Helgarpósturinn - 28.08.1981, Síða 22
22
Föstudagur 28. ágúst 1981
he/garpásturinn
Greifirm og hertogirm
hefur trióplata hans meö
Charles Mingus og Max Roach.
Money Jungle (UAJS 15017) átt
mestan þátt i þvi. En dúóplata
hans og Ray Brown gefur henni
litið eftir. Sú heitir: This One’s
for Blanton og inniheldur Frag-
mented Suite for Piano and Bass
ásamtfimm eldri ópusum þar á
meðal Pitter Panther Patter,
sem Ellington og Blanton hljóð-
rituðu 1940.
Hin siðari ár samdi Ellington
æ meira af svitum, flestar áttu
séreitthverttilefnieinsog þærer
finna má, á The Ellington Suites
(Pablo 233 5 743) The Queen’s
Suite tileinkuð Elisabetu drottn-
ingu, en Ellington var hirð-
djassisti ensku konungsfjöl-
skyldunnar og virðist Oscar
Peterson hafa fyllt það skarð
við lát meistarans, The
Goutelas Suit, samin vegna
endurreisnar 13aldar kirkju i
Frans og The UWIS Suite,
samin vegna Ellingtonfestivals
við háskólann i Wisconsin,
Madison. Tvær Fantasy plötur
eru til með Ellington svitum:
The Afro-Eurasian Eclipse (F
9498), sem Ut kom að Ellington
látnum og Latin AmericanSuite
(F 8419), sem samin var 1968
eftir ferðalag um Suður
Ameriku.
Aö sjálfsögðu er latinbitið
ráðandi i svitunni, en Ellington
var frumkvöðull þess i djassin-
um (Caravan, Congo Brava
osfrv). En hann kynntist þvi
ekki á heimaslóðum heldur réð-
ist til hans portórikani, Juan
Tizol. Reisan 1%8 var sú fyrsta
sem Ellington gerði til Suður
Ameriku og einsog hann segir i
ævisögu sinni: „Satt aðsegjaer
það ákaflega furðulegt þvi
Mexikó er jafn nærri Bandarikj-
unum og Kanada, en þangað
förum við árlega”.
Það er margt bitastætt i þess-
ari svitu þótt misjöfn sé einsog
flestar Ellingtonsviturnar (þá
eru að sjálfsögðu undanskildar
Harlem svitan, Svitan um
auturlönd fjær, Steinbeck svitan
og Shakaspere svitan). Upp-
hafskaflinn, Oclupaca, er yndis-
legur og ekki skemmir fyrir
tónverk sem eru hápunktur þess
sem skrifað hefur verið i djass.
Ekkert djassplötusafn ris undir
nafni ef höfuðverk þessara
kappa vantar þar.
Nokkuð sæmilegt úrvai er af
plötum þeirra i Fálkanum
(miðað við það sem finnst af
djassplötum hérlendis), þó
vantar helstu hljóðritanir glæsi-
skeiðs þeirra. RCA verk Elling-
ton frá 1940—42 og Decca hljóð-
ritanir Basies 1937—39. Þá voru
sólóistar þeirra i hópi höfuð-
snillingar djassins: Ellington
með Ben Webster, Johnny
Hodges, Cootie Williams o.fl.
ofl. Basie með Lester Young,
Buck Clayton, Dicky Wells ofl.
ofl.
Agætttvöfaltaibúm er til með
Ellington hljóðritunum frá
1927—30 (EMI SHB58) þar eru
frumhljóðritanir meistaraverka
einsog Black And Tan Fantasy,
Mood Indigo og Rockin’ In
Rythm og svo pianósólóinn við-
frægi Black Beauty. Tvöfalt
Basie albúm frá RCA b'manum
fyrir 50 er einnig til (RCA CL
42113). Þá voru helstir sólóistar
Harry Edins og Joe Newman
(sem lék eitt sinn á Hótel Loft-
leiðum), Buddy Tate (sem hér
lék með Goodman) og svo tveir
kappar sem frægir urðu seinna
sveiflar bandið One O’Clock
Jump og Little Phony og fleiri
ópusum. Fyrsta platan i þessum
flokkivar: Basie. Hún er ómiss-
andi í hvaða djassplötusafn sem
er, ekki sist vegna sjokk-
trompetanna og pianóleiks Basie
gamla i' Neal Hefti ópusnum:
The Kid From Red Bank.
Ellington og Basie hafa gert
nokkuö af þvi að leika inná
plötur bigbandlausir og má þar
finna marga perluna. Það er
ekkert skritiö að Basie kraft-
birtingurinn trylli djammsess-
sjónir einsog stórhljómsveitina.
Eitthvert skemm tilegasta
Basie djamm, sem hljóðritað
hefur verið er frá Montreux 1977
(Pablo 2308 209) endaidjamma
þar ma. tveir af höfuðsnilling-
um djassins, trompetleikarinn
Roy Eldridge og altósaxafón-
leikarinn Benny Carter. Ein af
skemmtilegri smáhljóm-
sveitarskifum sem Ellington lék
innáumsina daga var: Back To
Back með Johnny Hodges.
Þarna má finna sjö blúsa og
enginn blés blúsinn betur en
Johnny Hodges. Það er ekki fyrr
en á siðari árum að djass-
geggjarar, utan æstustu Elling-
tonaðdáendanna, gerðu sér
grein fyrir þvilikur pianisti
gamli maðurinn var. Trúlega
Duke Eliington, árið 1939, vel klifjaður.
þegar Paul Gonsalves blæs sóló-
inn ala Webster i Congo Brava.
í öðrum kafla Chico
Cuardradino er blúsinn farinn
að heilsa uppá sömbuna og i
þeim fjórða hugleiðir Ellington
argenti'nskan tango á pianóið.
Svitan er i sjö köflum og lýkur á
magnþrungnum ópus: Brasill-
iance þar sem Gonsalves fer á
kostum.
Fáir djassleikarar hafa hijóð-
ritað önnur eins fim og Elling-
ton og Basie,kennir þar ýmissa
grasa,enþaö besta erþeir gerðu
mun lifa um ókomnar aldir.
Hér áður fyrr var djass-
heimurinn fullur af konungum
og aðalsmönnum: King Oliver,
Earl Hines, Sir. Charlie Thomp-
son, Count Basie og Duke
Ellington voru i hópi þeirra
helstu og Count og Duke
stjórnuðu geggjuðustu stór-
hljómsveitum sem nokkru sinni
hafa leikið á þessari plánetu.
Basie með blúsriffin og rýþma-
sveit sem ekki átti sinn likan.
Eliington með útsetningar og
með Ellingtonbandinu: Clark
Terry og Paul Gonsalves. Þarna
má finna One O’Clock Jump,
Swingin The Blues og geggjaöa
útgáfu frá 1947 á Seventh
Avenue Express.
Á fimmta áratugnum hljóð-
ritaði Basie mikið fyrir Roullete
og franska Vouge hefur nú
endurútgefið öll herlegheitin á
24 breiðskifum. Sú tuttugusta
fæst um þessar mundir f Fálk-
anum: Basie At Birdland. Þar
eftir Vernharð Linnet
Jazz
Haydn endurreistur í
vandaðri, ódýrri útgáfu
Joseph liaydn (1732—1809):
Symfónia nr. 94
„með pákuslætti” og
Symfónia nr. 101 ..Klukkan”
Flytjendur: Ungverska
filharmóniuhijómsveitin
Stjórnandi: Antal Dorati
Útgefandi: TELDEC
„Telefunken-Decca”
6.42215 AH (1974)
Þrátt fyrir gffurleg afköst og
varanlegan sess i tónlistar-
sögunni, var staða Haydns ekki
metin sem skyidi. 1 hálfa aðra
öld eftir dauða tónskáldsins, var
litiö á hann sem tengilið milli
„risanna”, Bachs og Mozarts,
án þess að hann væri nokkru
sinni talinn jafnoki þeirra. Hann
var bara „Papa Haydn”, gæfur
og glaðlyndur piparsveinn, sem
lifði fremur viðburðasnauðri
ævi, að þvi er mönnum fannst.
Að visu var hann talinn „faðir
symfóniunnar” (sem nú þykir
ofsögum sagt), en andagift hans
þótti ekki söm og ofangreindra
tönskálda.
t lok sjötta áratugarins
(nákvæmlega 150 árum eftir
dauða Haydns), var loksins
komið annað hljóð i strokkinn.
Þýski heimspekingurinn og tón-
skáldið, Theodor W. Adorno
(sem nú er þekktastur fyrir að
vera einn af postulum
„Frankfurtar-skólans” i félags-
rannsóknum), kvaðst „vilja
grípa tækifærið”og tjá mönnum
þá skoðun sina ,,að Haydn væri
eitt mesta tónskáld sögunnar,
en jafnframt ákafiega misskil-
inn.”
Þetta varhaft eftir Doblinger-
tónforlaginu i Vinarborg og
komu fullyrðingar Adornos
heim og saman við niðurstöður
rannsókna bandariska tón-
fræðingsins H.C. Robbins
Landon, sem rannsakaö hafði
nótnarit Haydns, allt frá árinu
1948, en hann settist að i Vinar-
borg til aö vinna að athugunum
þessum. Robbins Landon komst
nefnilega að þvi, að flestar
partitúrurnar sem túlkendur
verka Haydns höfðu notað
hingað til, voru brenglaðar að
einu eða öðru leyti og sumar
alrangar. Siöan lagði hann fram
„leiðrétta” útgáfu af symfóniu-
unum, 104 að tölu.
Það er á þessum leið-
réttingum sem ungverski
stjórnandinn Antal Dorati,
byggði fjögurra ára starf sitt,
þegar hann stjórnaöi öllum
þessum symfónium á 48 hljóm-
plötum fyrir Decca. Það tók 281
skipti i hljóðupptökusal og 563
kilómetra af tónbandi, til að
koma þessum leiðréttu symfón-
lum i heild, ásamt nokkrum
aukaverkum inn á hljóm-
plöturnar. Þegarseldist útgáfan
i tveimur milljónum eintaka og
varð til þess, að aðrir listamenn
tóku að spila inn heildarútgáfur
á öðrum verkum Haydns. M.a.
má nefna austurriska pianist-
ann Rudolphe Buchbinder, sem
ieikið hefur allar pianósónötur
tónskáldsins, Aeolian-kvartett-
inn i London sem leikið hefur
alla strengjakvartettana, 83 að
tölu og Haydn-tríóið i' Vin sem
„afgreitt” hefur öll pianótrióin.
Nú er Haydn ekki aðeins
talinn vera einn aðalmótandi
symfóniunnar, heldur miklu
fremur sónötunnar og strengja*
kvartettsins. Þó halda menn
þvifram nú, að fyrst og fremst
sé hann tónskáld söngs og kóra.
Menn hafa að visu aldrei dregið
i efa, að kantötur hans og
óratoriur, væru meðal þeirra
bestu sem samdar hefðu verið,
en undanfarið hefur rykið
verið dustað af óperum hans og
kemur þá ýmislegt óvænt i ljós.
Þar með er augljóst af hvaða
stærðargráðu verk Haydns eru.
Báðar sym fóniurnar á þessari
plötu, eru i flokki svokallaðra
„Lundúna-symfónia”, 12
siðustu verka hans af þeirri teg-
und og eru þær hápunktur
symfóniskra verka Haydns.
Það var þýski fiðluleikarinn
J.P.Salomon, sem hvatti Haydn
til þessara tónsmiða, þegar
hann fékk Haydn til að koma til
Englands itvigang, 1791 og 1794.
Salomon var þá orðinn konsert-
haldari i London og nokkurs
konar „primus motor” i tón-
listarli'fi borgarinnar.
Symfónia nr. 94 i G-dúr, hefur
vérið nefnd „The Surprise”
(undrunin), ef>a „með páku-
slætti”, hvort tveggja vegna
hins hvella pákusláttar i hæga
kaflanum. Þetta eru þó hinar
mestu nafnleysur, vegna þess
að þær beina athyglinni frá hin-
um sterka heildarstrúktúr
verksins. Byrjunin er melódisk
og þróast i dramatiskt Allegro
(Vivace assai). Þá taka við til-
brigði með pákuslættinum
fræga sem enda á finlega
tvinnuðu niðurlagi. A eftir þjóð-
legum Menuett, lokast svo verk-
ið á þróun sem höfðar til fyrsta
kaflans.
„Klukku-symfónian” nr. 101 i
D-dúr, ber nafnfgift af Andante-
kaflanum, með sínu pendúl-
kennda og reglulega tempói.
Þótt þetta áleitna Ostinato sé
stórfengleg tónsmið (og var gef-
ið út sem sérstök tónsmið sið-
ar), er langt frá þvi að symfóni-
an snúist eingöngu um þetta
klukkutempó. Byrjunarkaflinn,
með sinni frjálslegu og flugrænu
þróun frá dramatisku Adagio
yfir i þróttmikið Presto, með
ljóðrænnitvinnun og hliðarivafi,
sýnir hvilikur snillingur forms-
ins Haydn var. Hérfinnurmað-
ur hvað Beethoven á honum að
þakka og jafnvel Berlioz og
Mendeissohn. Var rómantikin
svona langt á undan sinum
tima?
Þriðji kaflinn er svo finlega
unninn menúett með pákuslætti
og breiöu triói. Lokakaflinn er
hrifandi rondo. Senniiega verö-
ur að telja þessa symfóni'u til
tignarlegustu verka Haydns.
Fyrir utan þau meðmæli sem
hér hafa verið rakin og veittu
þessari útgáfu „Grosser
Deutscher Schallplattenpreis”
og „Grand prix du disque”, er
þessi frábæra innspilun Doratis
og Philharmonia Hungarica,
ódýrasta útgáfan sem tilerá is-
lenskum markaði og langt undir
venjulegu hljómplötuverði. Það
ætti ekki að draga úr mönnum
að kynna sér þessa gegnumleið-
réttu túlkun á symfónium
Haydns.