Helgarpósturinn - 23.10.1981, Síða 11

Helgarpósturinn - 23.10.1981, Síða 11
11 Jielgarpásturinnl^^L 23. október 1981 aö játa á mig 13 ára við þá Jehóva, Jesú og heilaga anda alla til heimilis á Himnum i Guðsþinghá, og nú hér stadda. Ennfremur vottið þið, að nafn mitt, Helgi, er ekki tengt himnafeðgum né heilögum anda. Ég er laus allra skuldbindinga við þá og mótmæli þeim mannhatursjónarmiðum, sem eru uppistaða þess endemis kristindóms. Það hefur enginn borið brigður á það, að með þessu hafi ég ónýtt skimarsáttmálann, en ég þurfti náttúrlega að koma ónýt- ingunni i þjóðskrána, þvi að þar er tvisvar sinnum skráð, að ég hafi gert skirnar- sáttmála. Siðan þá, 16. október 1966, hef ég verið að berjast fyrir því, að fá það skráð í þjóðskrána, að ég sé búinn að ónýta skirnarsáttmálann, en mér hefur ekki heppnast að fá Klemens Tryggvason til að gera það. A sinum tima-fór ég i mál við Magnús frá Mel, sem þá var Hagstofu- málaráðherra, af þvi að hann neitaði að fyrirskipa Klemensi að skrá ónýtinguna. Þetta varð að Hæstaréttarmáli, og þvi var visað frá.” Glæpaverk ríós — Enskiptirþaðiraunog veru einhverju máli hvort þú ert skirður og fermdur? „Þetta er siðferðisatriði fyrir mér, sem Kristlingum gengur illa að skilja. Ég lit á þetta sem svivirðingu fyrir mig, að þessi ósköp skuli vera skráð i persónuheimild minni, þjóðskránni, sem kemur til með að vera eina heimildin um mig, að ég játi það, að úldið Arabakjöt gangi aftur og skjótist svo upp iloftiðmeð skit og öllu saman.” — Hver erþá ástæðan fyrirþvi', að það er ekki færtinn i þjóðskrána, að þú hafir ónýtt ski'marsáttmála þinn? „Landsferðurnir hafa ekkert gefið upp um það. Þeir visa mér alltaf frá Heródesi til Pitatusar. Ég er reyndar hættur svo- leiðis arki,þegar ég sá, að ég gat ekki kom- ið þessu til leiðar með friðsamlegu móti, eftir 30 ára baráttu. Ég ákvað þá að fram- kvæma einhver ofbeldisverk til að vekja at- hygli samfélagsins á glæpaverki riós á mér. ” — Ríós? „Rió er skammstöfun á rfkisvaldi islenskra óþokka. Ég byrjaði áþvi að gefa konu minni minn part ieignum okkar, húspartinn, hefilbekk- inn minn, sporjárnin og allt dót. Svo sæmdi égþá skyrinu rétt á eftir. Þegar ég var bú- inn að því, var ég ndttúrlega dæmdur, eins og vant er, i gæsluvarðhald og til að láta sálgreinast á Kleppi. Það var tekin geðskýrsla af mér. Það er ekki hægt að taka geðskýrslu af þeim, sem ekki samþykkja það, en Tómas Helgason kom til min i tugthúsið á Skólavörðustignum og sagði, að sér þætti betra, að ég féllist á að láta taka skýrslu. Nú, mér var ekkert fast i hendi með það. Það var ölafur Grimsson, sem tók skýrsluna af mér, en þá var ég bú- inn að fasta i marga sólarhringa. Það var helvitis álag að láta taka þessa geðskýrslu. Þar voru t.d. fimm hundruð fullyrðingar, prentaðar á Wað, og ég átti að láta plús eða minus við hverja fullyrðingu. Til dæmis var ein svona: Ég trúi þvi, að prestur geti gert kraftaverk með handayf- irlagningum. En ég strikaði allt út, sem viðkom himnadraugum og prestum. Þeir nenntu ekki að fara að mata mig i gegnum slöngu og afléttu þess vegna þessu gæsluvarðhaldi. Ég át hvorki i tugthúsinu né á Kleppi og ansaði ekki þessum lúsa- blésum eftir að þeir voru búnir að taka mig höndum. Það geri ég aldrei og ég ét ekki mat hjá þeim. Núna væri ég i Siðumúla- tugthúsinu, að öllu forfailalausu, ef ég hefði étið. Fulltrúi sakadómara kom tvisvar til min i tugthúsið núna seinast og sagði, að það þyrfti að skylda yfirlæknana til að geyma mig á Kleppi til 2. desember og taka af mér geðskýrslu á þeim tima. Þetta sagði hann mér i fyrra skiptið, en siðan kemur hann daginn eftir og segir, að beiðninni hafi verið synjað. Þeir vildu migekki á Kleppi.” Þið getið ekkert sagt” — Þú segist hafa farið út i þessi ofbeldis- verk til að vekja athygli á ofbeldisverkum riós, en heldur þú ekki að þú missir samúð almennings með þvi að fremja þessi ofbeld- isverk? „Ekki get ég fullyrt um það hvers samúð ég tapa, en það er staöreynd, að ég verð að hafast aö. Núna hefur t.d. alltof langur tími liðiö, án þess ég heföist nokkuð að, og það eru vissar ástæður til þess. Mér hefur verið láð allt, sem ég hef tekið mér fyrir hendur, hvort, sem það hefur verið skyr, eða máln- ing,eða tjara, sem ég hef sæmt landsfeður eða hús með. Svo þegar ég spyr ykkur, sannkristna lýðræðissinna, hvað ég eigi að gera til að hreinsa sóma minn af þessum svi'virðingum, sem skráðar eru i þjóð- skránni, þá dettur botninn úr ykkur. Þið getið ekkert sagt um það sem ég eigi að gera, en þið bara fordæmiö það, sem ég geri. Það hefur margsinnis verið sagt við mig, að ég skuli ekkert vera að bauka við þetta, landsfeðurnir láti aldrei undan með það að skrá það i þjóðskrá, að ég sé búinn að ónýta skirnarsáttmálann. Það er til of mikils mælst. Það er sitthvað að gefa upp alla baráttu, eða hafa rökstudda von um að fá kröfunni framgengt.” — Ætlarðu að halda baráttunni ótrauður áfram? ,,Já,já,þaðer llklegt, en ég hugsa að ég spari nú íengst riffilinn minn. Ég mun halda áfram baráttu minni i einhverri mynd. ” — Heldurðu að þessi barátta þin muni bera einhvem árangur, einhvern tima? ,,Tii þess eru refirnir skornir. Ég mála það þannig upp fyrir mér, að þetta sé sann- gimiskrafa, af þeirri rökstuddu ástæðu, að ef skráð verði i þjóðskrá:Helgi Hóseasson eyðilagði skirnarsáttmála sinn 16. október 1966, þá stæði ég jafnfætis þeim, sem aldrei eru skirðir, og aldrei hafa játað þessi ósköp á sig. Mér finnst þetta vera svo augljóst réttlætismál aðég fái þessu framgengt, þar sem ég er forráða og fullorðinn þegn, og heimta engin sérréttindi.” Auglýsið í Helgarpóstinum Baðsápan og sjampóið aö lokinni keppni eða æfingu Heildsölubirgðir Holldór Jónsson hif Heildverslun Dugguvogi 8-10 sími 86066. Byggingavör Timbur • Flisar • Hreinlætistæki • Blöndunartæki • Gólfdúkar • Málningarvörur • Verkfæri • Baöteppi •Baöhengi og mottur • Hardviður +Spónn •Spónaplötur *Viðarþiljur •Einangrun •Þakjárn •Saumur * Fittings Ótrúlega hagstæðir greiðsluskilmálar alltniðuri 20% útborgun og eftirstöðvar allt að niU mánuðum Við höfum flutt okkur um set, að Hringbraut 119, aðkeyrsla frá Framnésvegi eða inngangur úr Fatadeild JL-hússins Opið fimmtudaga til kl. 20, föstudaga til kl. 22 og laugardaga til hádegis ATH.: Við opnum kl. 8 á morgnana byggingavörur Hringbraut 119 - Simar: 10600 og 28600 J L

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.