Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 07.08.1981, Qupperneq 28

Helgarpósturinn - 07.08.1981, Qupperneq 28
Fostudagur 7. ágúst 1981 he/garpóstuhnn_ O Manna á meðal er rætt um spaugilega uppákomu i nýja veit- ingahúsinu Arnarhóli núna i vik- unni og á hún rætur að rekja til ál- viðræðnanna. Þannig var aö i há- deginu á þriðjudag mættu álfor- stjórarnir svissnesku á veitinga- staðinn með nokkra islenska full- trúa Islenska álfélagsins i fylgd sinni og átti greinilega að ræða máiin og undirbúa viðræðurnar við islenska rikið undir góðum kræsingum. Þeir voru hins vegar varla mættir þar þegar fulltrúar iðnaðarráðherra og islenska við- ræöunefndin stormaði inn i sal- inn, greinilega i sömu erinda- gerðum, en svo óheppilega vildi til að ekki var til annað langborð en við hlið svissnesku álfurst- anna. Þótti þetta heldur pinlegt og mun litið hafa orðið úr þvi að lagt væri á ráðin um viðræðurnar innan hvors hóps.... 9 Þorkell Valdimarsson hefur ekki lagt niður vopnin i viðureign sinni við borgaryfirvöld út af Grjótaþorpinu. Hann hefur fengið fasteignaeigendur þar til að óska eftir niðurrifi allrar húslengjunn- ar við vestanvert Aöalstræti og sömuleiðis hússins aö Banka- stræti 12 og ætlar meö þvi móti að láta á það reyna hvort borgar- yfirvöldum er stætt á þvi aö friða hús með þvi að neita mönnum um niðurrif. Jafnframt biður hann átekta eftir þvi hvort skipulag um Grjótaþorpið hljóti samþykki i borgarstjórn og hvaða áhrif það kemur til meö að hafa á fast- eignamat á þessum slóðum. Leiði skipulagið til þess aö fasteigna- matið lækki ætlar Keli Valda að fara i stórfellt skaðabótamál viö borgina fyrir ofreiknuð fasteigna- gjöld húsa á þessum slóðum á undanförnum árum. örlög Grjótaþorpsskipulagsins i borgarstjórn eru hins vegar á huldu en heyrst hefur að Sjöfn Sigurbjörnsdóttirsé þvi andsnúin og það hafi þess vegna ekki til- skilinn meirihluta i borgarstjórn til að hljóta samþykki.... # Sami áhuginn virðist vera fyrir fréttamannastöðum hjá út- varpinu og verið hefur. Við heyr- um að 7 umsækjendur séu um afleysingastarf fréttamanns til næstu tveggja ára — meðan Helgi Pétursson er i fjölmiðlalæri er- lendis. Sá umsækjendanna sem þykir liklegastur til að hreppa hnossið er Gunnar Kvaran sem nú starfar á fréttastofunni sem sumarmaður, en meöal annarra umsækjenda eru Birna Þórðar- dóttir, Kristin Ástgeirsdóttir.sem starfað hefur á Þjóðviljanum, og Önundur Björnsson...... ® Við höfum sagt frá þvi að Bergþór Konráðsson viðskipta- fræöingur hafi gert stuttan stans á Arnarflugi sem aðstoðarfram- kvæmdastjóri — og hann hafi ákveðið að mæta ekki aftur þar til vinnu, eftir að ljóst varð að ráðinn hafði verið nýr aðalforstjóri i stað Magnúsar Gunnarssonar meðan hann var i leyfi. Bergþór hefur hins vegar verið meðeigandi i ráðgjafarfyrirtæki, sem reyndar hefur legið i láginni um árabil, en nú eigi að endurlifga það og Berg- þór ætli að hefja þar störf. Reyndar heyrum við einnig aö annar maöur hafi nýverið keypt sig inn i þetta fyrirtæki og ætli einnig að hefja þar störf. Þessi maður er sagður vera Magnús Gunnarsson, fyrrum forstjóri Arnarflugs, svo að Bergþór og Magnús koma eftir allt saman til með að starfa hlið við hlið... # Það var mikið um dýrðir i Dómkirkjunni i Reykjavik á dögunum og vakti m.a. athygli þeirra sem leið áttu hjá aö þar söng Kór Menntaskólans við Hamrahlið af miklum móð. Og á- stæðan? Jú, hinn ötuli stjórnandi kórsins i mörg herrans ár, Þor- geröur Ingólfsdóttir var að ganga i heilagt hjónaband i kiricjunni. Eiginmaðurinn er ekki siður kunnur listamaður i sinu heima- landi, norska skáldið og þýðand- inn Knut ödcgaard... # Ungt skáld og efnilegt, Svein- björn I. Baldvinsson, er nií um þessar mundir að senda frá sér sina aðra ljóðabók, Ljóð handa tónum og þessum, en Almenna bókafélagið gefur hana út. Svein- björn sendi frá sér sina fyrstu ljóðabók, t skugga mannsins árið 1976, og einnig mjög sérstæða ljóðaplötu, Stjörnur i skónum, áriö 1978, en þar spilaði hann sjálfur undir ásamt fleiri tón- listarmönnum. Sveinbjörn er nefnilega lika stórgóður tónlistar- maður og spilaði m.a. f hljóm- sveitinni Diabolus In Musica sem gaf Ut plötuna „Lifið ilitum” fyrr i vetur. NUna spilar hann hins vegar i djasshljómsveitinni Nýja kompaniið, sem við höfum hlerað að séjafnvelaðihuga plötugerð... # Listahátið'82 verður að öllum likindum ekki eins einskorðuð við höfuðborgina og þær hátiðir hafa verið hingað til. Nylega sendi Félag islenskra myndlistar- manna Fjórðungssambandi Norðlendinga bréf þar sem boðist er til að senda þær sýningar sem FIM mun standa fyrir á Lista- hátið til þeirra staða á Norður- landi þar sem menn hafa áhuga á að taka við þeim. Enn sem komið er hefur aðeins eitt norðlenskt sveitarfélag þegið boðið. Það er Akureyri. En likur eru á þvi að forráðamenn nokkurra annarra stærribæja nyrðra muni hafa hug á að taka þátt i hátiðinni. NU GETUR ÞO ATT FULLA GEYMSLUNA AF GOSDRYKKJUM I EINNI HILLU Bæði heima og í sumarbústaðnum. Þér nægir ein lítil hilla fyrir allar 5 SodaStream bragðtegundirnar. Úr hverri bragðflösku færðu 35 flöskur af gosdrykkjum, þar með eruð þið sæmilega birg, jafnvel fyrir 7 ára afmæli þríburanna. Sól hf. ÞVERHOLTI 19 SÍMI26300 REYKJAVÍK það besta er aldrei oí gott. GUÐJÓN CUÐNASON, yfirlaeknir mæðradeildar Heilsuvemdarstöðvar Reykjavíkur og Faeðingarheimilis Reykjavíkur, skrifar formála íslensku útgáfunnar og segir þar m. a.: „Bamsfaeðing er einn merkasti atburður í lífi konu, og allt verður að gera til þess að hún takistsem best Ég tel útkomu þessarar bókar í íslenskri þýðingu stuðla meðal annars að því að svo megi verða. “ - - SIGURÐUR THORLACIUS læknir þýddi bókina. ERTU BARNSHAFANDI? MEÐGANGA OG FÆÐING suararþuí sem allar konur uilja uita um meðgönguna og nýfædda bamið. . . • Hvemig veistu fyrir víst að þú sért bamshafandi? • Verður barnið þitt eðlilegt? • Hvaða mataræði er hollast fyrir bamið og fyrir þig sjálfa? • Hvaða lyf er óhætt að taka inn á meðgöngutímanum? • Þartu að borða á við tvo? • Er óhætt að hafa samfarir á meðgöngutímanum? • Hvað geturðu gert til þess að varðveita vöxt þinn og útlit? • Hvenær þarf að leggja af stað á fæðingarstofnunina? • Hvemig slökunaræfingar henta best? • Hvemig fer fæðingin fram? • Hvemig er fæðingarstofan? Laurence Pemoud 3gfæóin£ býður upp á mikið safn hagnýtra upplýsinga og segir þér allt sem þú þarft að vita um bamið þitt og þig sjálfa, frá getnaði til fæðingar. Bræöraborqarstíq 16. Simar: 12923 oq 19156 „ Bókin ergædd mikilli hlýju og nákvæmni, allt niðurí minnstu smáatriði. . . framsetningin er traustvekjandi og hefur veitt mörgum konum örgggiskennd. “ FIGARO „Pú getur fræðst um allt sem þú þarft að vita um meðgöngu og fæðingu bams . . . skrifuð af nærfæmi og samúð. “ FEMINA Teiknaö hji Tómasi

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.