Helgarpósturinn - 24.04.1981, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 24.04.1981, Blaðsíða 24
hnljarpnczt, ,rinn Föstudagur 24. april 1981 Flugleiðir geta nú boðið sérstök far- gjöld, sem háð eru ákveðnum reglum um farpöntun, greiðslu og ferðatíma. Far- gjöld þessi eru tiltölulega ódýrustu gjöldin, sem boðin verða í sumar. Apex fargjöldin gilda alla daga nema laugardaga og sunnudaga. Þau koma sér mjög vel fyrir þá sem geta gengið frá fastmótaðri ferðaáætlun með frágeng- inni farpöntun og greiðslu a.m.k. 14 dögum fyrir brottför. Apex til eftirfarandi borga kosta, sem hér segir: Til Kaupm.hafnar kr. 2.539,- Til Osló 2.316,- Til Stokkhólms 2.896,- Til Glasgow 1.892.- Til London 2.189- Til New York 3.830.- Til Chicago 4.096.- Til Luxemborgar 2.055,- Apex fargjöldin gilda um ferðir báðar leiðir. Flugvallarskattur er ekki innifal- inn. Gjöldin eru háð samþykki stjórn- valda og gengi íslensku krónunnar. Apex fargjöldin eru einföld leið til að halda niðri ferðakostnaði fyrir einstakl- inga og hópa. Starfsfólk Flugleiða, söluskrifstofur, umboðsmenn og ferðaskrifstofur gefa allar nánari upplýsingar um skilmála Apex fargjaldanna. FLUGLEIDIR Traust fólkhja goöu felagi • Við heyrum á framámönnum i verslunar- og viðskiptalifinu, að þeir biði spenntir eftir þvi að sjá hvernig stjórnvöld bregðist við á fridsgi verslunarmanna, 1. mai et' ír rétta viku en á þeim droltinsdegi rennur út verðstöðv- unin sem nú gildir. Raunar túlka þessir aðilar lögin þannig, að á þessum degi renni út lögin um veröstöðvun sem gilt hafa allar götur frá þvi um 1970, eða i ára- tug, og muni ýmsir vera tilbúnir að láta á það reyna hvort verðlag verði þar meö orðið frjálst i land- inu. Geta menn þvi allt eins búiö sig undir verðsprengingu nema rikisstjórnin gripi i taumana fyrir þennan tima og framlengi verð- stöðvunina, sem auðvitað er lang- liklegast.... • Meira úr viðskiptalifinu. Kristinn Finnbogason, allsráö-' andi hjá íscargó er nú erlendis i óöa önn að ganga frá leigu á far- kosti til að halda uppi Amster- damferöum félagsins i sumar og til aö ganga frá öðrum nauösyn- legum undirbúningi fyrir þetta farþegaflug. Menn á hans vegum munu lika þessa dagana óspart bera viurnar i gamalreynda flug- menn og flugstjóra hjá Flugleið- um til aö fá þá til að stýra nýju leiguflugvelinni, þegar áætlunar- flugið til Amsterdam byrjar með vorinu... • Kristinn Finnbogason kemur einnig vfðar við sögu um þessar mundir. Þaö er fullyrt i okkar eyru aö hann hafi nýverið fest kaup á húsnæöi Sælgætisgerðar- innar Freyju við Lindargötu. Þetta er töluvert mikiö hús en hvort Kristinn hefur hugsaö sér að flytja þangað skrifstofuhald og 1 afgreiðslu íscargó eða nota á ein- 1 hvern annan hátt, getum við ekki 1 upplýst... • Fleiri aðilar hafa staðið i husakaupum nýverið. Til að mynda höfum við sannfrétt að Hekla sé búin að selja húsnæði P. Stefánssonar við Hverfisgötuna og kaupandinn sé Hljómtækja- deild Karnabæjar, sem þeir stjórna nú eftir skiptin á Karna- bæ Pétur Björnsson og Bjarni Stefánsson.... • Alltaf öðru hverju freista Is- lendingar gæfunnar erlendis á ýmsum sviðum en oftast með misjöfnum árangri. Systurnar Linda Walker og Janis Carol gerðu hér garöinn frægan fyrir nokkrum árum sem dægurlaga- söngkonur en héldu siðan til Bret- lands i leit að ævintýrum og aukn- um tækifærum. Þeim hefur vegn- að bærilega og eru núna i hópi kórstúlkna i hinni frægu sýningu i London á söngleiknum Evitu og þykir það töluverður heiður i þeirri hörðu samkeppni sem er meðal skemmtikrafta i þessari heimsborg leikhússlifsins.... . • "Það vill oft veröa með mann- skepnuna á vorin eitis og kýrnar. Hún kann sér ekki læti og sést ekki fyrir, þegar hún sleppur út i góða veðrið i fyrsta sinn eftir langan og strangan vetur. Þaö fengu þeir læknar að finna, sem voru á slysavakt á Brogarspital- anum um páskana. Það var met- helgi hjá þeim, aðsóknin gifurleg, og mest var um þaö sem þeir kalla sin á milli „góðviðrisslys”, Flestir hinna slösuðu voru skiöa- menn, hestamenn og hjólreiða- menn, og talsvert mörgum hafði tekist að slasa sig heima undir húsvegg, viö fyrstu garöyrkju- störf vorsins.... ® Það eru ekki aðeins sjúkling- arnir á Slysavarðstofunni sem eru illa á sig komnir, þvi starfs- fólkið þar — aðallega hjúkrunar- konurnar — er orðið langþreytt á likama og sál vegna of mikils vinnuálags við bágbornar að- stæður. Og afleiðing þessa er sú, aö nú hafa samkvæmt heimildum 12 hjúkrunarkonur þar, sagt upp störfum. Það verður fróðlegt að fylgjast með þvi, hvernig gengur að fylla upp I þær stööur sem losna, þvi hjúkrunarfólk mun allt annað en áhugasamt um að dæma sig til amsturs og erils á slysa- deildinni, þar sem deildin er undirmönnuð og aðstæður ekki alltof beysnar þrátt fyrir nýtt og betrumbætt húsnæði.... • Það eru eflaust fáir sem gera sér grein fyrir þeim upphæðum sem einstakar deildir iþrótta- félaganna velta á miili handanna á ári hverju. Stærsti útgjalda- liðurinn liggur i launum þjálfara og einnig eru sum liðin farin að umbuna leikmönnum með fjár- styrkjum, s.s. bilastyrkjum, greiðslu húsaleigu. svo ekki sé minnstá riflega lánafyrirgreiðslu á bestu kjörum. Mánaðarlaun þjálfara i 1. deildinni i handbolta á liðnum vetri voru mjög mishá eftir félögum, en austantjalds- þjálfararnir tveir, — Bogdan hinn pólski hjá Vikingi og Rússinn hjá Val — munu hafa verið þeir launaHæstu. Areiðanlegar heim- , ildir spgja laun þeirra fyrir, 10 mánaða stopula vinnu hafi verið 12-16 milljónir króna, auk þess sem ýmis önnur útgjöld fylgdu. Þessi upphæð mun sist of hátt talin, en sá innlendi þjálfari sem talin er komst næst þessum launum, en Olafur Jónsson hjá Þrótti, sem jafnframt þjálfun lék einnig með liði Þróttar. Meira að segja þriðju deildarlið i hand- boltanum eins og tam. Stjarnan i Garðabæ veltu um 25 milljónum á þessu keppnistimabili og stærsti hluturinn fer i þjálfaralaun. Segi menn svo að peningar séu ekki með I spilinu, þegar iþróttir eru annars vegar.... • Forkólfar ferðaskrifstofanna naga sig mjög i handarbökin þessa dagana. Astæðan? Jú, nú er orðið eða alveg að verða uppselt i allar þær sumarleyfisferðir sem boðið er upp á. Siðastliðin tvö ár hefui- nefnilega veriö talsverður samdráttur i ferðum landans til sólarlanda og fátt benti til þess að nein breyting yrði á þeirri þróun nú i sumar. Ferðaskrifstofurnar ákváðu þvi að draga saman seglin og bjóða i sumar uppá færri ferðir en oft áður. Hinn harði vetur og sparsemi ferða - langa siðustu tvö sumur, hefur hins vegar orðið til þess að nú vilja allir til útlanda i sól og sumaryl, en þá er bara framboð af ferðum minna en oft áður. Það er oft erfitt að spá i framtiðina, kannski sérstaklega i ferða- mannabransanum og þvi hafa islensku ferðaskrifstofurnar fundið áþreifanlega fyrir. Aður höfðu þeir nóg af ferðum en of fáa kúnna, en nú vantar fleiri ferðir en nóg er af viðskiptavinunum. Leita nú ferðaskrifstofurnar ráða til að fjölga ferðunum. en það er erfitt þvi samningar við erlenda aðila eru jafnan gerðir með löngum fyrirvara. Já, það er vandlifað i henni veröld....

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.