Helgarpósturinn - 15.05.1981, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 15.05.1981, Blaðsíða 10
10 Fostudagur 15. mat 1981 /lo/rparpnc^fr irinn Guðrún ÁsmunasdOtilr r Heigarpðsisvioiall „ViO leikararnir upp til hópa aqaleq „Veröur þetta. ekki eitthvaö ógurlega erfitt”, sagöi Guörún Ásmundsdóttir, leikari og leik- stjóri, eöa Gunna Ás, eins og vinnuféiagarnir kalla hana stund- um. Ég kvaö þaö alls ekki vera. „Settu þig inn i stofu, ég ætla aö minnsta kosti aö hella upp á könnuna, áöur en viö byrjum”. Forleiknum aö viötali viö Guö- rúnu Ásmundsdóttur, leikara og leikstjóra var lokiö. Og þó ekki aiveg, þvi þegar Guörún kom inn i stofu eftir aö hafa sett kaffi- maskinuna i gang, þá fór hún aö hafa orö á þvf, aö ieiklistargagn- rýnendur Helgarpóstsins þeir Siguröur Svavarsson og Gunn- laugur Ástgeirsson væru ekki svo galnir. „Ég hef meira aö segja staöiö kollegana aö þvi aö taka þá alvarlega,” sagöi hún og brosti. Átti raunar eftir aö gera þaö oftar I viötalinu. Brosmiid kona, Guö- rún. En nú voru þátttakendur komn- ir I stellingar og viötaliö hófst á formlegan hátt. Og þá náttúrlega hefbundin spurning og klassisk i byrjun: Eru leikarar ekki eins og fólk er fiest? „Ég held aö þaö sé ekki til venjulegra fólk, en leikarar. Þaö er cins og sumir vilji aö þeir séu einhverjir dulúöugir persónuleik- ar, sem taki upp á hlutum, sem engir aörir myndu jafnvel þora aö láta sig dreyma um. Staöreyndin er sú, aö starfiö sjálft er ævintýri og þar fá leikarar sitt kikk. Þeir þurfa þvi ekki aö lifa neinu brjáiæðiskenndu lifi þess utan. „Lélequr liðsmaður lyrir irúuna” — Nú er leikarinn Guörún As- mundsdóttir trúaöur og virkur safnaöarmeölimur i starfi þjóö- kirkjunnar. Hvers vegna? „Þær stundir koma I lifi hvers einasta manns, aö hann veröur aö taka afstööu til Guös. Ég á mina trú satt er þaö, en miöaö viö marga aöra, er ég ósköp lélegur liösmaöur. Ég er alltof mikill þiggjandi og lltill veitandi. Ég er meira aö segja, eins og svo margir aörir, dáiltiö feimin viö aö játa trú mlna. Hvers vegna þaö er, veit ég ekki gjörla, en þaö er einhvem veginn ekkert smart aö vera trúaöur I þjóöfélagi nú- timans. Menn hljóma ekkert sér- lega gáfulega, þegar þeir opna slna innstu sálarkima. Ef menn ætla aö vera hreinskilnir I trú- málaumræöunni, þá veröa þeir aö koma inn á sln persónulegustu mál. Þaö getur oröiö ansi mikiö uppgjör. Af þessum sökum held ég aö fólk flest veigri sér dálltiö viö aö ræöa þessi mál viö náung- ann.” — Þú nefndir aö þær stundir hlytu aö koma upp hjá fólki, aö þaö tæki afstööu til trúarinnar. Var eitthvaö ákveðið sem varö til þess aö þú tókst slna afstööu? „Ekki get ég neitaö þvl. Ég man eftir þvl, þegar ég átti mitt fyrsta barn, þá var ég auövitað eins og hver önnur móöir og ætl- aöi aö vanda uppeldið voðalega mikiö. Ég sagði t.d. við sjálfa mig, aö ef litla dóttir min spyröi mig um Guö, þá yröi ég aö svara henni og þannig hófst mln leit.” Sðsíalismi oq krislindðmur — Hvernig fer þaö saman aö vera trúuö manneskja og sóslalisti. Hvaö sagöi ekki Marx gamli um trúna sem óplum fólks- ins? „I mlnum augum þurfa sóslalisminn og kristindómurinn alls ekki aö stangast á. Báöar þessar vonir byggja á jafn- réttishugsjóninni og fara saman á mörgum sviöum. Ég fullyröi aö margir haröir sóslalistar séu trúaöir og alls ekki verri sósialistar fyrir þaö. Kannski betri. Ef viö Htum t.d. á frum- kristnina og sósialismann, þá eru þar sömu grundvallarhugsjón- irnar I heiöri haföar. Hér á landi er enginn kristilegur stjórnmála- flokkur, en ef slikur flokkur væri tip og byggöi á kjarna trúarinnar, en heföi sósialiskar iausnir, meö- fram, þá væri ég þar I hópi”. — Nú hefur kirkjunni i gegnum söguna, þó veriö stýrt af þeim sem meira mega sin I þjóðfélag- inu? „Þaö er liöin tiö og aöeins gamlar herragarössögur sem ekki eiga lengur viö. Enda trúi ég ekki á kirkjuna, heldur Guö.” — Yfir I annaö Guörún. Ertu stórpólitlsk I eöli þlnu? „Hver er þaö ekki. Ég get ekki aögreint pólitlk frá lifinu. Eru ekki öll samskipti manna pólitisk? „Marqir áqæiir sðsíalislar...” — Eru leikarar upp til hópa, kommúnistar og byltingaseggir, eins og stundum heyrist? „Heyrist þetta? Þaö er erfitt fyrir mig aö svara þvi hvar leik- arar standa i pólitik. Þar eru auö- vitaö margir ágætir sósialistar, þakka þér fyrir.en svo eru I stétt- inni ýmsir duglegir ihaldsmenn. Þaö er blanda þarna eins og ann- ars staöar.” — Þú hefur dálitiö starfaö hjá Alþýöuleikhúsinu upp a síökastiö meðfram störfum þinum hjá Iönó. Er mikill munur á þessum starfsvettvöngum? „Aöstööumunur fyrst og fremst. Þaö er mikiö basl aö koma upp leiksýningum hjá Alþýöuleikhúsinu, þvi þar þurfa leikarar að vinna öll verkin. Ct- búa og koma upp leiktjöldum o.s.frv. í Iðnó hins vegar geta leikarar einbeitt sér aö listrænu hliöinni eingöngu. A hinn bóginn finn ég engan mun á áhuga fólks I þessum tveimur leikhúsum. Allir leggja sig fram um þaö, aö gera góöa sýningu. Þvl hefurstundum verið haldiö fram, aö starfsfólk at- vinnuleikhúsanna, þeirra hefö- bundnu, hafi týnt metnaöinum og hugsi um þaö eitt aö sækja launin sin á réttum tima. Ég vlsa þessu frá sem bábilju. Ég hef a.m.k. ekki kynnst sliku fólki niöri I Iönó, heldur ganga þar allir meö krafti og áhuga aö sinum verkefnum. — Og ég er ekki aö segja þetta vegna þess, aö ég sjálf er þar i hlýjunni, heldur vegna þess aö þetta er satt.” — Hvaö meö samkeppni innan leikhúsanna? Baráttan um aðal- hlutverkin? „Auövitaö er samkeppni I leik- húsi. En þaö hefur mikiö breyst á slöariárum. Sýningarnar eru um

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.