Helgarpósturinn - 03.04.1981, Qupperneq 23
23
halrjc=irpn^tl irírirt Föstudagur 3. apr'íl, 198^1. •
Halfdan Mahler sem árið 1978
var aðalforstjóri WHO, alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar, sagði
það ár um áfengismálastefnu, að
tiltæk ráð i þá átt að minnka
áfengisneyslu væru aðallega
fernskonar. 1 fyrsta lagi hærra
áfengisverð, i öðru lagi minni
framleiösla, i þriðja lagi innflutn-
ingshömlur og i fjórða lagi fækk-
un dreifingarstaða áfengis.
Kannski hefur þessi maður rétt
fyrir sér. Ef svo er þá getum við
Islendingar verið harla kátir. Hér
er nefnilega hærra áfengisverð en
annarsstaðar, framleiðslan er
sáralitil, innflutningshömlur
meiri en viðast annars staöar og
færri dreifingarstaðir áfengis
finnast hvergi.
Þaö er þvi kannski engin
tilviljun að við drekkum minna en
aðrir. Ef miðað er við
nágrannaþjóðirnar stöndum viö
vel að vigi. Danir, Sviar,
Norðmenn og Finnar drekka
langtum meira en við. Arið 1979
drukkum við 3.24 litra af hreinum
vinanda. Danir skoluðu niöur 9,1
litra, Sviar 5.9, Finnar 6.3 og
Norðmenn 4,4 litrum á hvert
Sopinn er hættulegur.
Mínnkandi áfengisvandamál
mannsbarn. Frakkar aftur á móti
drukku 15,4 litra á árinu og samt
eru þeir eina þjóðin á vesturlönd-
um sem náð hefur að draga úr
áfengisneyslunni á undanförnum
árum. A árinu 1980, i fyrra,
drukkum við Islendingar reyndar
aðeins minna en árið áður, eða
3.16 litra, en sú minnkum telst
vart vera marktæk. Þróunin hef-
ur verið á einn veg alveg frá
árunum 1916 til 1920, en þá rétt
smakkaði þjóðin það. Þá var
drukkinn tæplega hálíur litri af
vinanda á mann. Siðan hefur
neyslan aukist jafn og þétt, þar til
nú.
Aðeins hafa venjurnar breyst
nú á siðustu árum. Til dæmis
þarf að fara ein tiu ár aftur i tim-
ann til að finna ár, þar sem jafn
litið hefur verið drukkið af sterk-
um vinum ogá siðasta ári. t fyrra
voru drukknir 2.25 lítrar af
sterku, og 2.24 árið 1970. Aukn-
ingin hefur þvi fyrst og fremst
verið i léttu vinunum, og er það i
samræmi við þá verðlagspólitik,
sem rekin hefur verið.
Nú var brennivinið almennt að
hækka i vikunni, og var það vegna
kröfu áfengisvarnarráðs. Brenni-
vinið verður að hækka eigi
neyslan ekki að aukast, segja þeir
og hafa eflaust rétt fyrir sér.En
tölurnar hér að framan gefa til
kynna að vandamál okkar i
þessum efnum sé smávægilegt.
Þó ber að hafa i huga að hér er
enginn bjór, og þó áfengismagnið
i honum sé ekki mikið, er dagleg
neysla hans þeim mun meiri, til
dæmis i Danmörku.
A siðustu árum hefur umræða
um áfengismál verið mikil hér á
landi. Afengisvarnarráð hefur
starfað eins og áður og átt sinn
þátt i þeirri umræöu, en fyrst og
fremst er það þó verk SAA, að hér
á landi hefur staðið yfir nánast
vakning i þessum málum á
undanförnum árum.
Þegar SAA var stofnað, siðari
hluta ársins 1978, höfðu allnokkrir
tslendingar farið til afvötnunar á
Freeport stöðina i Bandarikjun-
A
Fram á siðasta ár var konungs-
ættin sem ræöur Saudi-Arabiu
afar spör á að beita auð og valdi
sem olian hefur fært rikinu til að
seilast til áhrifa i sinum heims-
hluta. Saudi-Arabar hafa eftirlát-
ið Egyptalandi, tran og trak að
kljást um forustuna fyrir rikjum
araba og islamstrúarmanna á
svæðinu frá botni Miðjarðarhafs
til Persaflóa. En i fyrra gerðist
atburður, sem kom valdhöfum i
Saudi-Arabia tilaðendurskoöa þá
afstöðu, að þeir gætu að mestu
látiö öðrum eftir að ráða fram-
vindu mála á þessu svæði. Hópur
ofsatrúarmanna hertók mesta
helgistað islam, Moskuna miklu i
Mekka, og varð ekki þaðan þokað
með góðu, heldur kom til
mannskæðs bardaga i helgidómn-
um.
Valdatilkall Saudi-ættarinnar
er ekki sist á þvi reist, að hún
verndihelgar borgir islam og sjái
um að trúaðir geta farið þangað
skyldugar pilagrimsferðir á til-
hlýðilegan hátt. Arásin á bæna-
húsið var þvi atlaga að valdhöf-
unum og sýndi þeim fram á, að
Saudi-Arabia er ekki ónæm fyrir
umrótinu sem fer um
islamskar þjóðir.
Siðustu mánuði hefur verið að
Nútima fjölbýlishús risa i eyðimörkinni i Dammam
Offramboö á oliu, vopn i hendi
Saudi-Arabiu á næsta fundi OPEC
koma i ljós, hvernig stjórn Saudi-
Arabiu hyggst bregðast viö,
þegar komið er á daginn að
öryggiskennd hennar i eyði-
merkurriki sinu með fullar hend-
ur oliufjár er ekki á rökum reist.
Ófriður tveggja annarra oliu-
rikja við Persaflóa, Iraks og lr-
ans, rak einnig á eftir stjórn
Saudi-Arabiu að taka frumkvæði
að myndun bandalags til að gæta
hagsmuna hinna oliurikjanna á
sama svæði. I siöasta mánuði
lauk fundi Saudi-Arabiu og allra
annarra rikja á vesturströnd
Persaflóa frá Kuwait i norðri til
Óman i suðri. Þar var myndað
bandalag furstaættanna, sem
stjórna öllum þessum löndum.
Það á jöfnum höndum að vinna
gegn þvi að islamskar byltinga-
hreyfingar nái að raska
hefðbundinni sjórnskipan og
girða fyrir að uanaðkomandi öfl
nái hernaðarlegum itökum viö
Persaflóa. Þar er fyrst og fremst
átt við Sovétrikin, sem þegar hafa
náð fótfestu i Suöur-Jemen og eru
að reyna að bæla Afghanistan
undir sig. En jafnframt vilja
furstadæmin á Arabiuskaga
sýna, að þau séu fulifær um að
verjast sjálf sovéskri ásælni,
beinni eða óbeinni, án þess að
vera óþægilega háð Bandarikjun-
um.
Frá þvi bandarisk oliufélög
komu upp oliuvinnslu i Saudi-
Arabiu, hefur rikt náið en óform-
legt bandalag meö Bandarikjun-
um og stjórn landsins. Vegna
mannfjölda i iran og legu þess að
Sovétrikjunum kaus þó
Bandarikjastjórn að efla trans-
keisara til að gerast drottnara
Persaflóa. Eftir að sú spilaborg
hrundi með keisaradæminu, rikir
tilhneiging i bandarisku her-
stjórninni til að afla bandariskra
flota- og flugstöðva á þessum
slóðum, og þar er auðvitað Saudi-
Arabia ofarlega á blaði.
Saudi-ættin hefur dregiö þver-
öfugan lærdóm af falli Irans-
keisara fyrir islamskri byltingu.
Sá atburður sýnir að hennar
dómi, að visasti vegur til að fyr-
um. En þegar opnuð var hliðstæð
stöð hér á Islandi komst fyrst
alvarlegur skriður á málin. A
þeim þremur árum sem liöin eru
siðan stöðin á Silungapolli var
opnuð, hafa um þrjú þúsund
manns dvalið þar til lækninga.
Það er óhætt að segja að það er
mikill fjöldi i svo fámennu landi.
En alltaf bætist nýtt fólk við.
A siðasta ári gengu um þúsund
manns i gegnum afvötnunarmeð-
ferð hjá SAA, fyrst á Silungapolli,
en siöan i svokallaðri eftirmeð-
ferð að Sogni eða Staðarfelli. Af
þessum þúsund voru aðeins um
tiu sem voru að koma i annað
sinn, þannig að þetta er ekki sami
hópurinn á ferðinni aftur og aftur.
Stöðugt bætast nýir við.
Þeirri spurningu verður sjálf-
sagt aldrei svarað til hlíiar
hvenær maður er oröinn alkohól-
isti. En almennt er talið, að um
það bil einn af hverjum tiu
drykkjumönnum missi stjórn á
drykkju sinni, gerist ofdrykkju-
menn. Ef farið er vægt i þessa
tölu má reikna með,að á tslandi
séu milli 12 og 15 þúsund
alkohólistar. Ef einfaldur talna-
leikur er notaður má þvi reikna
með að með sama áframhaldi
verði búiö að þurrka hvern ein-
asta alkohólista eftir svona 20 ár,
ef miðað er við 1000 á ári.
En auðvitað er þetta ekki svona
einfalt. Alkohólisminn er nú éinu
sinni þannig að fólk áttar sig ekki
á honum fyrr en það er oröið tals-
vert langt leitt. Og á meðan
drukkið er á tslandi, þá koma
alltaf fram nýir og nýir
alkohólistar..
Bæði SAA og áfengisvarnarráð
vinna fyrirbyggjandi störf.
Afengisvarnarráð safnar saman
upplýsingum um þessi mál, og
vinnur með áfengisvarnarnefnd-
um um allt land, en i þeim eiga
sæti um 800 manns. SAA rekur
talsvert viðamikla fræðslu i
skólum og stofnunum og er þar að
auki með regluleg námskeið fyrir
aðstandendur alkohólista. Nú og
svo náttúrlega stuðlar áfengis-
varnarráðiö að því að brennivinið
lækki ekki i verði.
En það er kannski ekki allt
unnið með þvi að fækka áfengis-
sjúklingum. Þeir eru ekki nema
litill hluti af drykkjumönnum,
þótt þeir drekki eflaust sinn
skammt og vel það. Það er nefni-
lega talið að drykkjusýki sé ekki
hægt að, kenna um nema þriðja
hluta af öllu þvi tjóni sem veröur
vegna áfengisneyslu. Tveir þriðju
af tjóninu verða til bara af hóf-
drykkju. Sama hlutfall á við um
dauðsföll af völdum áfengis
Aðeins einn þriöji þeirra er af
völdum alkohólisma. Svo ekki sé
minnst á öll slysin, ofbeldiö og svo
framvegis.
Ölafur Haukur, áfengisvarnar-
ráðunautur, segir islensku
áfengislöggjöfina góða þrátt fyrir
þá gagnrýni sem hún hefur orðiö
fyrir. Hann segir aö það sé ekki
við hana að sakast, heldur séu
það reglugeröir, sem unnar
eru eftir lögunum sem kannski
séu athugunarverðar.
Framkvæmd laganna mætti
kannski vera öðruvisi.
En þegar á heildina er litið
finnst mér eins og við Islendingar
getum dável við unað, þó eflaust
megi finna að drykkjuvenjum. Þá
drekkum við talsvert minna en
þjóðirnar i kringum okkur og fyr-
irbyggjandi starf er unnið af
krafti. Og meðferöarmögu-
leikarnir hjá okkur eru bæði betri
og meira notaðir en hjá, ég held,
öllum öðrum þjóðum. Og á
meðan áfengis verðið heldur
einnig áfram að hækka, þó ekki sé
nema i samræmi við verðbólg-
una, þá getum við veriö nokkuð
örugg um að þetta ástand breytist
ekki til hins verra.
YFIRSÝN
eftir
Guðjón
Arngrimsson
POI
irgera hollustu islamskrar þjóöar
er að stjórnendur hennar gerist of
háöir Bandarikjunum, helsta
bandamanni Israels. Saudi-ættin
hefur þvi engar undirtektir veitt
bollaleggingum Bandarikja-
manna um bandariskar her-
stöövar við Persaflóa, en sækir
þeim mun ákafar aö efla vopna-
búnað sins eigin hers með
bandariskum vopnum. Og meö
stofnun formlegs bandalags hefur
Saudi-Arabia tekið minni fursta-
dæmin, sem sum hver eru
sannkölluö dvergriki, undir sinn
verndarvæng, i og meö til að geta
afstýrt þvi að eitthvert þeirra
þiggi þá bandarisku hersetu, sem
að dómi Saudi-ættarinnar væri
vis til að verða tilefni ókyrrðar og
ólgu á svæðinu.
Jafnframt þvi sem bandalag
rikja á Arabiuskaga er sett á
laggirnar, hyggur Saudi-Arabia
til hreyfings á öðrum vettvangi, i
OPEC, samtökum oliusölurikja.
Þar hyggjast saudi-arabar i vor
gera úrslitatilraun til að ná
ótviræðri forustu og móta stefnu i
oliuframleiðslu og oliuverðlagn-
ingu eftir sinu höfði.
Langt er siðan Jamani, oliu-
málaráöherra Saudi-Arabiu,
lagði til að framleiöslu- og
verðsveiflum á oliumarkaði yrði
afstýrt meö þeim hætti, að OPEC
ákveði verðlagningu olíu langt
fram i timann eftir ákveðnum
reglum og taki að sér að sjá
heimsmarkaðnum fyrir tilteknu
magni hráoliu. Hingað til hefur
öðrum OPEC-rikjum, sem vilja
fá sem mest fyrir oliuna á líöandi
stund og er ósárt um þótt oliu-
verðsveiflur leiki grátt atvinnulif
vestrænna iðnrikja, tekist að
hindra að tillögur Jamani nái
fram aö ganga. En nú háfa þær
aöstæður skapast á oliumarkaði,
aö saudi-arabar telja runniö upp
hentugt tækifæri til að hafa sitt
mál fram.
Saudi-Arabia hefur aukiö oliu-
framleiðslu sina, og er hún nú
komin upp i 10 milljónir oliufata
á dag. Samtimis hefur það gerst,
að eftirspurn eftir oliu hefur
eftir
iMagnús
Torfa
ölafsson
minnkað. Þvi veldur margt.
Vetur hefur reynst i mildara lagi
bæði i Evrópu og Norður--
Ameriku. Samdráttur i atvinnu-
lifi iðnrikja dregur lika úr oliu-
notkun. Dýra bensinið hefur vald-
ið minnkandi akstri. Mest munar
þó um að oliuinnflutningur
Bandarikjanna hefur á tveim
árum minnkað úr 9 milljónum
oliufata á dag niður i 5.5 milljónir
oliufata.
Afleiðingin af þessu öllu saman
er offramboð á oliu um þessar
mundir. Lönd eins og Libýa, Alsir
og Nigeria, eiga i erfiðleikum að
koma sinni oliu út á verðinu sem
uppersett. Á Rotterdammarkaði
er verðiö á oliufatinu komið niður
i 37 dollara og spáð að það muni
enn hreyfast niður á við.
Vitnast hefur að stjórnendur
oliumála i Saudi-Arabiu og þrem
öðrum oliurikjum við Persaflóa
komu saman i kyrrþey fyrir hálf-
um mánuði. Umræðuefniö var
stefnan i oliuverðlagsmálum á
fundi OPEC i Genf i næsta
mánuði. Fyrir Saudi-Arabiu
vakir aö fá fulltingi nágranna
sinna og bandamanna til að knvia
fram á fundinum, sem setja á 25.
mai, samþykkt um að oliuverð
fylgi hér eftir visitölu, sem sett sé
saman af verðbólguhraða og hag-
vexti i iðnrikjunum, sem oliuna
kaupa og sjá oliurikjunum fyrir
varningi i staðinn.
Nú telja saudi-arabar rétta
timann til að hafa sitt mál fram i
þessu efni. Ofmettaður oliu-
markaöur getur leitt til verð-
hruns, ef Saudi-Arabia og nokkrir
aðrir stórframleiðendur taka sig
til og auka enn framleiðslu og
framboð.
Að baki áherslunni sem lögö er
á verðlagningartillögu Jamani
felst ósögð hótun um verðstrið,
þar sem Saudi-Arabia er i
langtum sterkari stöðu en liklegir
andstæðingar.