Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 15.05.1981, Qupperneq 3

Helgarpósturinn - 15.05.1981, Qupperneq 3
3 hnlrjarpncztl irínn Föstudagur 15. maí 1981 Klósettpapplr, smokkar, dömu- bindi og fleira álíka aöiajöandi, sem hefur verið sturtað niður úr 40 þúsund klósettum I Arbæjar- hverfi, Breiðholti og hluta af Kópavogi. Mikili hluti af þessu vellur Ut úr yfirfallinu á Foss- vogsræsinu i fjörunni við Shell I Skerjafirði. Sjálft ræsið hefur verið lengt út I stórstraumsfjöru- borð, en það hefur breytt litlu. haft er i huga, að þessir mávar taka fæðu að nokkru leyti við skólpútrásir og á sorphaugum. Mávarnir geta slðan dreift þess- um sýklum viða, t.d. I opin vatns- ból á beitarlönd og i opnar hrá- efnisgeymslur fiskimjölsverk- smiðjanna. segir Guðni Alfreðs- son. Það skal tekiö fram að Gvendarbrunnar vatnsból Reyk- víkinga, eru lokaðir. Hættan á að sýklar berist þangað er þvi hverf- andi, en sama er ekki að segja um' nágranna sveitarfélögin. Botndýralíf hverfur Bæði Liffræðistofnun Háskól- ans og Hafrannsóknastofnun hafa staðið fyrir rannsóknum á botn- dýralifi við útrennslisop skólps á Reykjavikursvæðinu. Þær virðast benda til þess, að áhrif frá- rennslisins fari vaxandi, siðast 1977 komu I ljós veruleg áhrif skólps á lífrlki fjörunnar. Ef þessir staðir eru skoðaðir leynir ófögnuðurinn sér heldur ekki. Auk hinnar sýnilegu meng- unar er sandurinn orðinn svartur og lifvana, en I staðinn hefur vöxtur ýmissa grænþörunga margfaldast, en það er eitt af ein- kennum mengaðra svæða við sjó. Og sýklarnir sem þarna eru um allt eiga siöan greiða leið inn i hringrásina aftur meö fjöru- göngumönnum og börnum, sem oft eru að leik I fjörum. Að ekki sé talað um rottur og jafnel ketti. Gat i reglugerð En skólp kemur ekki bara úr klósettum og vöskum. Sérstök holræsarreglugerð kveður á um hvernig haga skuli frárennsli frá stöðum eins og sjúkrahúsum, bensinstöðvum og öðrum stöðum þar sem fariö er með bensin og oliur og frá þvottahúsum. Samkvæmt henni á að koma fyrir fitu- og bensin- og oliugildr- um eftir þvi sem við á, i frá- rennslinu og eru þær háðar sam- þykkt bæjar- og heilbrigðisyfir- valda. En i reglugeröinni eru litlar verksmiðjur og iðnfyrirtæki ekki nefnd á nafn. Frá þeim má þó búast við að komi hættuleg efni eins og kvikasilfur, DDT og jafn- vel blásýra svo eitthvað sé nefnt. Það er haft eftirlit með þessum stöðum, sem eru nefndir i reglu- gerðinni, og gildrurnar eru hreinsaðar reglulega. En I reglu- gerðinni er ekki tekið sérstaklega fram um iðnfyrirtæki, og við þekkjum ekki til slikra staða, segir Ingi O. Magnússon gatna- málastjóri i Reykjavik, en hans deild annast þetta eftirlit f borg- inni. — Ég lagöi það til á fundi hjá Skipulagsstofu höfuðborgar- svæðisins, að fariö yrði á staði eins og sjúkrahús, bensinstöðvar og I iðnfyrirtæki og reynt að koma i veg fyrir hugsanlega mengun þar áður en hún berst i skólp- kerfið, segir Hrafn Vestfjörð Friðriksson forstööumaður heil- brigðiseftirlits rikisins viö Helgarpóstinn. — Það er lltið vitað um hvernig frárennsli er háttað á þessum stöðum, en ég tel liklegt, að sér- staklega frá iðnaöi i þéttbýli geti stafað veruleg mengun. f frá- rennsli sjúkrahúsa gætu t.d. bor- ist veruleg mengun, smitandi sýklar Ur sjúklingum, sem þar eru meðhöndlaðir, segir Hrafn. Leiðir til úrbóta Þótt litið hafi verið gert á undanförnum árátug til þess að draga úr mengun sjávarins við strendur höfuðborgarsvæðisins hafa þessi mál stöðugt verið til umræðu og einhver hreyfing virð- ist m.a. vera hjá Kópavogsbæ og Hafnarfjarðarkaupstað i þá átt að ráða bót á þeim. A báðum stöð- unum er ástandiö all slæmt. Flestir kannast viö stæka skólp- lyktina af Kópavogslæk, og i Hafnarfirði liggja allar skólp- leiðslur beint i höfnina. Fyrir hálfu ári ákvaö „Sam- vinnunefnd um frárennslismál á höfuöborgarsvæðinu” að fela Skipulagsstofu höfuðborgar- svæðisins aö kanna leiðir til úr- bóta fyrir allt svæðið í heild. — Þaö hefur veriö fariö ofan i þessi mál, núverandi ástand kort- eftir Þorgrím Gestsson lagt, og geröar skýrslur, sem eru orðnar að 20 sentimetra þykkum bunka segir Gestur Olafsson for- stööumaður stofnunarinnar. — Við höfum lika athugað skýrslur og tillögur, sem Isotop- centralen lagði fram á sínum tima, en teljum ekki að þær séu innan þeirra fjárhagslegu marka sem þessi átta sveitarfélög sem standa að þessu ráða við. Spurn- ingin er, hvort framkvæmdir sem þessar eigi að vera á kostnaö ann- arra framkvæmda, t.d. skóla- bygginga, heilsugæslu eöa vega- lagningu. Annar kostur er að afla fjár með auknum sköttum og sá þriðji er að koma á holræsaskatti á sama hátt og nú er innheimtur fastur vatnsskattur, segir Gestur Ólafsson. Hreinsa skólpið Tillögur Skipulagsstofnunnar eru enn á frumstigi. t umræðu- grundvelli, sem hefur verið lagöurfram, er stungið upp á þvi, að fjörurnar veröi flokkaðar niður eftir þvi hversu hreinar menn telja aö þær eigi aö vera. Þær strandlengjur sem hugsan- lega mætti nota sem baðstaði yröu hreinsaöir fyrst og mest, þvi næst þær strandlengjur sem gætu nýst sem útivistarsvæði, en minnst og siöast þar sem litið er um mannaferðir. Fyrsta stig i hreinsun strand- lengjunnar yrði samkvæmt hug- myndum Skipulagsstofnunnar að sameina Utrásir skólpkerfis höf- uðborgarsvæðisins i þrjár til fjór- ar og framlengja þær Ut i sjó i allt að þrjá kilómetra frá landi likt og gatnamálastjóri lagði til á sinum tima. En þá er hætt við, ,-K að talsverð mengun veröi py af föstum efn- W Nótt og dag streymir skólpið úr klósettum i Sogamýrinni og næsta nágrcnni i fjöruna við EUiðavog. Bakterfugróðurinn grasserar I svörtum og daunillum fjörusand- inum og vogurinn er dökkur af mcngun langt út. fiska ekki, sem ekki róa. Því r þú aö drífa þig í næstu hljómplötuverslun og tryggja þér eintak... Eins og skot. Geimsteinn hf. ttelnorhf dreifing Símar 87542 — 85055. EINS 0G SK IVERTIÐARID NÝHUÓMELATA MEÐ ÁHÖFNINNI Á HALASTJÖRNUNNI Á síöasta ári var Áhöfnin á Halastjörnunni sú langaflahæsta á plötumarkaöinum. Árangurinn var, aö hvorki meira né minna en 8000 manns hafa nú fengið sér „Meira salt“.Nú í vertíöarlok, ári síöar, er aö hefjast ný vertíö hjá Áhöfninni á Halastjörnunni. Smá breytingar hafa orðiö á mannskapnum eins og veröa vill, og er áhöfnin nú skipuö Rúnari, Maríunum báöum, Ara, Viöari, Hemma Gunn og Páli Óskari. Sem fyrr eru öll lögin samin af Gylfa Ægissyni. • • .. ■ •

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.