Helgarpósturinn - 07.08.1981, Page 12

Helgarpósturinn - 07.08.1981, Page 12
12 » STORU-TJARNIR FLÖKALUNDUR BJARKAI AKUREYRI UNDUI HÚNAVELLIR REYKIR REYkHOLT LAUGARVATN DANSBANDIÐ Diskótek Eyjamenn éta lundann — Kaninn myndar hann Það er ekki bara á höfuð- borgarsvæðinu sem veitinga- húsin skjóta upp kollinum hvert á fætur öðru og matar- og vin- menningin blómstrar. i Vest- mannaévjum eru nú starfræktir þrírfyrsta flokks matsölustaðir þar sem auk þess er boðið upp á lilheyraiuli vin og sterka clrykki. — Þróunin i þessum málum i Eyjum er gifurleg. Fyrir fjórum árum hafði ég bara pláss fyrir tiu matargesti, en nú get ég tekið á móti hundrað manns i tveimur sölum, og allir eru að breyta og stækka, segir Hörður Adolfsson veitingamaður i Skút- anum. Auk Skútans eru i Eyjum aðallega tveir matsölustaðir. Það eru Samkomuhúsið og Gestgjafinn. Hörður rekur ásamt Skútanum Farfugla- og gistiheimiliö Lundann i sam- vinnu við skátahreyfinguna i Eyjum, á þeim stað sem áður hét Hótel HB. Hann sér um all- an mat nema morgunmat fyrir gesti Lundans, auk þess sem hann getur sjálfur hýst nokkra gestiuppiá háaloftii Skútanum. — En þessi rekstur er ákaf- lega árstiðarbundinn. Það fer eftir vertiðinni hvenær annirnar byrja, en yfirleitt er mest að gera frá þvi i febrúar/mars og fram i'ágúst. Þá dettur umferð niður hjá mér og er i lágmarki framyfir jól, segir Hörður. Samt hefur hann opið allan ársins hring.á veturna frá tiu á morgnana til tiu á kvöldin, en á sumrin frá niu til ellefu. — Við erum með alhliða vi'n- veitingaleyfi og höfum nanast allar tegundir. En það hefur engum vandræðum valdið, mér hefur tekist að bita af mér þessa fáu, sem kunna sér ekki hóf, segir Hörður Adolfsson. Og enda þótt veitingahúsin i Eyjum bjóði upp á allskonar mat snýst allt um lundann um þessar mundir. Heimamenn eru komnir upp um öll björg að veiða hann eftir langt lunda- hungur, og Hörður Adolfsson i Skútanum býður gestum sinum upp á lunda i forrétt eða aðal- rétt, allt eftir óskum þeirra. — Það eru að sjálfsögðu mest útlendingar sem vilja smakka lundann hjá mér, og náttúrlega annað aðkomufólk. Sumir láta sér nægja að smakka hann sem forréttog Kaninn vill helst ekki annað en taka myndir af honum, segir Hörður Adolfsson veitingamaður i Skútanum i Vestmannaeyjum. ÞG Föstudagur 7. ágúst 1981 helgarþósturinn_ í tilefni af þvi, að Eyjamenn héldu þjóðhátfð sina um siðustu helgi báðum við Hörð Adolfsson veitingamann i Skútanum að gefa okkur uppskrift að ein- hverju uppáhaldi þeirra. Hann brást vel við þeirri beiðni, og kom með tvær uppskriftir frek- ar en eina. ,,Við byrjum á djúpsteiktum smokkfiski og höfum hann fyrir fjóra. t máltiðina þarf tvo góða fiska ogorlydeig. Kryddlögur er gerður úr sitrónu, pipar, hvit- lauk og steinselju, fiskurinn skorinn I strimla, velt upp úr orlydeiginu og siðan látið íiggja i leginum i um það bil klukku- stund. A m eðan er búin til sósa. Hún er úr dillsósu, mayonesi með dilli, sitrónusafa, sinnepi, sykri og þeyttum rjóma. Sósan er lát- in standa i hálftima. Núer fiskurinn steiktur i'feiti, annaðhvort i potti eða á pönnu. Loks er hann borinn fram með tómötum, gúrkum og ristuðu brauði. Fyrir þá sem ekki kunna að búa til orlydeig: Hráefnin eru einn bolliaf hveiti, hálf flaska af Njótið hvíSdar og hressinga á Eddu hótelunum í sumar Verið velkomin. ..H5I0Í4 , 'Ou.15' FEROAMKRIFMTOIA ReyK|avilt lceland H EL*\B TOFRINT Td 2MS5 BIIREIAII Telei 2049 Hörður Adolfsson veitinga- maður i Skútanum. saman kryddað með rosemary, timian og hvitlauksdufti, sinni Sumarfriið i fullum gangi — pústkerfið undan og næst er bremsurör gelt úti i vegkanti. Smokkfiskur og lundi að hætti Eyjamanna pilsner, eittegg, ögn af salti og sykri. Þetta er hnoðað og haft sæmilega þykkt, þannig að það myndi hjúp utanum fiskinn. Þá er komið að lundanum . Ef mBað er við fjóra Vestmanna- eyinga þarf að minnstakosti átta lunda. Til matargerðarinnar þarf auk þess tómata, lauk, beikon, púrrulauk, ögn af smjöri, ögn af rjóma og smjörbollu. Lundarnir eru hreinsaðir og ristaðir á pönnu , siðan settir i pott og soðnir i tvær klukku- stundir. Með lundunum þarf tvo tómata, einn lauk, fjórar sneið- araf beikoni, einnbita afpúrru- lauk. Þetta er hakkað saman og látið kraumai smjöri. Soðinu af kjötinu er hellt yfir og jafnaö með smjörbollu, siðan er allt- ögninni af hverju og loks bætt með rjóma. Lundarnir eru siðan bornir fram með sósunni og fersku grænmeti, svosem spergilkáli, rósenkáli eða blönduðu græn- meti — og islenskum kartöflum. Með þessu má drekka rauð- vin, og sé það gert má raunar bæta rauðvi'ni i sósuna, það á af- skaplega vel við bæði púrru- laukinn og beikonið.” Þá er bara að óska góðrar matarlystar, hvort sem menn velja smokkfiskinn eða lund- ann. Og að sjálfsögðu má mat- reiða skepnurnar á ótal aðra vegu, þetta eru bara tvær upp- skriftiraf þúsund, ekki sist hvað varðar lundann, sem um þessar mundir eru á borðum nánast hvers einasta Vestmannaey- ings. Útsendari Borgarpósts fer í fríid: Fasteign á (fjórum) hjólum með bremsur á þremur (hjólum) „Hvert fórstu i sumarfriinu?” Þetta er sjálfsagt spurning, sem ófáir hafa fengið að undanförnu, eftir nokkrar velþegnar sumar- frisvikur. Og eflaust eiga þó- nokkrir enn eftir að fá spurning- una. Hjá mér varð eiginlega fáttum svör við þessari spurningu, þeg- ar ég sneri aftur til vinnu fyrir fá- um dögum, fölur yfirlitum, en sæmilega hvildur, að minnsta kosti andlega. interRent car rental Bílaleiga Akuréyrar Akureyri TRYGGVA8RAUT 14 S. 21715- 23515 , Reykjavik SKEIFAN 9 S.31615 86915 Mesta úrvallð, besta þlónustan. Vlð útvegum yður atalðtt á bilaleigubilum erlendls. Borða- pantanir Simi86220 85660 Veitingahúsiö í GLÆSIBÆ ,,Ég hef nú mest verið inni á baðherbergi að rifa upp gólf og veggi, tæta niður sturtu og vask og kippa klósettinu uppaf klóak- stútnum. Reyndar fór ég nú i smá ferðalag lika. En það er nú varla i frásögur færandi og var eiginlega hálfgerður barningur og mis- skilningur alltsaman", svaraði ég og ætlaði þar með að snúa mér að vinnu minni. En það var ekki við það kom- andi. „Segðu frá, segðu frá”, sögðu vinnufélagarnir, ogég varð að segja frá. Það er eiginlega fyrst til að taka, að við hjónin ætluðum að sýna norskum kunningja okkar og dóttur hans dálitið af landinu okkar. Lengi vel var þó allt óvíst um ferðalög, þar eð fararskjóti heimiiisins er kominn af léttasta skeiði. Hann er af gerðinni Volvo, sem Sviar hafa gefið viðurnefnið PV 544, en er oft nefndur „kryppa” hér á landi, sökum lög- unar sinnar. Argerðin er 1965, en á móti háum aldri vegur, að Volvo er talinn gæðabill hinn mesti, og það hefur eiginlega ver- ið stolt okkar undanfarið að aka um á „fasteign á hjólum”. Hvað um það. Eftir að hafa dyttað að fasteigninni i nokkur kvöld, með góðra manna hjálp, var talið nokkurnveginn öruggt að leggja i’ann. Og á þriðjudagsmorgni var lagt af stað með þrjá fullorðna og tvær ungar dætur innanborðs og skott- iðúttroðið af viðleguútbúnaði, svo kryppan virtist næstum meiri en venjulega (samt gleymdist ein vindsæng og einn svefnpoki, en það er nú önnur saga). Fjarlægt markmið var Skaftafell i öræf- um, og ökumaður bar i brjóstisér þá veiku von, að forlögin mundu jafnvel leiða okkur eitthvað lengra. Sem kunnugt er reynir þjóðveg- urinn austur að Hellu harla litið á þolrif manna og farartækja, enda rann fasteignin allt þangað aust- ur mjög ljúflega, vélin malaði eins og værðarleg kisa. Eftir það fór vegurinn heldur betur að versna, og rauða örin i hraða- mælinum drattaðist aldrei upp- fyrir töluna 40. En ekkert kom

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.