Helgarpósturinn - 24.04.1981, Blaðsíða 15

Helgarpósturinn - 24.04.1981, Blaðsíða 15
helaamósturinn Föstudagur 24. apríl 1981 15 Maðurinn bak við nafnið: Sverrir Kristinsson Silla og Valda-húsið á horni Vesturgötu og Ægisgötu hefur tekið á sig upprunalega mynd. (Mynd: Jim Smart). Silla & Valda-húsið í upprunalegt horf: Hundrað ára og orðið sem nýtt Kynntu þér kjörin! BINDINDi BORGAR SIG. ABYRGÐ H r TRYGGINGAFELAG FYRIR BINDINDISMENN Umboðstélag ANSVAR INTERNATIONAL LTD. Lágmula 5 -105 Reykiavik-simi 8 35 33 Þeir Reykvíkingar, sem ára- tugum saman hafa haft fyrir aug- unum ..Silla og Valda-húsið” á horni Ægisgötu og Vesturgötu, hafa margir hverjir tekið eftir þvi, að á þvi hafa orðið algjör stakkaskipti að undanförnu. Þetta fyrruin lágreista, forskal- aða timburhús með gapandi verslunarglugga hefur fengið á sig sina upprunalegu mynd . Ef ekki orðið eins og það var þegar það var byggt, fyrir réttum hundrað árum, þá að minnsta- kosti ákafléga nærri þvi. — Það var varla vinnufriður i hiisinu um helgina. Fólk kom striðum straumum til að forvitn- ast, segir Þorsteinn Jónsson for- stöðumaður Listasafns Alþýðu- sambands tslands, en hann keypti húsið af ASI, sem aftur hafði fengið það að gjöf frá Þorkeli Valdimarssyni. syni Valda. Astæöan fyrir gjöfinni var sU, að Alþýðusambandið var stofnað i hUsinu á sinum tima, þegar Ottó N. Þorláksson bjó þar. Það er þvi tengt verkalýðshreyfi ngunni órjUfanlegum böndum og vel við hæfi, að einmitt íorstöðumaður Listasafns alþýðu sé nU orðinn eig andi þess og endurreisi það i þeirri mynd sem þaö var, þegar verkalýðshreyfingin á íslandi varö til innan veggja þess. — Ég gaf tuttugu milljónir fyr- ir hUsið á sinum tima og reikna með, að með viðgerðarkostnaði kosti það mig um 50 milljónir gamalla króna, segir Þorsteinn i samtali við Helgarpóstinn. Upphaflega var ætlunin að flytja inn i hUsið fyrsta mai, á fri- degi verkalýðsins. Það virðist þó ekki ætla að standast, að sögn Þorsteins, þvi viðgerðin hefur eitthvað tafist. — Þó býst ég við, að ég geti byrjað aö flytja mubblurnar inn fyrsta mai, segir hann. Hæð hUssins hefur öll verið endurnýjuð, og reynt að fara i einu og öllu eftir þeim leyfum af klæðningu i lofti, á gólfi og veggj- um, sem komu I ljós þegar rifið var innan Ur hUsinu. Risið verður hinsvegar látið halda sér eins og það a-, aðeins gert við panelþiljur og gólffjalir þar sem þess gerist þörf. Að utan hefur húsið verið fært i upphaflegt form og meðal annars farið eftir ljósmynd sem var tekin af börnum að leik fyrir utan húsið árið 1901. Þá var hægt að miða stærð Utskorinna lista i kringum glugga og dyr við för eftir gamla og horfna lista, sem komu i ljós, þegar forskalningin var brotin. En þegar það var gert kom lika i Ijös, að tvær hliðar hUssins voru algjörlega ónýtar vegna vatns, sem hafði runnið niður með stóru verslunargluggunum, sem voru á hUsinu til skamms tima. Einu Utlitsbreytingarnar á hús- inu er viðbygging, sem er fyrir- huguð á austurhlið hUssins, þar sem er gert ráð fyrir borðkrók og bakdyrum Ut i garð. . Og þegar viðgerðum og endur- nýjun þessa gamla hUss er lokið bætist enn ein skrautfjöðurin i eina af örfáum heillegum hUsa- röðum frá gömlum tima, sem eft- ir eru i Reykjavik. ÞG Liklega dettur fáum I hug i sömu andránni ástriðufuilur bókasafnari og umsvifamikill fasteignasali. Þetta tvennt er þó að finna i þeim manni, sem stendur nú I þvi að gefa út þá vönduðustu útgáfu á fornum handritum sem enn hefur verið ráðist i. Skarðsbók, perlu evrópskra miðaldahandrita og dýrasta bók sem gerð hefur verið á tslandi til þessa, og þótt viðar væri leitað, sem hann gefur út i samvinnu við Stofnun Arna Magnússonar. Bókin á að koma út i næsta mánuði og áskriftarverð hefur þegar verið ákveðið 4695 krónur. Sverrir Kristinsson i Eigna- miöluninni er ekki gamall maður, þegar hann ræöst i þetta stórvirki upp á eigin spýtur. Hann lauk stUdentsprófi frá MA árið 1965 og er þvi 36 ára gam- all. Eftir stUdentspróf var hann við laganám i Háskólanum og lauk prófi i forgreinum, en hætti eftir þaö og fór Ut i fasteigna- sölu. Skömmu siðar gerðist hann jafnframt bókavörður og framkvæmdastjóri Hins is- lenska bókmenntafélags. — Ég hef stundaö bókasöfnun i yfir 20 ár, byrjaði að safna bókum um fermingu og hef siðan keypt bækur eftir efnum og ástæðum. Fyrstu árin gáfust mörg gullin tækifæri til að gera góö kaup, ekki sist hjá forn- bókasölum. NU hefur verölag á gömlum bókum hinsvegar hækkað mikiö, þótt áfram sé hægt að kaupa margan góðan gripinn. — Hvernig er þessi mikli bókaáhugi til kominn? — Ég get eiginlega ekki skýrt það nema með þvi, að þaö var alltaf mikill áhugi á góðum bók- um á heimili minu. Bókasöfnun Arna MagnUssonar höfðaöi lika mjög mikið til min þegar ég las um hana i barnaskóla. Ég varð strax geysilega hrifinn af henni og hef alltaf dáö hann mjög mikið segir Sverrir Kristinsson. NU á Sverrir gott safn bóka eftir islenska gullaldarhöfunda og talsvert af fágætum bókum, þar á meðal talsvert af ljós- prentunum af islenskum hand- ritum. Ennfremur bókaskrár og handritaskrár sem hann liggur yfir öllum stundum þegar hann á fri frá daglegum störfum. Það er einmitt mikilvægur liður i söfnuninni. Með þvi fylgist hann með Utgáfum erlendis og fram- boði á sjaldgæfum bókum og gerir siöan ráöstafanir til að Ut- vega sér þær. Til þess nýtur hann góðra sambanda i „bransanum”, heima og er- lendis sem hann hefur Utvegað sér gegnum árin. ] Og þegar bækurnar eru komnar i hendur Sverris er stundum eftir að þvo þær, binda inn, lagfæra og láta smiða á þær spennur, og það eykur aö sjálf- sögðu enn á kostnaðinn við þessa mjög svo þjóölegu tóm- stundaiðju. — JU, það er rétt, að fast- eignasalan veitir mér betur ! tækifæri til aö stunda bókasöfn- j un en ef ég væri i föstu starfi, | þótt henni fylgi samt gifurleg FERÐA- TRYGGING ÁBYRGÐAR Sameinar 7 tryggingaþætti í eina tryggingu með það fyrir augunv að ferðafólk fái sem fullkomnasta tryggingavernd gegn vægu gjaldí: • ferðaslys • læknis- og ferðakostnaður • farangur • ferðarof • ferðaskaðabótaskylda % skaðabótaábyrgð • réttarvernd Auk þess nýtur þú SOS-þjónustu. SOS—international veitir ferðamönnum/ sem lenda i slysi eða alvarlegum veikindum alla nauösynlega hjálp og þjónustu og greiðir allan krmtnað Sverrir Kristinsson vinna. Það má segja, aö þaö hafi að nokkru leyti oröið til þess, aö ég fór Ut i þetta starf, segir Sverrir. Hann hefur lika notfært sér þessa möguleika Ut i ystu æsar. Fyrir ári flutti Eignamiðlunin og HIB i sama hUsnæöi að Þing- holtsstræti 3. Starfsliðið er sameiginlegt að hluta og Sverrir getur starfað við hvorttveggja samtimis og bæði viðskiptin og bókmenntirnar njóta góðs af. Þaö að reka einkafyrirtæki hefur lika gert Sverri kleift að verja miklum tima til vinnu við Utgáfu Skarðsbókar nU um margra mánaða skeið og hann segir að þann hátt muni hann hafa á það sem eftir er af árinu. — Það er gifurleg vinna aö fylgjast meö þessu, afla efnis i bókina frá ýmsum löndum og fylgjast meö lit greiningu, filmugerð, prentun og bókbandi og sitja fjölmarga fundi meö Ut- gáfustjórn. Þetta er heldur ekk- ert smáræðis verk, 314 siöur meö 430 myndskreytingum og upphafsstöfum og litaum- feröirnar I prentuninni eru ekki bara fjórar eins og i venjulegri litprentun, heldur fimm til sex. Þetta er þaö seinlegt, að þaö verður ekki hægt aö fullbUa nema hluta af upplaginu i ár, þótt ótrUlegur fjöldi manna og fyrirtækja vinni aö verkinu. Upplagiö verður um þUsund ein- tök á innanlandsmarkaöi og fyrirhugaö er að selja eitthvað erlendis. Segir Sverrir Kristinsson bókasafnari og fasteignasali og ætlar alls ekki aö láta staöar numiö við svo bUið. Næsta verk- efni er þegar komið á stokkana. Það er Utgáfa á Nikulássögu, en handritið að henni er i eigu kon- unglega bókasafnsins i Stokk- hólmi en er sem stendur i Arna- safni þar sem verður byrjað að ljósmynda þaö einhvern næstu daga. Kynnist yöar eigin landi Þaö geriö þér bezt meö því aö gerast félagi í FERÐAFÉLAGI ÍSLANDS Árgjaldinu er alltaf í hóf stillt og fyrir þaö fáiö þér Árbókina, sem ekki fæst í bókabúðum, og mundi kosta þá mun meira en félagsmenn greiöa fyrir hana meö árgjaldinu. Ár- bækurfélagsinseru orönar 54talsins og eru fullkomnasta íslandslýsing, sem völ er á. — Auk þess aö fá góöa bók fyrir lítið gjald, greiöa félagar lægri fargjöld í feröum félagsins og lægri gistigjöld i sæluhúsum. ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERA í FERÐAFÉLAGINU. Gerizt félagar og hvetjiö vini yöar og kunningja til aö gerast einnig félagar og njóta hlunnindanna. — /ffi\ FEROAFÉLAG ÍSLAKDS Öldugötu 3 — Reykjavík Símar 19533 og 11798. Fasteignasali og bókasafnari í einum og sama manninum

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.