Helgarpósturinn - 09.10.1981, Side 25
helgarpósfurínn Föstudagur 9. október i98i
Við vitum vel að i nokkrum fög-
um fáið þið stundum að ráða þvi
sjálf hvað þið gerið og hvernig.
Það eru venjulega þau fög sem
foreldrarnir og hinir kennararnir
telja. einskisvirði. Það eru fög
eins og leikfimi, söngur, handa-
vinna og þessháttar.
Ef kennari ykkar gefur ykkur
tækifæri til að fást sjálf við hlut-
ina, hjálpið honum þá með þvi að
nota þetta tækifæri. Munið að
kennari ykkar getur verið
óöruggur og ekki vel heima i nýj-
um aðferðum. En það skiptir
mestu máli að hann sé reiðubúinn
að reyna þær.
Oftast er hann lika hræddur við
að þið gerið eitthvað sem hinir
kennararnir gætu gagnrýnt hann
fyrir. Þeir gera kannski gys að
honum af þvi aö hann reynir eitt-
hvað nýtt með ykkur. Þeir öttast
að nemendur vilji heldur hann og
hans aðferðir: Þeiróttast að nem-
endur fari að gagnrýna þeirra
I skólanum
i skólanum er skemmtilegt að vera
Nú eru flest ykkar byrjuð aftur
i skólanum. Vafalaust gleður það
marga, en þó grunar mig að inn á
milli leynist ein(n) og ein(n) sem
er hálf döpur (dapur) yfir aö
þurfa að arka Iskólann á hverjum
degi. En hvað um það — ég fann I
fórum minum bók sem kom út
árið 1971 hér á landi og heitir
Rauða kverið handa skóla-
nemum. Hún fæst hjá Sambandi
islenskra námsmanna, sem er tii
húsa i Féiagsstofnun stúdenta.
Ég fékk góðfúslega leyfi hjá SÍNE
að birta hér brot úr bókinni, og
hver veit nema meira verði birt
úr henni seinna.
Hvað er stundaskrá?
I skólanum er mikið dálæti á
reglum. Menn vilja að reglur gildi
um vinnutima kennara og nem-
enda. Einnig að friminiítur nem-
enda og kennara séu samtimis.
Þannig er auðveldara að hafa
taumhald á nemendum á skóla-
lóðinni.
Til að tryggja að þið lærið nög I-
öllum fögum, er það einnig
ákveðið hversu marga ti'ma þið
fáið t.d. I landafræðieða islensku.
Menntamálaráðuneytið ákveður
hversu marga tima þið eigið að
hafa á árinu. Skólinn ákveður
hvernig þeim er skipt niður.
Það er ekki auðvelt fyrir skól-
anri að hafa reiðu á öllu þessu. Til
að friða samviskuna er búin til
stundaskrá. Það var tekið upp á
miðöldum að búa til stundaskrá,
eins og þið hafið i skólanum. En
það eru margar aðrar leiðir.
Það má til dæmis gera stunda-
skrá yfir hálfan mánuð i staðinn
fyrirviku. Þá má vinna að hverju
fagi lenguri'einu.Það má likaslá
mörgum timum saman, þannig
að unnið sé heilan dag að hverju
fagi.
Sums staðar erlendis hefur
skipulagi bekkja verið breytt.
Þar eru til skiptis t.d. 100 börn i
fyrirlestri, eða þau vinna saman i
litlum hópum, þar sem léttara er
að ræða um efnið. Það má lika
hafa stundaskrána þannig að
nemendum sé ekki skipt niður
eftir aldri, heldur eftir þvi hve
mikið þeir kunna i faginu.
Það eru ýmsar leiðir til. En
auövitað er alltaf auðveldast að
halda áfram eftir þeirri gamal-
kunnu.
Sumir nemendur geta lært að
lesa og skrifa á helmingi styttri
tima en stundaskráin segirtil um.
Aðrir þurfa kannski þann tima
tvöfaldan. Sumir kennarar þurfa
kannski tvöfaldan þann tima sem
stundaskráin segir til um, til að
kenna ykkur eitthvað. Oðrum
nægir helmingur þess tima.
Maður skyldi þvi ekki ætla að
fjöldi tima ráði öllu um það hvort
þið lærið efnið.
Kannski ertuverri ii'slensku en
félagar þinir. Þú þarft kannski 16
tima meðan þeir þurfa 8. En
stundaskráin ætlar ykkur öllum
jafnlangan tima.
Níu kennarar af hverjum tiu
kenna það sem kallað er bekkjar-
kennsla, þannig að þeir ákveða
sjálfir hvaö talað er um, hvað
lesið er eða skrifað.
öðruhverju spyr kennarinn
ykkur um eitthvað, eða tekur ein-
hvern upp. Hann spyr ykkur ekki
til að heyra álit ykkar á neinu.
Venjulega spyr hann ykkur til að
gá að þvi' hvort þið fylgist með,
eða hvort þið hafið skiliö hann.
Oft spyr hann ykkur til að minna
ykkur á, að hann sé viöstaddur.
Þó að það hafi löngum verið
vitað að 40—45 minútur séu I
mörgum tilvikum of langur tími,
ef kennt er á þennan hátt, eru
timarnir ennþá 40—45 mfnútur,
og enn er bekkjarkennslan við
lýði.
Sumir kennarar halda aö þeir
kenni hver jum nemanda fyrir sig,
ef þeirhlýða einum yfir i einu. En
ef bekkurinn leggur við hlust-
irnar, þá er þetta bekkjar-
kennsla. Þeir fá ykkur kannski
bók til lestrar i lok timans, og þið
lesið kafla úrhenniog ræðið siðan
um hana. Þeir skipta timanum
kannski niður,þannig að þið lesið
bæði og talið saman i sama tima,
eða þeir láta sér nægja að hlýða
ykkur yfir gömlu lexiuna og fara
ýfir þá nýju.
Þetta allt er bekkjarkennsla.
Kennarinn ákveður einn hvað
gert er.
Örvun
Til að þið sofnið ekki alveg,
kemur stundum fyrir að kennar-
inn noti skuggamyndir, segul-
band eða myndir i timum, ef slikt
er fyrir hendi i skólanum. Það er
auðvitað ágætt að nota fleira en
bækur og vinnuhefti.
En oft er þetta gert af því að
það þarf að lokka nemendur til
að fást við eitthvað sem þeir hafa
ekki minnsta áhuga á, eða þeir
hafa allsengin not fyrir þegar
skólanum sleppir.
Þetta heitir að örva nemendur.
Það mætti alveg eins kalla þetta
beitu. Þegar ekki er hægt að örva
áhuga nemenda á sjálfu efninu er
reyntaðgera alltf kring um efnið
skemmtilegra. A þennan hátt er
hægt að narra nemendur til að
eyða timanum til einskis.
Reynið að nota svona lagað til
að sniia ykkur að einhverju sem
þið hafið áhuga á, og er þess
vegna nytsamt, þó að það komi
faginu ekki við.
Hvernig gerir sá tiundi?
Hann viil kannski heldur láta
ykkur sjálf um það hvort þið
vinnið hvert fyrir sig, tvö og tvö
eða i hópum. Hann lætur ykkur
kannski um það, að hverju þið
vinnið innanþessfags sem hann á
að kenna ykkur.
Hann lætur ykkur fá verkefni —
og örfáar ábendingar um hvað þið
getið gert — og lætur ykkur um
það sem eftir er. Kannski sendir
hann ykkur á einhvern stað til að
afla ykkur upplýsinga. Kannski
dembir hann yfir ykkur eitt-
hverju efni til úrvinnslu, og þið
verðið að þreifa ykkur áfram
sjálf. Það getur verið erfitt en það
er lærdómsrikt.
eigin úreltu aðferðir.
Kennari sem vill láta ykkur
reyna eitthvað nýtt, getur lent i
útistöðum við foreldra ykkar.
Margir foreldrar halda að sú
kennsla sem þeir sjálfir faigu sé
sú eina rétta. Þeir óttast að
börnin læri ekki nóg, ef ekki er
barið inn ihausinn á þeim, eins og
var gert þegar þeir voru i' skóla.
Ef þið eruð svo heppin að fá
svona kennara, er skynsamlegt
að hafa ihuga hvaða erfiðleikum
hann getur lent i. Hann þarf á
stuðningi ykkar að halda. 1 stað-
inn hafiö þið meira gagn af hon-
um við aö breyta hlutum sem eru
ekki eins og þeir eiga að vera.
Hann er næstum alltaf til viðtals
og getur gefið góð ráð og hug-
myndir — og hjálp við hagnýta
hluti.
Ef þér leiðist
Ef þér leiðist i timum, og ef þú
getur ekki fengið kennarann til aö
breyta kennslunni, svo að hún sé
ekki eins leiðinleg — þá getur þú
alltaf „flúið”.
Þú kannast vel við sumar
þessar undankomuleiðir: senda
hvert öðru bréfmiða, teikna i
bækurnar, leika sér að reglu-
striku og strokleðri, búa til
pappirsskútlur undir borði, hugsa
um hvað eigi að gera þegar skól-
inn er búinn, lesa myndasögur,
reyfara eða kíámblöðundirborði.
Það er skiljanlegt að þið reynið
þessar undankomuleiðir, og hér
éru enn nokkur dæmi um hvernig
má komast undan leiðinlegum
timum:
Gera fjárhagsáætlun og gera
sér grein fyrir hvernig fjármálin
standa.
Skipuleggja fritimann.
Skrifast á við annan sem leiðist,
um kvikmynd, eitthvað Ur sjón-
varpinu eða annað sem þið hafið
áhuga á.
Sendið bréfmiða með upplýs-
ingum um bekkinn.
Skrifa smásögu eða lesenda-
bréf til blaðanna — kannski um
tlmann sem þú situr i. Lesa i
„Rauða kverinu handa skóla-
nemum”. Koma góðri bók fyrir i
samskonar kápu og skólabækurn-
ar þinar eru i, og hafa hana með
þér i timann.
Teikna i bók sem litur út eins og
minnisbókinþin. Kennarinn held-
ur að þú sért aö hripa niöur til
minnis.
Yrkja eða skrifa sögu á kápu-
siðumar i bókinni þinni.
Skrifa einhverjum sem þú hef-
ur ætlað að skrifa lengi.
Hvað eru ólæti?
Ólæti eru lfka undankomuleið.
Þú ferð að láta illa ef þér leiðist.
Með ólátum er hægt að sleppa við
kennara sem erekkinógu strang-
ur til að þið séuð hrædd við hann.
Þið látið oft illa af þvi að ykkur
hefur hundleiðst i timanum á
undan — eða af þvi að reglur skól-
ans eru of margar og strangar.
Það eru eðlileg viðbrögð.
Mörg ykkar látið illa hvenær
sem forfallakennari eða nýr
-Umsjón: Jóhanna Þórhallsdóttir-
kennari kennir ykkur. En munið
það, að sumir kennarar eru
strangir eða leiðinlegir fyrst I
stað, af þvi að þeir eru hræddir
við ykkur.
Það borgar sig að gefa þeim
tækifæri. Sumir kennarar vilja
kenna vel, en fá það hreinlega
ekki fyrir ólátum. 1 rauninni ætt-
uð þið fyrst að fara að láta illa,
þegár þið eruð orðin fullviss um
að kennarinn sé leiðinlegur, og að
alls ekki sé hægt að fá hann til að
betrumbæta sig.
Frumskilyrði þess að þið læriö,
er aö þið séuð virk. Það þýðir að
þið hafist eitthvað sjálf að i tim-
um. Þið eruð ekki virk ef þið sitjið
bara og hlustið. Þið eruð ekki
heldur virk ef þið sitjið bara og
látið ykkur leiðast. Reynið að
gera kennara ykkar það skiljan-
legt.
Það er alltaf gott að spyrja
kennarann vafningslaust hvers-
vegna hann gerir þetta eða hitt.
Gerið það munnlega eða skrif-
lega.
Ef þið farið aö spyrja kennar-
ann, svarar hann kannski stutt-
aralega fyrst i staö, eða hann
reiðist. Spyrjiö hann samt.
Enþað er hyggilegt af ykkur að
hafa fylgst vel með þvi hvemig 10
siðustu ti'mum hefur verið varið,
áður en þið fariö að spyrja. Reyn-
ið t.d. að bóka niður um reikn-
ingstimana, svo að hægt sé að sjá
hvort nokkuö hefur verið gert
annað en að fara yfir heimadæmi
fyrst i timanum, og siðan reikni
hver og einn áfram eins og hann
best getur.
Ef 10 siöustu timarnir hafa far-
ið fram á nákvæmlega sama hátt,
getiö þið spurt með réttu, hvers
vegna ti'marnir séu hver öörum
likir.
Kannski notar kennarinn tim-
ann til allsannars en þess sem
stendur á stundaskránni. Hann
segir frá hinu og þessu. Það er
kannski auðvelt að fá hann til að
segja frá, ef þið spyrjið hann um
eitthvað. Notið ykkur það. Komið
af stað umræðum um eitthvað
sem þiöhafiö áhuga á, isambandi
við skólann eöa kennsluna.
Það þarf að gera mörgu öðru
skil i skólanum en kennslunni
sjálfri. Gagnfræöaskólakennarar
frá laun fyrir sumt af þvi, en
barnaskólakennarar edcki. Þessi
verk eru venjulega unnin af
áhugasömustu kennurunum, af
þvi að félagar þeirra nenna ekki
að gera þau.
Ef kennari gerir eitthvað i tim-
um, sem hann fær aukapening
fvrir, en kemur ekki skólanum
við, getið þið mótmælt þvi. Hann
er þarna vegna ykkar, en ekki til
að leiðrétta stila, færæ inn ein-
kunnir eða lesa dagblað.
Enef hann erað vinna að skóla-
blaðinu ykkar eða aðstoða ykkur
við félagslifið, þá er það annað
mál. Kannski getið þið veitt hon-
um aðstoð ykkar eða gefið honum
góð ráð.
Látið ekki binda ykkur
Árið 1960 var gefin Ut námsskrá
fyrir nemendur á fræðsluskyldu-
aldri, sem ,,á fyrst og fremst þvi
hlutverki að gegna, að leiðbeina
kennurum og skólastjórum um
starfstilhögun og námsefni i hin-
um ýmsu námsgreinum”. Náms-
skrána er hægt að fá lánaða i
bókasafni eða með þviað snúa sér
til Fræðslumálaskrifstofunnar i
Borgartúni 7. 1 henni eru ýmsar
góðar ábendingar um kennsluna.
Segið kennurunum eða skóla-
stjóranum frá þeim. Spyrjið af
hverju sé ekki farið eftir þeim.
Það er rétt aö geta þess, aö ný
námsskrá á að koma út eftir örfá
ár.
Það eru lika til námsskrár fyrir
landsprófsdeildir og samræmt
gagnfræðapróf. Þær má lika
nota sem grundvöll að umræðum
um námið og kennsluna.
Eftir að skyldunámi lýkur er
kennurum i sjálfsvald sett hvaða
bækur þeir nota. Þeir geta valiö
um bækur. Látið óskir ykkar hik-
laust i ljós. Leitið áður álits
þeirra nernenda sem eru komnir
lengra. Þeirþekkja bækurnar. Ef
ykkur finnst kennslubók of þung
eða leiðinleg, skuluð þið spyrja
kennarann hvort ekki sé hægt að
fá aðra. >
Margir halda aö það sem biíið
sé að prenta á bók, sér í lagi
kennslubók, sé einhver heilagur
sannleikur, þar sé allt sem skipti
máli, um ákveðið efni. íslands-
saga er ekki það sem stendur i
ákveðinni kennslubók, og Frakk-
land er ekki það sem stendur á
bls. 30 - 40 i annarri. 1 bókunum
standa ákveðin atriði um efnið,
þau sem höfundurinn telur mikil-
vægust. Annar höfundur mundi
að sjálfsögðu velja öðurvisi. Og
hver og einn hefur rétt á að hafa
áhuga á öðrum atriðum varðandi
efnið en kennslubokin minnist á.
;Og þegar kennslubókahöfundar
lýsa skoðunum sinum, hefur hver
sem er leyfi til aö vera ösam-
mála.
Plata sem enginn hefur
beðið eftir...
...en kemur örugglega
á óvart
Hljómsveitin Grafik frá ísafirði sendir
nú frá sér sina fyrstu hljómplötu,
sem m.a. inniheldur lögin:
Videó, í múrnum og Guðjón
Þorsteinsson bifreiðastjóri