Helgarpósturinn - 20.03.1981, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 20.03.1981, Blaðsíða 3
3 Holrjr^rpn^tl irinn Föstudagur 20. mars 1981. með málefni sveitarfélaga að gera, en þau hafa aftur á sinni könnu dagvistarstofnanir og skóla, sem tengjast hvað mest lifi barnanna. Það er lika talinn stór galli á bamaverndarlögunum, að þau veita ákaflega litla réttarvernd. Vernd foreldra og barna gagn- vart aðgerðum barnaverndar- nefndanna er t.d. íitil, hvað varð- ar rannsókn mála og úrskurði. Einn barnaverndarmaður getur til dæmis framkvæmt aðgerðir en lagt þær siðan fyrir fund nefndar- innar. Við þetta bætist, að áfrýj- unaraðili i barnaverndarmálum er barnaverndarráð, sem jafn- framt er ráðgefandi fyrir barna- verndamefndirnar! Barnaverndarnefndir eru skip- aðar i öllum sveitarfélögum og nefndarmenn valdir af þeim flokkum sem fara með völdin hverju sinni. Það færist þó i vöxt, að barnaverndarmál heyri undir félagsmálastofnanir eða ráð á stærri stöðum. í Reykjavik starf- ar barnaverndarnefnd i tengslum viö fjölskyldudeild félagsmála- stofnunar. Dómstólar Barnaverndarnefndirnar em samkvæmt lögum dómstólar, sem kveða upp úrskurði i öllum meiriháttar málum, sem undir þær heyra, m.a. sviptingu foreldra á forræði barna sinna, Slikum úrskurðum má siðan áfrýja til barnaverndarráðs, sem er skipað af rikinu. I Reykjavik er barnaverndarnefnd eingöngu skipuð kennurum og skólastjór- um nema hvað ihenni á sæti einn lögfræðingur, lögum samkvæmt. Barnaverdarnefndin i Reykjavik starfar þannig, að eftir að mál hefur borist henni frá dómsmálaráðuneytinu, eða á annan hátt, hlýða nefndarmenn á málflutning starfsmanna fjöl- skyldudeildarinnar sem þá hafa kynnt sér málin. Stundum eru lögfræðingar málsaðila fengnir til viðræðu til að gera grein fyrir sjónarmiðum skjólstæðinga sinna. Oftast er málið leyst með samkomulagi, en stundum þarf að greiða atkvæði. Mismunandi lifsviðhorf nefndar- manna hafa þá að sjálfsögðu áhrif, ekki sfst þegar um er að ræða alvarlegustu málin, sem eru forræðissviptingar m.a. þegar hjón skilja. Það eru lika oft deildar mein- ingar innan nefndarinnar, þegar um er að ræða foreldra, sem hafa verið kærð fyrir misþyrmingar eða vanrækslu barna sinna. Þá eru málin könnuð og m.a. lögð fyrir sálfræðinga og lögfræðinga. Að sumra mati eru dómar i slík- um málum full harkalegir á stundum, þvi séuforræðidæmd af foreldrum gildir sá dómur oftast þar til börnin eru orðin 16 ára. Mörgum finnst að gefa eigi foreldrum tækifæri til að bæta sig, og fá þar með á ný forræðis- rétt yfir bömum sinum. Vanbúnar A höfuðborgarsvæðinu og öðr- um stærri stöðum hafa barna- verndarnefndir i mörgu að snúast af eðlilegum orsökum, og fá fljót- lega reynslu i' þvi að bregðast við hinum ýmsu vandamálum. 1 En frá skólanum berast dag- lega kvartanir um, að.börnin séu illa hirt og vannærð. Nágrannarnir hafa samband við lögregluna og barna- verndarnefndog heimta að eitt- hvaðsé gert í málinu. Faðirinn hefur frétt af ástandinu og knýr á um að fá börnin. En hann er litið betri. Að endingu eru börnin tekin af móðurinni. En hvert fara þau? Tekur betra við, og hvað verður um móðurina, sem sjálf er barnung? Og hvað verður um móðurina sem hefur alið sex börn áður en hún var orðin þritug, þegar barnaverndarnefnd tekur ákvörðun um að dæma af henni umráðaréttinn yfir börnunum — moka út í eitt skipti fyrir öll? Er það lausn að sundra hópnum og setja börnin á stofnanir? Er það lausn að samþykkja barnalög eða eyöa mörgum árum i að endurskoða lög um verndun barna og ungmenna, komast að þvi, að þau séu úrelt og skipa nefnd til að semja önnur lög? minni sveitarfélögum koma hins- vegar færri mál til kasta nefnd- anna, og þær þvi vanbúnar að bregðast við vandamálum. Auk þess valda frændsemi og persónutengsl i fámennum byggðarlögum þvi, að þær eiga oft erfitt með að framfylgja mál- um án þess að önnur sjónarmið en velferðbarnanna,blandist inn i. telja þeir sem hafa endurskoðað barnalagalög þausem i gildi eru. Þvi hefur verið lagt_ til, að starf barnaverndarnefndar verði sameinuð annarri félags- legri þjónustu, svosem æskulýðs- starfi, skólastarfi, heilbrigðis- þjónustu og fjölskylduvernd. — Min skoðun er sú, að barna- verndarnefndirnar komi of seint til skjalanna, það er ekki leitað til þeirra fyrr en i nauðirnar rekur. Þetta er ekki fyrirbyggjandi stofnun. Það vantar bæði alla foreldrafræðslu . undirbúning undir foreldraverkið, og lögfræði- aðstoð fyrirþá sem eru verst sett- ir. Það er ekkert réttlæti i þvi, að umráðarétturinn yfir börnum sé dæmdur af foreldrum vegna fátæktar þeirra eða jafnvel greindarskorts. Að minnsta kosti ekki á meðan þeim leyfist yfirleitt að eignast börn — og um bönn á sliku held ég varla að nokkur hugsi, segir Bragi Jósepsson for- maður barnaverndarnefndar Reykjavikur. Fimm þing — engin lög Barnalögin svonefndu hafa nú veriðlögð fyrir fimm þing án þess að hljóta afgreiðslu, og verða væntanlega lögð fram enn einu sinni á yfirstandandi þingi. Þau fjalla ekki um félagslega stöðu barna, heldur fyrst og fremst svo- nefndan sifjarétt. í þeim eruákvæðium skilgetin börn og óskilgetin, faöerni, framfærslu og innheimtu á framfærslukostnaði (meðlögum), foreldraskyldur, forsjá barna, umgengnisrétt og fleira af þeim toga. Mikilvægasta breytingin á félagslegri stöðu foreldra sem gert er ráð fyrir að verði, er auk- inn réttur feðra óskilgetinna barna. NU er foreldravaldið i rauninni hjá mæðrunum einum, hvort sem þær eru giftar eða ekki, en 1 frumvarpinu er gert ráð fyrir stórauknum rétti bamsfeðra. Það skýrir kannski að ein- hverju leyti hversu erfiðlega hef- ur gengið að fá barnalögin sam- þykkt á Alþingi, að skoðanir um frumvarpið eru vægast sagt af- skaplega skiptar, ekki sist meðal lögfræðinga. Löglærðir menn, sem Helgar- pósturinn hefur haft tal af,benda meðalannarsá, að frumvarpið sé byggt á úreltum grunni og benda meðal annars á, að i þvi er áfram gert ráð fyrir skiptingu barna i skilgetin og óskilgetin, þótt rétt hinna siðarnefndu eigi að rýmka verulega. Þeir benda lika á, að óeðlilegt sé, að barni sé dæmdur faðir miðað við ákveðnar kring- umstæður (sambúð eða hjóna- band), hvort sem hann sé kynfað- ir bamsins eða ekki, eins og gert er ráð fyrir i frumvarpinu. Þarna er i rauninni h'tið framhjá mögu- leikanum á framhjáhaldi og rangfeðrun barna lögfest, segja þeir. , ,Rökin fyrir því að leggja niður mun i lögum milli skilgetinna og óskilgetinna barna og véfengis- mál felast i þeirri viðleitni að reyna að feðra öll böm rétt eftir þvf sem unnt er, samkvæmt þeim réttarfarsreglum og sönnunar- gögnum sem tiltæk eru, og að koma i veg fyrir mismunun sem kann að geta falist i þvi að lög geri mun á bömum eftir þvi hvort þau eru skilgetin eða ekki. Til þess að ná fram þeim markmið- um sem sett eru fram hér að ofan þarf að endursemja frumvarpið að barnalögum. að nokkru leyti. Er þar.um talsvert verk að ræða ”, segir Stefán M. Stefánsson lög- fræðiprófessor meðal annars I álitsgerð þeirri um frumvarpið, sem hann samdi á vegum Háskól- ans. Stefán Már gagnrýnirennfrem- ur það, að f frumvarpinu skuli vera fjallað um réttarfarsmál- efni, sem hann segir að eigi heima í réttarfarslögum fremur en barnalögum. En hann bendir á, að frumvarpið sé vel og ræki- lega unnið, þótt hann sé ekki sammála ýmsum atriðum i stefnumörkun þeirri sem þar kemur fram. Ýmislegt til bóta Vist er, að ýmis ákvæði i barna- lagafrumvarpinu eru til bóta. Auk þess að réttur feðra óskilget- inna barna til yfirráða yfir börn- um sinum er rýmkaður til muna, eins og fyrr er getið, er gert ráð fyrir því í frumvarpinu, að foreldrar hafi jafnan rétt á um- ráðum yfir börnum sinum eftir skilnað. Auk þess er gert ráð fyrir þvf, að óskilgetin börn verði skil- getin eftir ákveðinn tíma i hjóna- bandi eða annarskonar sambúð. Ennfremur er gert ráð fýrir þvi, að barnsfaðernismál megi höfða i varnarþingi móðurinn ár i stað þess, að nú verður það að gerast i varnarþingi föður. Það getur orð- ið ákaflega snúið sé barnsfaðirinn erlendur og kannski með óþekkt heimilisfang i ofanálag. Lög sem rykfalla En lög útaf fyrir sig breyta litlu, allra sist miklir og torskildir lagabálkar. Þeir fá gjarnan að ryk-falla uppi á hillu dómsmálaráðu- neytisins, en allur almenning- ur veit ákaflega litið um réttar- stöðu sina. Allra sist bömin og ungmennin sjálf. Þeim gagnar litið þótt það standi i lögum, að foreldrarnir eigi að vera góðir við þau, gæta hagsmuna þeirra og velferðar ,,i samvinnu við aðra sem hafa með höndum uppeldi, fræðslu og heilsugæslu barna og ungmenna”. Það mætti alveg eins banna fólki að drekka brennivin eða slita samvistum! — Það þarf ekki bara lög. Það verður að útfæra þau og taka til- lit til sjónarmiða bæöi barnanna og foreldranna, og það er lika þýðingarlaust að stefna að ein- hverri fullkomnun i lagasetningu. Fólk er nú einu sinni breyskt, og þvi þarf að reyna að leysa vanda- málin meö velvilja. Þar ræður mestu hverskonar fólk velst til að sinna barnaverndarmálum. Það skiptir mestu, að það sé velviljað og gott fólk, sem lætur ekki ein- strengnislegar hugmyndir ráða ferðinni, segir Bragi Jósepsson formaður barnaverndarnefndar Reykjavfkur i samtali við Helgarpóstinn. En sú stefnumörkun og þær aö- gerðir, sem kunnugir telja, að þörf sé á, eru sjálfsagt ekki vin- sæl verkefni stjórnmálamanna. Þau kosta nefnilega peninga, sem sist virðastvera á lausu þegar um er að ræða mál af þessu tagi. Þær aðgerðir, sem stjórnmálamenn- imir em fjótastir að gripa til, eru að fyrirskipa lokun á sjoppum, og um leið að afgreiðsla skuli fara fram gegnum lUgur. Þar með er „sjoppuhangsi” barna og ung- linga lokið! Og sfðasta dæmið af þessum toga er lokun leiktækja- salar við Laugaveg eftir að lætin þar gengu úr hófi fram og ljóst, var, að börnin komu þar saman til þess að skipuleggja ránsferðir. Kvöldið eftir að leiktækjasalnum hafði verið lokaö hópuðust þau saman í biðskýlinu á Hlemmi i staðinn. Og þau hafa sjálfeagt haft einhver ráð með að skipu- leggja næstu ránsferð þrátt fyrir allt! Ævintýraferð til Norður Ameríku og Mexico Ákveðið hefur verið að efna til hópferðar, til Norður Ameriku og Mexico 22. maí n.k. i 3 vikur Ferðatilhögun: Flug Keflavík-New York—Tampa og gist á hótel Colonial Geteway Inn í St. Petersburg 6 nætur. Síðan verður vikuferðalag um Mexico sem hefst í Mazatlan, einum vinsælasta baðstað Mexico. Skoðað verður það helsta af ströndum og sveitum í Mexico. Næsta vika fer svo í að skoða það besta af Arizona og Nevada. Gististaðir: Mazatlan, Los Mochis, Chihuahua, Copper Canyon, Scottsdale, Saguraro Ranch, Las Vegas, Chicago. Farartæki: Fluvélar, loftkældir langferðabílar, og Vistadome- lestin i Mexico. Aætlað verð 14.800.- íslenskur fararstjóri. Nánari upplýsingar á skrifstofum Alþýðuflokksins simi 15020

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.