Helgarpósturinn - 09.10.1981, Page 27
27
ha/rjF*rpnc?h irinn Föstudagur 9. október 1981
Enn einu sinni er farið að styttast i það,
að fuiltrúar launþega og atvinnurekenda
setjist að samningaborðunum. Tvenn af
fjölmennustu launþegasamtökunum hafa
þegar sagt upp samningum. I lok septem-
ber sagði BSRB samningum lausum,
miðað við áramót, og skömmu siðar sagði
ASI upp sinum samningum með mánaðar
fyrirvara, sem þýðir að þeir verða lausir
strax um næstu mánaðamót.
JJab var raunar strax i ágúst, að,
fyrstu yfirlýsingar um væntanlega kjara-
samninga tóku að berast. Þær voru á
þann veg, að kröfur yrðu hógværar, settar
fram með tilliti til baráttu rikisstjórnar-
innar við verðbólguna, og aðal áherslan
yrði lögð á að tryggja kaupmáttinn frekar
en fara fram á grunnkaupshækkanir.
En fyrstu fregnir af þeim kröfum sem
má búast við að verði lagðar fram við
samningaborðið seinna i haust benda ekki
til mikillar „hógværðar”. Alþýðusam-
band Vestfjarða hefur þegar tilkynnt
kröfur sinar i grundvallaratriðum. Krafa
Vestfirðinga um grunnkaupshækkun
hljóðar upp á 15%. En sú tala segir ekki
allt. Þeir setja lika fram kröfu um flokka-
tilfærslur og ýmis fleiri atriði, sem sam-
kvæmt heimildum minum þýða að
minnstakosti 10% hækkun til viðbótar.
Kröfugerð heildarsamtaka ASI er ekki
komin eins langt. Björn Björnsson hag-
fræðingur sambandsins segir, að miðað
við þann kaupmátt sem stefndi i við
kjarasamningana 1977 þyrftu taxtar
Verkamannasambandsins að hækka um
6—11%.
— Það fer eftir þvi hvað mikið tillit er
tekið til félagslegra aðgerða, hvað launin
þurfa að hækka. Ef fullt tillit er tekið til
þeirra reiknum við með að hækkunin
þurfi að vera i lægri kantinum, en ef
ekkert tillit er tekið til þeirra þarf hún að
vera 10—11%, segir Björn Björnsson.
^em dæmi um þessi laun má nefna,
að 8. launaflokkur, sem er algengastur
meðal fólks i fiskvinnu og hafnarvinnu,
nemur kr. 4690 á mánuði fyrir dagvinnu,
L
Grunnkaup fólks i fiskvinnu er 4900 krónur
á mánuði fyrir dagvinnu.
eftireitt ár. Niundi launaflokkur er sömu-
leiðis algengur i fiskvinnu, en eftir fjögur
ár nemur hann kr. 4936.
Þótt telja megi fullvist, að gerðar veröi
kröfur um ekki minna en 11% hækkun á
þessum launum, jafnvel 15%, hafa þær
ekki enn verið settar á blað. Einhver drög
að kröfum hafa þó verið gerð, sem
væntanlega verða lögð fram þegar aðal-
samninganefnd ASI kemur saman 20.
október.
En þar má þó gera ráð fyrir, að auk
grunnkaupshækkunar verði megin
áherslan lögð á tryggingu kaupmáttar
með veröbótum, og að komið verði i veg
fyrir að kaupmátturinn sveiflist eins
gifurlega milli útreikningsdaga verðbóta
og verið hefur.
Undirbúningur kröfugeröar rikisstarfs-
manna er lika i mótun. Formannaráð-
stefna BSRB ákvað i lok september
nákvæma áætlun um það hvernig verður
fram gengið i að móta kröfurnar. Vikuna
28. sept. til 8. okt. var ætlunin að félögin
innan BSRB settu fram óskir sinar um
breytingar á þeim kröfum, sem settar
voru fram á formannaráðstefnunni og
sendu þær skriflega á skrifstofu BSRB.
Þar eru þessar óskir siðan fjölfaldaðar og
sendar samninganefndarmönnum, sem
koma saman 19. október til að setja
saman drög að kröfugerð. Þau drög verða
svo kynnt á fundum I félögunum fram til
mánaöarmóta, og á þeim fundum á jafn-
framtaö fara fram skoðanakönnun meðal
félagsmanna varðandi kröfugerðina.
Strax á eftir verður gengið endanlega frá
kröfunum og gert ráð fyrir, að samninga-
viðræður hefjist þegar i byrjun nóvember.
H BSRB eins og ASt, hefur verið
reiknað út hverrar grunnkaupshækkunar
er þörf til að ná þeim kaupmætti, sem
hefði oröið ef samningarnir frá 1977 hefðu
staöiö óbreyttir.
— Mér er eiginlega illa við að nefna
nokkra tölu, þvi þetta rokkar svo svaka-
lega, eftir þvi hvenær hún er reiknuð út,
segir Björn Arnþórsson hagfræðingur.
BSRB.
— En i ágúst hefði hækkunin þurft að
vera 19,19% á 13. launaflokk. 1 september
komu 8,92% visitölubætur, og þá hoppaði
kaupmátturinn i sama þunkt og hann var i
júni, segir Björn Arnórson
Enda þótt þessi 19% geti gefið visbend-
ingu um það, hverskonar kaupkröfu má
vænta frá BSRB er ekki þar með sagt, að
hún muni gilda yfir linuna. Erfitt er að
gera sér grein fyrir þvi hvernig henni
verður skipt milli launaflokka. Þó er ljóst,
að miðflokkar BSRB, þ.e. launaflokkar
10—20, hafa sigið i kaupmætti meira en
aðrirflokkar. Til að jafna það bil, þannig
að launamunur i krónutölu verði sá sami
og ætti að vera miöað við samningana
1977þyrftiaðhækka þá frá 11,97% eða um
1096 krónur (20.1fl) upp i 14,74% eða um
998 krónur (11. lfl.)
Onnur skekkja sem orðið hefur á
launaflokkum BSRB frá 1977 er sú, að 20.
flokkur er 1,7 sinnum hærri en 5. flokkur i
krónutölu, en munurinn i kaupmætti er 1,5
Það sem veldur þessari skekkju er fyrst
og fremst fyrirkomulagið á skatt-
stiganum. Að mati heimildarmanna
okkar innan BSRB er þetta eitt af þvi sem
þarf að lagfæra.
A þessu launabili eru 85% félagsmanna
BSRB. En fjölmennasti launaflokkurinn
YFIRSÝN
Launakröfur í burðarliðnum
Hitastigið i nornakatlinum sem bullar og
kraumar i löndunum fyrir Miðjarðarhafs-
botni hefur hækkað til muna við morðið á
Anwar Sadat, forseta Egyptalands. Nýr
maður og óreyndur, Hosni Mubarak, tekur
við völdum i fjölmainasta riki á þessum
slóðum af leiötoga sem undanfarinn áratug
hefur öðrum fremur mótað þar rás við-
burðanna. Sadat varð fyrstur leiðtoga ná-
grannarikja Israels til að sýna Israelsher i
tvo heimana á vigvelli i striðinu sem kennt
er við yom kippur-hátiðina. Þegar hann
komstsvo aö raun um að sovétstjórnin var
ófáanleg til að efla svo egypska herinn að
hann yröi þeim fsraelska verulegur ofjarl,
sneri hann við blaðinu og leitaði friðar-
gerðar við Israel með tilstyrk Bandarikj-
anna.
Sadat
Óvissa og háski fylla tómið
eftir Sadat
n eins og fyrri daginn hrökk stuðn-
ingurstórveldisins skemmra enSadat hafði
vænst. Bandarikjastjórn skirrist við aö
beita Israelsstjórn þeim þrýstingi, sem
dugir til að gera alvöru úr fyrirheitum
Camp David-samkomulagsins um sjálfs-
stjórn til handa Palesti'numönnum á her-
numdum svæðum. Hátt i ár lét Sadat viö-
ræður um sjálfsstjórnarmálið liggja niöri,
og þegar þær hófust á ný fyrir skömmu
höfðu fulltrúar Israelsstjórnar fátt nýtt til
mála aö leggja og ekkert sem verulegu
máli skiptir.
Viö fráfall Sadats hefur óvissan um
framhald Camp David-viðræðnanna aukist
um allan helming. Hann gat,vegna þess
sem á undan var gengið og myndugleikans
sem þaö léöi honum, sætt sig við ýmislegt
af hálfu Begins og hans nóta i stjórn Isra-
els, sem óhugsandi er að stjórn undir for-
ustu Mubaraks þoli. Ekki er að búast við
að Egyptar hugsi sér til hreyfings alveg á
næstunni, þvi enn er misseri þangaö til
Israel skilar afganginum af Sinaiskaga úr
hernámi i aprilnæsta vor. En ef samninga-
viðræðurnar um málefni Palestinumanna
hjakka þá enn i sama farinu, hljóta
Egyptar aö taka að ókyrrast. Friðargerð
Sadats við Israeleinangraði þá frá flestum
öðrum arabiskumælandi þjóðum, og beri
friðarsamningurinn ekki tilætlaðan ár-
angur i þágu hins arabiska málstaðar Pale-
stinumanna, getur einangrunin orðið
Egyptum óbærileg.
Nú á næstunni veltur framvinda mála
mest á þvi', hvort Bandarikjastjórn gerir
sér loks grein fyrir að málefni Palestinu-
manna skipta sköpum fyriratburðarásina i
löndunum fyrir Miðjarðarhaf sbotni og
dregur af þvi réttar ályktanir. Fjand-
skapurinn sem rikir með samtökum Pale-
stinumanna og Israel er veigamesta
ástæðan fyrir sifelldri spennu og hættu-
ástandi i löndunum fyrir Miðjaröarhafs-
botni og gefur Sovétrikjunum tækifæri til aö
koma þar ár sinni fyrir borð. Tilviljunar-
kenndur hernaðarstuöningur Bandarikja-
anna viö Iranskeisara foröum og nú við
Saudi-Arabiu er ekki annað en fálm án yfir-
sýnar og raunhæfs tilgangs, meðan Banda-
rikjastjórn lætur eins og málstaður Pale-
stinumanna sé ekki veröur viðlits.
^Jiðustu dagana sem Sadat lifði lét
hann til sin taka samskipti Bandarikjanna
viö önnur arabariki. Horfur eru á að stjórn
Reagans hafi tekist aö klúðra svo sölu
AWACS ratsjárflugvéla til Saudi-Arabiu, að
máliö veröi fellt i öldungadeild Banda-
rikjaþingsins. Yröi það reiðarslag fyrir
stjórnarstefnu og jafnvel valdaaðstöðu
Saudi-konungsættarinnar, sem hefur lagt
sig i framkróka undanfarin ár til að hemja
hækkanir á oliuverði og unniö með þvi vest-
rænum iðnrikjum mikið gagn. I ræöu i sjón-
varpi i siðustu viku brýndi Sadat fyrir
Bandarikjastjórn, að flugvélasalan til
Saudi-Arabiu mætti meö engu móti farast
fyrir. Sendi hann Mubarak, sem nú er orö-
inn eftirmaöur hans, gagngert til Washing-
ton að bera þennan boöskap sinn æðstu
mönnum Bandarikjanna augliti til auglitis.
Einnig lét Sadat varamann sinn bera
fram viö Bandarikjastjórn í sömu ferð
áskorun um skjóta vopnasendingu til
Súdan, til að efla súdanska herinn og stjórn
Numeiri forseta til að veita viðnám yfirvof-
andi innrás frá Libýu. Hafa Súdanir bú-
settiri'Libýu komiöá flótta til Egyptalands
undanfarna mánuði og skýrt frá að reynt
hafi veriö að þröngva þeim til að gerast
liðsmenn súdansks útlagahers, sem Kha-
dafi Li'býuforseti hefur komið á laggirnar
og lætur vopna og þjálfa í þvi skyni að
„frelsa” Súdan i fyllingu timans. Sögöu
flóttamennimir, að þeim hefði veriö hótaö
að þeir yröu fluttir út i eyðimörk og skildir
þar eftir bjargarlausir með ekkert fram-
undan nema bráðan bana, ef þeir neituöu
að ganga I súdanska útlagaherinn.
Fullvfst er að Khadafi hyggur sér til
hreyfings sem aldrei fyrr, eftir aö'Sadat
erkióvinur hans er úr sögunni. útvarpið í
Tripoli, höfuðborg Líbýu, hélt þvi fram
þegar fréttist um moröið i Kairó, að til-
ræöismenn hefur veriö að fullnægja dauöa-
dómi, sem lihýskur alþýðudómstóll kvað
upp yfir forseta Egyptalands i einni
áróöursherferð Khadafi gegn honum. Ný-
stcrfnað bandalag Libýu, Eþiópiuog Suöur-
Jemen ógnar sér i lagi Súdan og Sómaliu i
Afrfku og Norður-Jemen á Arabiuskaga.
Verði úrslit borgarastyrjaldarinnar sem nú
er háö i Noröur-Jemen þessu bandalagi i
hag, er þvi greiö leið að seilast til áhrifa og
undirróðurs i Saudi-Arabiu.
Skammt er siðan Fadh krónprins Saudi-
Arabiu, bar fram fyrstu tillögu sem þaðan
kemur um friðargerð milli arabaþjóöa og
er 15. launaflokkur. I honum eru kennarar
lang fjölmennastir, en grunnlaun sam-
kvæmt honum eru kr. 7689, skv. þriðja
þrepi. Næst fjölmennasti flokkurinn er 11.
launaflokkur, þar sem eru skrifstofu-
menn, réttindalausir kennarar, heil-
brigöisstéttir og toll- og löggæslumenn.
Grunnlaun þeirra eru kr. 6701.
Þegar þessar launatölur, sem hér hafa
veriö nefndar, eru skoðaðar blandast
engum hugur um, að leiðréttingar er þörf.
En hvað þá um baráttuna gegn verðbólg-
unni? Er ekki rétt, að launþegar hafi biö-
lund svo takast megi að koma henni niður
i viðunandi stig, eins og yfirlýsingar voru
gefnar um i sumar?
Ekki eru allir á einu máli um, að þaö
séu endilega launþegar, sem eiga að
herða sultarólina til að atvinnuvegirnir
rétti úr kútnum.
— Mér finnst alltaf eitthvað gruggugt
við það, þegar atvinnurekendur hefja
þennan kreppusöng sinn rétt fyrir samn-
inga, segir framámaður i launþegasam-
tökunum.
f^eir sem reikna efnahagsdæmið
okkar frá sjónarmiði launþega benda á,
að hér á landi sé vissulega fjárfest meira
og tekin meiri lán en viðast annarsstaðar,
og það er af mikilli þörf. En þeir benda
lika á, að hér sé mikið um vitlausa fjár-
festingu, hreina endaleysu, og afskaplega
slælegan rekstur fyrirtækja og stofnana.
Eitt stykki Kröfluvirkjun skapar t.d.
ákaflega mikla spennu i þjóðfélaginu, en
hverju skilarhún? A það er lika bent, að á
Suðurnesjum séu 24 frystihús, en af þeim
skili ellefu 80% af framleiðslunni, og þau
sem sýni tap feli raunverulega hagnað
hinna með þeim afleiðingum, að gripa
verður til gengisfellingar.
Almenningur er að sjálfsögðu ekki
stikkfrifrá veröbólgunni, hann á sina sök
lika. En hver vill draga úr þeim lifs-
gæðum, sem hafa áunnist? Varla ætti
rikisvaldið að krefjast þess að menn geri
það eftir að iiai'a rekið þá pólitik undan-
farna áratugi, að hagvöxturinn skuli um-
fram allt aukinn. Eða hvað?
ef!ii
Þorgrim
^iesí sson
]
eftir
Magnús
Torfa
Ólafsson
tsraels, aö þvi tilskildu að réttindi Pale-
stinumanna séu tryggö.Tillögur þessar eru
mjög svipaöar þeim sem riki Efnahags-
bandalags Evrópu geröu fyrir ári. Megin-
atriði þeirra er að PLO, heildarsamtök
Palestinuaraba, viöurkenni tilverurétt og
öryggisréttindi tsraels, jafnframt þvi sem
tsraelsstjórnfallistá að ræða framtið Pale-
stínumanna við fulltrúa PLO.
siðustu heimsókn sinni til Washing-
ton lagöi Sadat megináherslu á þaö i tölu
sinni I boði Reagans i Hvita húsinu, að það
sem sérstaklega skorti á að koma friðar-
geröilöndunum fyrir Miðjarðarhafsbotni á
rekspöl i lokaáfanga væri að PLO kæmi þar
til skjalanna sem fullgildur aöili. Ljóst er
aö svoverður ekki meðan Bandarikjastjórn
styður Israelsstjórn I þeim ásetningi að
sniöganga PLO. Jafnfram safnast tundriö
fyrir innan seilingar ýmissa, sem ekki
skirrast við að hleypa þessum hluta heims i
bál og brand, ef svo býður við aðhorfa.
Sama daginn og Sadat var veginn birti
Heimssamband sionista áform sin um að
gera herteknu svæðin á vesturbakka
Jórdan á einum mannsaldri að landi sem
gyöingar byggja að meirihluta, Drobless,
forstööumaöur landnámsskrifstofu sam-
bandsins,sagði fréttamönnum i landnema-
bænum Kedumim á vesturbakkanum, aö á
næstu fjórum árum væri ætlunin aö stofna
þar tólf til átján nýjar landnámsbyggðir,
auk þess að þær85 sem fyrir eru færi út kvi-
arnar. Með þessu móti er ætlunin að fjölga
gyðingum búsettum á hernumdu svæö-
unum úr 25.000 i 145.000 á timabilinu.
ÆLokamarkiö er, sagði Drobless, aö
eftirþrjá áratugi, árið 2010, verði tala gyð-
inga á vesturbakkanum komin yfir eina
milljón eða fram úr núverandi ibúafjölda
Palestinumanna á sama svæði en þeir eru
800.000 talsins.
Geta má nærri hver áhrif það hefur á
Palestinumen og arabiskar þjöðir, sam-
þykki tsraelsstjórn þetta áform Heims-
sambands sionista.