Helgarpósturinn - 23.10.1981, Síða 16

Helgarpósturinn - 23.10.1981, Síða 16
16 Föstudagur 23. október 1981 viðlai: Gunnar Gunnarsson Jielgarpósturinn_____helgarpósturinn 'Föstudagur 23. október 1981 Jón t hlutverki Súpermanns I „Jóa” eftir Kjartan Ragnarsson. Tii hægri Jóhann Sig- urösson, sem ieikur Jóa. Jón Hjartarson leikari og rithöfundur er án efa sá fsienskra leik- húsmanna, sem viöast hefur lagt hönd á pióginn innan leikhússins. Og reyndar hefur þessi rauöhæröi Snæfellingur viöar starfaö en á snærum Þaiíu. Hann var biaöamaöur um árabii og um eitt skeiö rit- stjóri grínblaösins „Spegillinn”, sem er fyrir nokkru burtsofnaöur úr þessum heimi. Aö fenginni nasasjón af daglegum önnum Jóns, kemur rólegt fas hans nokkuö á óvart. Hann pírir augun, brosir vingjarnlega og ligg- ur ekkert á. Þegar hann svo byrjar aö tala, veltir hann oröum og setningum fyrir sér, svo manni dettur i hug sæikeri sem skoöar krás á diski. Þaö er eins og hann horfi á hvert umræöuefni úr fjarska og alit I einu tekur hann sig svo til og nálgast þaö, hratt og örugg- lega. Reyndar var þaö ekki meira en svo, aö rauöhæröi Sandarinn léti til leiöast aö spjalla viö blaömann, fengist til aö trúa penna skrif- arans fyrir oröum sinum. Viö settumst þar sem viö gátum horft út yfir Tjörnina, þar sem margir isienskir leikarar hafa sest niöur stundarkorn og velt fyrir sér ieiklistinni og lifinu. Jón hefur um nokkur undanfarin ár veriö formaöur Leikfélags Reykjavikur — auk þess aö leika á fjöium þess og skrifa. Hann er einn af þessum aldursiausu mönnum, hefur veriö eins alla ævi, segja þeir sem þekkja hann. Viö tökum þeim oröum reyndar meö varúö. En maöurinn er aö minnsta kosti ekki fertugur enn — og kemur kannski einhverjum á óvart, einhverjum sem hefur nýlega séö hann leika meistara Þórberg I Ofvita Kjartans Ragnarssonar. Vönum leikhúsgesti skjöpiast heidur ekki, þegar hann dregur þá ályktun, aö Jón sé oröinn þroskaöur leikari. Leikarl, leikstjðri, hölundur „Ég veit þaö ekki. En þaö hlýtur nú aö hafa veriö einhver þrá til aö skapa. Þessi sama þrá sem hefur rekiö mann út i ýmis- legt annaö. Þegar ég var i blaöamennsk- unni, fannst mér þaö starf alla tiö vera of þröngur tjáningarmiöill. Mér lét miklu bet- ur að skrifa út frá sjálfum mér, heldur en aö skrifa einhvers konar staöreyndir úr þjóðfélaginu. Ég vildi gefa hugmyndaflug- inu lausan taúminn. Ég var ekki góöur rannsóknarblaðamaöur. Nú — leikhúsi kynntist ég ekki fyrr en ég var kominn um t.vltugt. Ég ætlaöi mér vitanlega aö veröa skáld og mikilmenni, þegar ég var aö alast upp”. Hafa draumarnir úr bernskunni ræst? „Ég reikna með aö þeir óræöu draumar sem maöur haföi, hafi ekki náö fram að ganga, ekki á þann hátt sem maður Imynd- aöi sér fyrir löngu. Ég hef unnið á fjöl- breytilegan máta innan leikhússins, verið leikari, leikstjóri og höfundur. Það hefur lika veriö svo undarlegt meö mitt starf inn- an leikhússins, að hlutirnir hafa einhvern veginn leiöst hver af öörum”. Hver er þinn metnaöur i leikhússtarfi? „Ég er ekki karrieristi — það er á hreinu — og þaö er likast til mikið þess vegna, sem ég hef oröiö þessi altmuligtmaöur i leik- húsinu”. En ertu þá ánægður meö fjölbreytileika starfsins? „Starfiö er fjölbreytilegt, þaö er satt, en það er ekki algengt aö menn nái sérlega langt á mörgum sviöum. Það er fátitt að menn séu bæði afburöaleikarar og um leið frábærir leikstjórar. Ég er ekki slfkur of- viti”. Hvernig finnst þér aö leikhús eigi að vera? „Þaö er vafalaust hægt aö reka leikhús með þvi aö segja ekkert annað en aula- brandara. En ætli mönnum fyndist hátt ris á þvi leikhúsi? Þar meö er vitanlega ekki sagt, aö þaö sé ekki góö iðja að skemmta fólki. Skemmtanalöngunin er hins vegar einaldlega þannig, að henni verður ekki fullnægt, öðruvisi en aö hún komi einhvers staöar i námunda við veruleikann, og sé jafnframt ekki mjög langt frá andstæöu sinni. Þaö er einmitt þessi andstaöa skemmtunarinnar, sem er uppspretta gamanseminnar. Þaö er ekki út i bláinn, aö leikhúsiö er táknaö með tveimur grimum, sem allir kannast við”. Nú er sagt, aö leikhús megi ekki vera leiðinlegt — er þá ekki einaldast aö leika bara gamanleiki til að sleppa viö aö vera leiöinlegur? „Þaö er rétt. Leikhús má ekki vera leiðinlegt, en þaö er ekki þar meö sagt, aö þaö þurfi alltaf aö vera svo óskaplega fynd- iö. Mér finnst aö aöalatriðið hljóti að vera að hræra áhorfandann, tilfinningalega eða vitsmunalega,og aö fólk upplifi hluti sem þaö telur sig ekki upplifa annars staöar. Það er þessi sama upplifun, sem heldur leikaranum vakandi — að minnsta kosti þegar vel tekst til”. Að predika á lelksvlði Umræða um menningarmál getur oft oröiö heiftúöug á Islandi, og vist er um þaö, aö leikhúsið hefur ekki farið varhluta af margvislegum áhuga manna á leiklist, tilgangi hennar og markmiöi. Leikfélag Reykjavikur viröist, aö minnsta kosti ef tölur um aösókn eru skoöaöar, njóta mikilla vinsælda meöal almennings. Leikhúsið viröist lika leitast viö aö sýna leikrit af ýmsum toga — og kannski er þaö þessi „salat-stefna”, sem sumir vilja kalla, sem m.a. veldur þvi aö þeim róttækari i hópi leikhúsmanna finnst brýn þörf á róttæku leikhúsi sem vinni markvissar aö pólitiskri upplýsingu, virkari þátttöku leikhússins i pólitískri réttindabaráttu. „Leikhús má ekki veröa þröngsýnt i sinni tjáningu”, sagði Jón, „en þaö er eins og smekkur manna gangi i bylgjum. Um tima þótti ófint aö sýna gamanleiki. Núna viröast menn svo orönir óskaplega hræddir viö predikanir. Kannski var predikaö of mikiö um tima — en ég sé ekkert á móti þvi aö leik- hús prediki — ef þaö er gert meö aðferöum leikhússins. Menn veröa aö finna sinar leiöir, leiöir til aö segja þaö sem þá langar til aö segja. Þaö er hættulegt aö halda I venjur vegna þess aö venjur breytast svo hæglega i fordóma”. Háð eða gððlállegl grín öðru hvoru spretta upp i leikhúsheimin- um sterkir kenningasmiöir — fara útlendir straumar ekki mikiö framhjá islensku leik- húsi? „Þeir skila sér nú merkilega vel hingaö. Kenningasmiðir leikhússins eru náttúrlega nauðsynlegir, en viö — hér og nú — verðum aö láta eftir okkur ákveðiö frelsi i fram- setningu. Svo er annað mál, hvaö viö viljum segja. Ég held aö það sé gott leikhús, sem vill i einlægni vekja manneskjulega hugs- un. Og þá hugsun má vekja meö nöpru háöi, góðlátlegu gamni eöa grafarþungri al- vöru”. Leíkari sem yrkir Nú hefur þú fengist viö svo margt innan leikhússins — hvaö finnst þér skemmtileg- ast aö fást viö? „Reyndar finnst mér skemmtilegast að fást við að yrkja. Og þá meina ég ekki aö yrkja kvæöi, heldur allt eins að yrkja fyrir sviðið — og þaö er þaö sem leikarinn er vitanlega að gera — ásamt með höfundi, leiktjaldamálara, leikstjóra. Það er af- skaplega skemmtilegt þegar vel tekst til. Þá er gaman aö vera þræll i þessari smiöju, sem i sameiningu yrkir fyrir sviðið”. En er ekki erfitt aö hrinda þessari sam- virku smiðju i gang, þannig aö allir séu með i skáldskapnum? „Þaö getur verið þaö. En mér finnst allt- of oft, aö menn einblini á aðeins einn þátt ' þessarar maskinu, sem leikhúsiö er. Menn koma og skilgreina leikritiö sérstaklega, leikstjórnina sér og svo leikmynd og leik einstakra leikara sér. Allir þessir þættir eru settir á snn bás. Það er vel hugsanlegt að það komi stundum upp svona sýningar, þar sem liggur beint -við aö greina alla þessa þætti og skipa á sina bása, en ég hef ekki trú á að slikar sýningar séu góöar”. Framlarír Leikhús er sá þáttur heimsmenningar- innar,sem stööugt er rannsakaöur, stööugt talaö um, skrifaöar læröar greinar og bækur — greina menn eitthvað sem flokka mætti undir „framfarir”? „Biddu fyrir þér! Þaö verður þróun i þessari atvinnugrein rétt eins og öörum,en hún verður ekki meö sama móti. Leikhús bregst jafnan á sinn hátt viö umhverfi sinu og nýjum aðstæðum. Þaö veröa sjálfsagt engar stökkbreytingar og þaö eru til lög- mál, sem ganga eins og rauöur þráöur gegnum allt skapandi starf”. En breytist leikhúsið þá bara eftir aöstæöum — hvernig greinum viö þróun- ina? „Ef við miöum okkur viö vélræna hluti eins og til dæmisþróun i iönaöi þáer ég ekki frá þvi aö leikhúsiö fari I þveröfuga átt. Leikhúsið getur ekki elst viö tæknivæðing- una og bónuskerfið. Ég er ekki frá þvi, aö meö tilkomu kvikmynda og svo sjónvarps og myndbanda, serri nú eru ofarlega i hug- um,þá hafi leikhúsiö reynt aö hverfa meira á vit Imyndunaraflsins — það er ekki hægt aö setja leikhús oni svona niöursuðudósir. Leikhús getur ekki og á ekki að keppa viö þessa tækni. Leikhús getur t.d. ekki keppt við þessa tækni I hreinu raunsæi. Aö kópiera veruleikann. Fyrir bragöiö fara menn aö leika á imyndunarafliö, sitt eigiö hugarflug og áhorfenda. Við sjáum þetta kannski áþreifanlega i leikmyndunum. Leikhús er náttúrlega tæknivætt — en þetta kallar á annars konar tækni, meöal annars tækni leikarans, tilfinningar, hug- hrif og annað þaö, sem ekki veröur sagt eöa sýnt. Þaö er kannski einmitt nú, sem þaö er brýnast — i öllu þessu tæknirausi og tækni- daðri — að leikarinn hafi buröi til aö viðra tilfinningar á ærlegan hátt. Mér finnst leikhús vera sá vettvangur, sem stendur næst þvi að vera trúr mann- legum tilfinningum. Sjónvarp og kvik- myndir hljóta, eöli sinu samkvæmt, að standa fjær þessu þýöingarmikla atriði. Þar er ekkert návigi til staöar. Nú má enginn misskilja mig þannig, aö ég vilji mata áhorfendur á tilfinningum. En ég vil að leikhúsiö vekji tilfinningar hans, aö það höföi til imyndunarafls hans, þvi að um leiö hefur leikhúsið skiliö eftir sitt sáðkorn i huga áhorfandans. Þaö er þaö sem hann hefur með sér heim að lokinni sýningu”. FrjókorniO — Mölunin Er stór munur á aö „sá frjókornum” eða predika? „Þaö er griöarlegur munur þar á. Og mötunin i samfélaginu er ærin. Þaö er hætt við aö fólk lokist inni meö tilfinningar sinar og sina eigin frumlegu hugsun og ímynd- unarafl. Samfélag okkar hefur öll spjót úti til aö mata fólk á hugmyndum og skoðunum. Þessi mötun byrjar i uppeldinu. Skólakerfiö matar fólk, fjölmiðlarnir mata fólk á marg- vislegan og lúmskan hátt. Og þaö er náttúr- lega hætt viö, aö leikhúsiö geri þaö líka og þaö held ég aö beri aö varast. öll þessi mötun leiöir af sér félagsiega einangrun. Þarna getur leikhúsiö komið að gagni. Þaö býr innra meö hverjum manni þörf á að koma saman, vera með öörum og upplifa eitthvað i félagi viö annaö fólk. Þaö undar- lega hefur svo gerst, eða er aö gerast i okk- ar samfélagi, aö i staöinn fyrir aukið félagslif, þá eykst hin félagslega firring. Sjónvarpið er þarna stór sökudólgur og svo núna — þetta video”. Draumur leihhúsmanna Hverer draumur þinn sem leikhúsmanns — hvernig viltu að leikhúsiö starfi? „Þaö hlýtur að vera draumur allra leik- húsmanna að gera áhorfendur virkari. Það er aö minnsta kosti viöleitni, sem leik- húsunum er hollt aö hafa i huga — að reyna af fremsta megni að ná sambandi við sina áhorfendur. Það er vandi leikhússins”. Og þegar blm. segir Jóni, að nú sé nóg komiðaf alvarlegum vangaveltum um leik- hús, færist breitt bros yfir andlitið, hann kveikir i nýrri sígarettu, hallar sér mak- indalega aftur i stólnum og segist vera á leiðinni á æfingu. Það er ekki meira en svo að við trúum honum — en kveðjum þó. Jón Hjartarson t.v. og Emil G. Guðmundsson t.h. I hlutverkum sinum I „Ofvitanum” — Þórbergur fullorðinn og ungur.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.