Helgarpósturinn - 09.10.1981, Blaðsíða 11

Helgarpósturinn - 09.10.1981, Blaðsíða 11
—helgarposturinn— Föstudagur 9. október 1981 11 notur kemmtistaður — en eykur ekki f jölbreytni i skemmtana- lífinu Ekki er gott að segja hvers konar stemmning kemur til með að ríkja á Manhattan, nýja skem mtistaðnum i Kópavogi. Það fer að sjálfsögðu eftir fólk- inu, sem kemur til með að sækja staðinn, og sliktræðstekki fyrr en eftir nokkrar helgar. Manhattan er uppá þriðju hæð i húsi við Alfhólsveginn, reyndar við hliðina á lögreglustöðinni i Kópavogi. Þegar upp stigann er komið, er aðalsalurinn til hægri, en minni salur til vinstri. Arko teiknistofan hannaði innréttingar og þær eru við fyrstu sýn ágæt- lega hannaðar. Reyndar minnir stillinn á húsgögnunum dálitið á Þórscafé, enstórisalurinniheild minnir svolitið á Klúbbinn að þvi leyti að dansgólfið er svona hálf- um metra lægra en gólfið i kring, og að borðum er raðað umhverfis. Manhattan minnir lika að þvi leyti meira á eldri skemmti- staðina en þá yngri, að þar rúmast alls um 180 manns við borð (sex manna), en alls er staðurinn fyrir milli 400 og 500 manns. Litið er af öðrum sætum. Það er þvi gáfulegt að panta borð, ætli maður i Manhattan, og þá gefst ef til vill tækifæri til að smakka á réttum hússins þvi m at- ur er seldur þar, likt og i t.d. Þórscaffé. Að sögn eigenda staðarins verður leikin hefðbundin hressi- leg danstónlist i diskótekinu, og á smá prufukeyrslu á blaðamanna- fundi þar um siðustu helgi, kom i ljós að tóngæðin eru óefað fullnægjandi. 1 minni salnum er einnig li'tið dansgólf, en þar verður leikin lágværariog rólegri tónlist. Tveir barir eru í húsinu og báðir nokkuð stórir. I fljótu bragði kann það að virðast yfir- drifið, en til samanburðar má bendaáað i Hollywood eru fimm barir og i Óðali 4, og þessi hús eru svipuð að stærð og Manhattan. Enda sagði eigandi Manhattan að barirnir yrðu tveir til að byrja með, en svo yrði bætt við ef þörf væri á. Að sögn eigendanna verður klæðaburður leyfður öllu frjálslegri en á „gömlu” stöðun- um — t.d. Sögu og í Þórscafé. Ekki er nauðsynlegt að vera með bindi, eða i jakkafötum. Það er hinsvegar augljóst á klæðnaði þjónustufólksins aðgallabuxur og lopapeysur verða ekki vel séðar. Klæðnaður þjónustufólksins er reyndar sér kapítuli, nú á dögum jafnréttis o.s.frv. Þetta er nefnilega eins og i auglýsingunni frægu. Karlþjónarnir eru i venju- legum smóking, en kvenþjónarnir i svörtum netsokkum og sund- bolum, svo minnir á Playboy- klúbba. Þaðerbara vonandi, ekki sist stúlknanna vegna, að þær fái vinnufrið i þessum fötum. Manhattan virðist semsagt vera á engan hátt óglæsilegri staður en bestu skemmtistaðir borgarinnar sem fyrir eru. Og eigendur eru allsendis óhræddir við staðsetninguna. — GA. Flestir skem mti staðanna virðast hafa yfrið nóg af gestum um helgar. Það sést t.d. á biðröðunum sem blasa við á vissum timum föstudags- og laugardagskvölda. Nýr skemmti- staðurer því velkominn, þvi'hann eykur möguleikana á þvi að kom- ast einhversstaðar inn án þess að verða holdvotur eða kalinn. Gallinn er hinsvegar sá að þessi nýi staður eykur ekki mikið uppá fjölbreytni i skemmtanah'fi. Hann er að visu á öðrum stað á Stór- Reykjavi'kursvæðinu en hinir staðirnir, en að öðru leyti er hann afskaplega keimlikur þeim. Skemmtistaðir borgarinnar hafa um helgar boðið uppá það sama lengi, þ.e. áfengi, tónlist, dansgólf og sæti, þó húsakynnin séu mis- munandi aðlaðandi. Að fara á slikan stað hefur jafnlengi verið hefðbundin helgarskemmtun Reykvikinga. Manhattan breytir engu i þvi sambandi. Þjónustustúlkur Manhattan eru klæddar á óvenjulegan hátt En tfskusýningarfólkið á heidur venjulegan NEFS hefur hleypt miklu lifi i tónlistina að undanförnu, og þar verða nú tekin upp „þurr” kvöld fyrir yngstu tónlistaraðdáendurna. NEFS-kvöldum fjölgar: „Á eftir að efla gengi rytmiskrar tónlistar” „Reksturinn á NEFS-klúbbn- um hefur gengið mjög vel. Að visu hefur rokkið verið yfir- gnæfandi, þarseni þeir hafa verið i svelti, eftir að erfitt varð um vik á Borginni”, sagði Vernharður Linnet hjá Jazzvakningu, þegar hann var spurður um hið nýja musteri lifandi tónlistar i landinu. Vernharður sagði, að djass- kvöldin myndu byrja i þessum mánuði, og yrðu þá minnst tvær hljómsveitir á kvöldi til að fjöl- breytnin mættivera sem mest, og þá sagði hann að trúlega yrðu gesta sólistar, sem lékju með Wjómsveitunum. Stefnan væri að fá hingað erlenda sólista, bæði i djass, blús og rokki til að leika með innlendum hljóðfæraleikur- um. Þar sem NEFS-klúbburinn er með vinveitingar hefur orðið að meina yngri tónlistaraðdáendum aðgang. A þessu verður nú ráðin bót, þvi fyrirhugað er að bæta miðvikudagskvöldunum inni, og verða þau „þurr”, eins og i þá gömlu góðu daga. Vernharður sagði, að með þessum klúbbi væri fyrst kominn grundvöllur til að fá hingað erlenda sólistai rytmiskri tónlist, til að spila með Islendingum. „Þessi klúbbur breytir þvi, að þarna er öruggur samastaður. Það þarf ekki að vera að betla húsnæði. Auk þess höfum viðyfir- leitt ekki.fengið neins staðar inni um helgar. Það er ekkert vafa- mál, að klúbburinn á eftir að efla mjög gengi rytmiskrar tónlistar i landinu’,’ sagði Vernharður Linnet.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.