðskuldaða athygli."
(E.J./Mbl.)
MANASIIJFUR
Gils Guðmundsson valdi efnið
Hér er að finna úrvalskafla úr
íslenskum endurminningum og
sjálfsævisögum og er fyrirhugað
að safnið verði i nokkrum bindum.
I bókinni eru fjölbreytilegar frá-
sagnir eftir fólk úr ýmsum stéttum,
allt frá séra Jóni Steingrímssyni til
núlifandi manna. Bráðskemmtileg
bók og fróðlegt sýnishom íslenskrar
frásagnarlistar.
Með þessu bindi lýkur útgáfú hins
stórmerka heimildarrits um tíðindi,
menn og aldarhátt í Skagafirði
1685-1847. Aftast er nafnaskrá yfir
öll bindin sem einnig tekur til
skýringagieina.
Bræðraborgarstíg 16 Sími 12923 og 19156
haldinn á mánudaginn kemur — i
London.■
9 Nýlistasafnið er safn sem al-
menningur hefur ekki haft að-
gang að fram til þessa, en i safni
þessu munu vera verk eftir
þekkta höfunda, bæði innlenda og
erlenda. Helsta ástæðan fyrirþvi,
að safnið hefur ekki getað leyft
almenningi að sjá það, sem þar er
geymt, er sú, að húsnæðismál
þess hafa ekki verið upp á það
besta.
Nú munu vera uppi áform um
að flytja safnið i nýtt húsnæði
snemma á næsta ári, og hefur
m.a. veriðkannaðhúsnæði i sama
húsi og Galleri SOM. Þá er mein-
ingin að hafa það opið fyrir al-
menning einn eða tvo daga i viku,
Er það vel,.
§A útvarpsráðsfundum gerast
einatt kostuleg tiðindi ekki sist
þegar fulltrúar flokkanna eru að
,bitast um varðstöður i dag-
skránni. En þar verða lika oft
skemmtileg orðaskipti, enda
margir ráðsmenn og starfsmenn
útvarpsins sem þessa fundi sitja
ágætlega gefnir menn. Við frétt-
um af einum sMkum orðaskiptum
ekki alls fyrir löngu. Þannig var,
að Jón Múli Arnason, sem þykir
virkur i að láta i sér heyra á fund-
um vakti máls á þvi hversu ó-
smekklegt það væri að stjórar
hinna ýmsu deilda hljóðvarpsins
væru si og æ að lesa sjálfir fram-
haldssögur og annað slikt. Þor-
stcinn Hannesson, tónlistarstjóri
hefur Mklega tekið þetta eitthvað
til sin. Hann henti ummæli Jóns
Múla á lofti og endursendi þau:
Það væri að hans mati ósmekk-
legt að þulir hljóðvarpsins væru
að leggja til raddir i aúglýsingum
i sjónvarpinu...
9 Um helgina verður haldin
mikil tónleikahátið poppara og á-
góðinn mun allur renna til liknar-
málefna. Aðstandendur tónleik-
anna sneru sér i upphafi undir-
búningsins til stjórnvalda og
vildu fá vitneskju um hvar i kerf-
inu væri mest þörf á fjármagni á
þessu sviði. Þeir fengu heldur
kuldalegar móttökur og kerfið lét
eins og hvergi væri peninga þörf.
Aðstandendur popphátiðarinnar
telja sig meira aðsegja hafa orðið
þess vara að eftir að fyrirspurn
þeirra kom fram, hafi verið byrj-
að aftur á ýmsum félagslegum
framkvæmdum, sem legið höfðu i
láginni og nefna þeir sundlaugina
við Kópavogshælið sem dæmi...
9 Alltaf er gaman þegar menn
fá að spreyta sig og spjara sig.
Magnús ólafsson, fyrrverandi
prentari og núverandi útlitsteikn-
ari á dagblaðinu Visi, — en til Vis-
is liggja frá okkur, eins og kunn-
ugt er, hlýir straumar umhyggju,
— stundaði i eina tið nám i leiklist
en leiddist svo út i brauðstrit, eins
og fleiri og markvörslu hjá FH.
Siðustu mánuði hefur Magnús
hins vegar látið æ meir að sér
kveða i leiklistinni og einkum og
sérilagi i hinum unga kvik-
myndaiðnaði okkar. Hann fór
m.a. með hlutverk, mismunandi
stór að visu, i Litilli þúfu, Land og
synir og Öðal feðranna. Nú er
Magnús kominn i sveiflu á sviðinu
lika.
Hann fer með titilhlutverk i
farsanum alkunna Þorlákur
þreytti sem Leikfélag Kópavogs
er að æfa...