Helgarpósturinn - 09.10.1981, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 09.10.1981, Blaðsíða 24
24 Föstudagur 9. október 1981 H&lgarpÓsturinn BLA BLA BLA Haukur Mortens hefur sent frá sér litla tveggja laga plötu, en þaö er hljómsveitin Mezzoforte sem sá um undirleikinn á plötunni. Fyrirhugaö er aö Haukur og Mezzoforte fari i stúdlóiö á ný til aö vinna aö gerö nýrrar breiö- skifu. Þaö er Steinar h.f. sem gef- ur plötuna út. Þá er Steinar h.f. aö fara I gang meö aö framleiöa plötur erlendra listamanna, m.a. meö Ultravox, sem nefnist Rage og Eden, Mad- ness sem nefnist 7, en þaö er þriöja plata þessa pilta. Einnig 12 laga safnplata meö Peter Sar- stedt, en á nokkrum lögum henn- ar leikur hljómsveitin Mezzo- forte, sem getiö hefur sér góös orös erlendis. Þá má nefna lista- mennina Blondie, Billy Joel, Pol- ice, Frank Zappa, Youis, Willie Nelson, Karla De Vito, Gary Nu- man og Elvis Costello. Sumsé Steinar h.f. á fullu. <P;AnK o r i ki.ju>ann / Hljómsveitin Graflk frá ísafiröi er I þann mund aö senda frá sér slna fyrstu hljómplötu. Félagar hljómsveitarinnar eru fimm, Orn Jónsson, bassaleikari, Vilberg Viggósson hljómborðsleikari, Rúnar Þórisson sem leikur á gít- ar og syngur, Rafn Jónsson trommuleikari og slöast en ekki sist Ólafur Guðmundsson Söngv- ari. Grafikmenn eru meö allt efni plötunnar frumsamiö, nema einn textanna, sem er eftir Þórarin': Eldjárn. Þeir standa sjálfir aö út- gáfu plötunnar. Jonee-Jonee Igóöum filing I Þjóöleikhúskjaliaranum. Ljósm.: Helgiörn. Jonee-Jonee leggur línuna Jonee-Jonee, er ein af þessum splunkunýju hljomsveitum sem nú spretta upp eins og gorkúlur hér á Stór-Reykjavikursvæðinu. Þegar ég leit inni Þjóöleikhús- kjallarann á mánudagskvöldiö var hljómsveitin aö troöa upp i fyrsta sinn, aöeins mánaðar- gömul. Ég verö að segja eins og er að mér leist alveg sérstaklega vel á þessa hijómsveit. Félagar hennar höfðu friska framkomu og voru frumlegir og skemmtilegir I lagavali sinu. í hljómsveitinni Jonee-Jonee eru þrlr strákar. Sá með bláa hárið heitir Þorvar Hafsteins, syngur og spilar eitt grip á gitar (a-moll), Bergsteinn Björgiílfs er með skærrautt hár og spilar á trommur og raddar svolitið. Einar Kristján sé um bassaleik og söng. Einar er með gult hár. Það var ekkert því til fyrirstöðu að rabba við strákana i pásu i Þjóðleikhúskjallaranum. — Af hverju heitir hljómsveitin Jonee-Jonee? „Þetta er sexí nafn og hljómar vel ”. — Sexi?? ,,Já, það leitast allir við að vera sexi, á einhvern hátt.” Grunntónlist og afbrigðihennar — Þetta eru fyrstu tónleikarnir sem þið spilið á, hvernig stóð á þvi að þið hófuð samspil? „Þaö hefur lengi staöiö til og loksins drifum viö okkur I þaö.” — Hljóðfæraskipanin er nokk- uð sérstök hjá ykkur, bassi og trommur... „Þetta eru undirstööuhljóöfæri, rétteinsog litirnir á hárinu okkar eru grunnlitirnir i litrófinu. Það má þvi segja að öll tónlist sé af- brigöi af okkur. Þetta er grunn- urinn.” Sexí tónlist og góðir textar — Getiði skilgreint tónlist ykkar ? „Það er nú það. Hún er sexi. Við erum samt ekki á linu Adam and the Ants og ekki á Purrks lin- unni. Ef við eigum að skella ein- hverju nafni á tónlistina getum við sagt aö okkar tónlist sé rabar- baratónlist. Við viljum gjarnan nota tækifærið og koma þvi hér á framfæri að hljómsveitin okkar er afmælisgjöf til Gisla, en hann er innan handa i textagerð.” — Hvert er ykkar yrkisefni? „Allt og ekki neitt. Og þó ekki kannski allt. Það er eiginlega ekkert sérstakt. Textarnir eru einfaldlega mjög góðir, eins og allt annað sem frá okkur kemur. — Þá þykir mér rétt að birta hér einn góðan texta... Kerfið Égvar mættur skólinn fullur af merkjum og táknum en fyrst og fremst stimpill 1,8, 10. Einn af þúsund á fremsta bekk á aftasta bekk. úr tima í tima. „Hættiö að auglýsa skósóla niöur meö fæturna og upp með skólabækurnar!” Föstudagur himnariki mánudagur helvfti ég var órakaður og illa tiireika ég var mættur. Ég fór einu daginu kvaddi ekki einu sinni einn bQI af mörgum á ieiö. Vinna færibönd múrverk. „Færöu fiskinn hraöar strákur”! „Aöra hræru og hafð’ana betri drengur”! Á morgun er framtlö og framtiðinni sleppi ég ekki kerfiö sleppir mér ekki og þar sem enginu sleppir neinum þá kemst ég ekki. Ég var drengur en er búinn að raka mig einn af þúsund eiun af mörgum einn af ... eiun af ... eiun af ... einn af einhverjum. Enginnrekinn af lóðinni — Er gaman að búa á Islandi? Blái: „Nei”, Rauði: „Já”. Guli: „Það væri i lagi ef ákveðnar persónur yrðu fjarlægðar.” „Annars er okkar hljómsveit sú mest sósíal sem til er. Það er eng- inn rekinn út af lóðinni.” — Hvað er svona spennandi við að vera I hljómsveit???? „Það er að njóta þess að spila og svo erum við allir exhibitim- istar (með sýndarmennskubrjál- æði). Við höfum lengi haft áhuga á að leggja tónlist fyrir okkur og vinnum markvisst að þvi.” — Hafið þið einhverja stefnu- skrá? „Nei. Við erum orðnir þreyttir á öllum stefnum. Það var svo mikið að gera i dag að við máttum ekki vera að þvl að marka hana,” segja strákarnir að lokum. Þeir mega ekki vera að þessu rabbi lengur og þjóta uppá svið og syngja. 'PÓSTUR OG SÍMI-» Halló Stuöari! Ég og viukona min vorum aö pæla i þvi að i sumar þegar við vorum að leita okkur að vinnu vorum við ekki gjald- gengar i hvaöa störf sem var. En strákarnir fengu betri viniiu sem varbetur borguð en okkar.Okkur fiimst það fúlt að við fáum ekki jafn mikið kaup þvi við unnum sko alveg eins íengi og þeir. Hvaö finnst ykk- ur? A maður að láta svona viögangast? Bless — S -f-1 —F R. Jú,okkur finnst þetta fúltog það finnst fleirum. Svona nokkuð á ekki að láta viðgang- ast, enda eru stelpur og konur nú farnarað snúa bökum sam- an til þess að reyna að hafa áhrif á misréttiö með þvi aö bindast samtökum sem berj- ast gegn þvi. Hérna I Reykja- vik er Rauðsokkuhreyfingin. Þau samtök sem láta sig þessi mál mestu varða. Það gæti verið þarflegt fyrir ykkur að heimsækja þær. t gær byrjaði námskeið hjá rauðsokkuhreyfingunni þar sem leitast verður við að skýra orsakir misréttisins og reynt að finna leið til lausnar. Auðvitað gerist ekkert nema að konur og stelpur berjist sjálfar gegn misréttinu. Karl- arnir eru orðnir svo vanir þvi að hreiðra vel um sig i kerfinu sem er mótað I kringum þeirra þarfir. — Þið getið komið á þetta námskeið I hreyf ingunni, gengið i rauðsokkahreyfing- una. Eða stofnað hreyfingu i ykkar skóla og rætt málin og reynt að komast niður á góða baráttuaðferð. Afram stelpur . — og góða skemmtun. Utanáskriftin er Stuðarinn c/o Heigarpósturinn Síðumúfa 11 • 105 Reykjavík Sími: 81866

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.