Helgarpósturinn - 07.08.1981, Síða 13

Helgarpósturinn - 07.08.1981, Síða 13
13 __helgpirpn^tl irinn Föstudagur 7. ágúst 1981 fyrir, og þeir i bilnum, sem eru kunnugir á þessum slóöum, uppá- stóöu, aö þessi spotti um Land- eyjarnarværiyfirleittslæmur, ai siöan færi þetta skánandi. En þaö var ekki ætlunin aö segja strax skiliö viö Landey jarn- ar. Landeyingurinn í bilnum vildi ekki fara þarum án þessaö heilsa upp á frændfólk sitt á bæ sem er um þaö bil20minútna akstur frá þjóöveginum. Þá var skrattinn lika laus. Hafi þjóövegurinn veriö slæmur á ég ekki orö til að íysa Landeyjaveg- inum. Liklega er þó best að lýsa honum meðþviaðupplýsa, aö of- aniburöurinn er sóttur beint i Markarfljót. Semsé hrein ármöl. Samkvæmtreynslunnileitast slik möl viö aö safnast saman á miðj- um veginum og úti i köntunum. Og þar viö bætist, aö á þess- ari fyrstu ökuferö á fasteign- inni út fyrir höfuðborgarsvæöiö reyndist hún lægri en við var bú- ist, og þvi straukst kviðurinn á blessuöu farartækinu stööugt við malarhrygginn. Þaö gat ekki fariö nema á einn veg. Eftir nokkur hundruð metra breyttist vélarhljóöið skyndilega úr þægilegu mali imiklar drunur. Ég stoppaöi þegar i' staö. Hausinn út til aö kikja undir bilinn, og sjá: Fremri hljóðkúturinn, sem hafði nýlega verið festur kyrfilega upp, laföi niður að aftanverðu, stein- hættur að nenna að standa i þessu. Þaö var ekki annað aö gera i stööunni en kippa kútnum alveg undan og troða honum milli tjalda og svefnpoka i skottinu. Siðan var haldið áfram, og áfangastaöurinn að nálgast. Þá heyröist á ný tor- kennilegt aukahljóð. Viö nánari aögæslu reyndist það vera hinn hljóökúturinn, sem angraöi okk- ur. önnur festingin haföi gefiö sig og hann dróst i götunni. I þetta sinn var fundinn virspotti og kút- urinn bundinn upp til bráða- birgöa. Komin i örugga höfn hjá ætt- ingjum i Landeyjum upphófust viögeröir. Leitaö aö rörbút, púst- röraklemma tekin af traktor, og nokkrum klukkutimum seinna var aftur lagt i’ann. Fljótlega kom i ljós, aö vegur- inn um Landeyjarnar var siöur en svo verri en aörir þjóövegir á Suöurlandi, nema siöur væri. En meö þvf aö aka rólega tókst að komast hjá alvarlegum skakks- föllum, allt virtist i lagi nema hvað púströriö virtist berjast ein- hversstaöar utani. Það þótti þó ekki taka þvi aö skeyta neitt frek- ar um þaö. En annað vandamál skaut þá upp kollinum.Eftir aö viö höfðum lagt af staö úr Reykjavik i býtiö um morguninn i glaöasólskini var nefnilega núna tekið aö þykkna i lofti, og leit jafnvel út fyrir rign- ingu. Og útlitiö skánaöi siöur en svo eftir þvf sem austar dró. En viö reyndum aö vona þaö besta og sigum hægt og rólega austar og austar og ákváöum aö stoppa ekki að ráöi fyrr en á Kirkjubæjarklaustri þar sem viö eigum kunningja, sem mundu áreiðanlega gefa okkur kaffisopa og leyfa ökumanninum aö fá sér sturtubað eftir viðgeröirnar. Þaö voru ekki nema um það bil 20 kflómetrar eftir aö Klaustri, þegar næsta óhapp geröist. Rétt austan við Hrifunes, i fyrstu brekkunni eftir Vik skyldi stigiö léttilega á bremsuna. En þaö var litil fyrirstaöa. Petallinn fór i botn. Sem betur fór var hraðinn litill og brekkan stutt, og fast- eigninni var ekið út i vegarkant- inn. Stutt athugun undir bílnum leiddi iljós sundurmarið bremsu- rör — liklega af völdum púströrs- ins. Þaö var þvi ekki annað aö gera en aka spölkorn til baka og fara niður á tjaldstæöi undir friö- sælli kjarri vaxinni brekku, sem viö höfðum veitt athygli áöur en bremsurnar gáfu sig. Ekki veröur annaö sagt en vel hafi farið um mannskapinn þessa fyrstu tjaldnótt, og þarna er meira að segja bæöi „þurr- klósett” og rennandi vatn. Hins vegar var þetta fyrsta rigningamóttin i feröinni, og gas- apparatið neitaöi auk þess aö virka, svo enginn fékk heitan mat að þessu sinni. I bitiö næsta morgun gekk ég beint af augum, upp kjarri vaxna brekkuna og siðan sem leiölá að Hrifunesi þar sem er bæöi bensinstöö og sjoppa og litið heimilisverkstæöi. Sá sem ég hitti þar fyrir var hinn þægi- legasti i viðmóti og lánaði mér hamar til aö merja saman rör- endann — þvi vitanlega þýddi ekki annaö en hætta á að bremsa bara á þremur héðan i frá, þar til tækifæri byöist til aö skipta um rör. Hann geröi þaö ekki enda- sleppt viö mig, heldur ók mér langleiðina á tjaldstæöiö. Viögeröin tók ekki langa stund, og von bráöar seig sænska gæöa- stáliö á fjórum hjólum, en bara bremsur á þremur, aftur af staö, og var ekiö enn varlegar en fyrr. A Klaustur komumst viö heilu og höldnu, en að sjálfsögöu kom i ljós, að kunningjar okkar voru viösf jarri. Nánar tiltekiö i sumar- friii Borgarfiröi. Það var þvi ekki um annaö aö ræöa en slá upp tjöldunum þegar i staö. Og þar eö engu tauti var enn komiö viö gas- apparatiö, jafnvel þótt sjálfur kaupfélagsstjórinn væri fenginn i máliö, var ákveðiö aö spandera i mat á Hótel Eddu — i þetta eina sinn. önnur rigningarnótt, og daginn eftir rigndi lika. Þegar liöa tók á daginn fóru þeir aö tinast aö sem höföu lagt af staö úr Reykjavik um morguninn. Hjá þeim fengum viö þær fréttir, sem viö vissum ekki hvort ætti aö gleðjast yfir eöa hryggjast, aö enn væri glampandi sólskin og hlýtt i höfuðborgirmi. Þaö var aö minnsta kosti ekki ástæöa til aö gleðjast yfir þeirri sjón, sem blasti viö, þegar litið var i austurátt. Yfir Lómagnúp lá þykkur skýjabakki og fannhvitir jöklanna tindar, sem áttiað sýna Norömönnunum, sáust hvergi. Ekki jók þaö heldur bjartsýnina, aö bilar sem komu austan aö voru útataðir i aur. Viö lögöum ekki einu sinni i aö spyrja nánar um veörið en ákváöum eftir nokkrar vangaveltur, aö þaö eina sem viö gætumgert væri aö snúa nefunum aftur i vestur og fara til baka i sólskinið. Vitandi um heldur hrörlegt ástand fasteignarinnar dró ég ekki úr þvi að þessi ákvöröun væri tekin og sneri stýr- inu hart f bak. Aldrei hef ég veriö eins lengi aö aka leiöina Kirkjubæjarklaustur- Reykjavik og þessa tvo júlidaga sem ferðin tök, meö gistingu viö Gljúfrabúa. Og að sjálfsögöu skánaðiveöriöeftir þvi sem vest- ar dró, og i höfuðborginni var glampandi sól eins og verið haföi undanfarna daga. En þaö entist ekki nema daginn. Næsta dag var komin sunnanátt og rigning en sólskin i öræfasveit. Norömenn- irnirfengu ekki aö sjá þessa feg- urstu sveit á tslandi, uröu að láta sér nægja litrikar lýsingar á þvi stórbrotna landslagi þar sem mætast jöklar og grængresi og ólgandi jökulár velta um svarta sanda. En það varð svo að vera, þvi brátt urðu þau aö snúa til sins heima, og ég aö taka til við baö- herbergiö, sem hafði beðiö endur- nýjunar i heilt ár. j>g Staöa bókavaröar i Háskólabókasafni er laus til um- sóknar. Bókaveröinum er ætlaö að sinna upplýsinga- þjónustu og notendafræöslu sem aöalverkefni. Laun skv. launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um námsferil og störf, sendist menntamála- ráöuneytinu, Hverfisgötu 6, fyrir 15. september 1981. Menntamáiaráöuneytiö, 29. júli 1981. Viö Fjölbrautaskóla Suöurnesja i Keflavik er laus til umsóknar staöa skólasafnvaröar (1/2 staöa). Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf, skulu hafa borist merintamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 20. ágúst n.k. — Umsóknareyðublöð fást i ráöuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 29. júli 1981. !|1 ÚTBOÐ ® Tilboð óskast i uppsteypu og fullnaðarfrá- gang á 3. áfanga bækistöðvar Hitaveitu Reykjavikur við Grensásveg. útboðs- gagna má vitja til Innkaupastofnunar Reykjavikur Frikirkjuvegi 3, gegn 2 þús- und kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 1. sept. n.k. kl. 14. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frikírlcjuvegi 3 — Sími O25800 þeir verðo i stöðugu sombondi Það er spamaður 03 öryggi að geta náð í þýðingamikla menn á stundinni Flestir kannast eitthvað við Multitone tækin, sem hafa lengi verið í notkun á spítölum, og hanga í vösum eða sloppum lækna, en þessi tæki koma sér vel víða annarsstaðar. Með tali eða tón er hægt að senda skilaboð langa vegu, og er mikil hagkvæmni í því að geta haft samband við þýðingamikla menn hvar sem er og hvenær sem er. Hægt er að hafa samband við marga í einu, eða velja bara einn úr. Leitið upplýsinga um þessi nauðsynlegu tæki, og kynnist kostum þeirra. vF Radíóstofan hf. Þórsgötu 14, símar 28377 - 11314 - 14131

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.