Helgarpósturinn - 23.10.1981, Page 24
24
Nokkur gervi úr Pekingóperunni: Lengst til vinstri herkóngur, þá lærður maður, siftan herforingi, annar herforingi og heimspekingur
lengst t.h.
Allsherjarleikhús frá
PEKING
Pekingóperan, sem nú gistir Is-
tand, er allsherjarleikhtis:
Söngur, dans, tal, látbragð, tón-
list, grin, akrobatik. Þegar við
norfum á þessa leikara úr Wuhan,
pá fáum viö að sjá ótrúlega fjöl-
oreytni, en eigi að siður fer allt
fram eftir afarströngum reglum
og hefðum. Hver einasta handar-
hreyfing leikara, sem og svip-
brigöi, þjónar sérstöku mark-
miöi. Sjálft nafnið, Peking-
óperan, merkir ekki „Óperan I
Peking” eða óperuhúsið i Peking,
heldur er hér um að ræöa leikhús-
form sem tiler um alltKina. Pek-
ingóperan er nokkurs konar
samnefnari fyrir hundruð óperu-
stíla og fékk þetta heildarform
sitt við hiröina i Peking um miöja
siðustuöld. A þeim tima var það
ekki sérlega eftirsótt að gerast
leikari. Leikararnir urðu að syna
hlýðni við dutlunga yfirstéttar-
innar.Núna njóta þeir hvatningar
og launa frá rikinu. Börn keppa
þúsundum saman á hverju ári við
inntökupróf i óperuskólann. Þau
eru ellefu ára, þegar þau eru
tekin inn og þá þegar er ævistarf
þeirra markað. Þeim er jafnvel
úthlutað hlutverki að æfa og leika
það sem eftir er ævinnar.
Kommúnistar
breyttu óperunni
Þegar kommúnistar komu til
valda iKinaáriðl949 var innihaldi
margra óperanna breytt, en
aðrar voru bannaöar. Mao Ze-
dong, þáverandi leiðtogi Kin-
verja, sagöi: Óperurnar mega
ekki aöeins fjalla um keisara,
kdnga, hershöfðingja, ráðherra,
ungt efnisfólk og feguröardisir.
Kynferðismál, draugatrú og
óþarfa smjaður fyrir yfirstétt-
inni, var bannaö. En aö öðru leyti
fengu þessar vinsælu óperur að
halda sinu rétta yfirbragði, eða
allt þar til frú Maó, Jiang Qing,
tók öll völd yfir menningunni i
hinu stóra Kina. Það var árið
1964. Frú Mao leyfði aðeins
óperur sem hylltu hversdags-
hetjur úr hópi verkamanna,
bænda og hermanna. Þessar til-
raunir þóttu ekki með öllu vit-
lausar, en urðu fljótt afar ein-
hæfar. Áhorfendur og leikarar
urðu fljótt afskaplega þreyttir á
hinum átta „fyrirmyndar-
verkum”, sem menningarfrúin
lét úbúa.
Klassíkin aftur
JiangQing og vinum hennar úr
„Fjögurra manna klikunni” var
steypt 1976. Þá þegar blómstraði
gamla klassikin hjá Pekingóper-
unni, gömlu þemun spruttu fram
og aðsóknin jókst i miklum mæli.
Aðgöngumiði að Pekingóperunni
kostar um þaö bil ein ki'nversk
daglaun, en miðar eru sjaldnast
seldir á frjálsum markaöi, heldur
er þeim dreift gegnum samtök og
vinnustaði.
Fyrr á árum voru undirtektir
kfnverskra áhorfenda ákaflega
fjörugar. Fólk hrópaöi og klapp-
aöi oft svo mjög, aö þurfti að
stöðva sýningar. Nú hefur
stemmningin breyst. Fólk er lág-
værara, klappar ekki af sama
hrifningarmóði og áöur. Og það
sem veldur mönnum meiri
áhyggjum austur þar: Ungt fólk
laðast ekki að óperunni eins og
áður. Unga fólkinu þykir ekki
mikið koma til þeirra sagna, sem
óperan flytur, og hinn langdregni
söngstill þykir leiöinlegur. Þaö
getur tekið heila minútu eða
meira að syngja eina setningu.
Og slagsmálin á sviöinu eru ekki
„dcta”. Nei — kinverskur ung-
dómur er vist farinn að heimta
útlenskar ,,action”-kvikmyndir
eins og við þekkjum hér.
Ferns konar hlutverk
Pekingóperan skiptir hlut-
verkum sinum i fernt.
Sheng — karlkyns hlutverk
sem skiptast i gamla menn
(kóngar, embættismenn), unga
menn (stúdentar, menntamenn)
og svo hermenn.
Dan— kvenhlutverk. Ótal
undirflokkar.
Jing — máluð andlit. Alltaf
karlkyns. Hreinskilin, en oft gróf.
Chou— trúðar. Þeir eru bæði
góðir og slæmir og hafa jafnan
hvitan blett eða klessu á nefinu.
Skreytingar eru fábrotnar,
aðeins til að gefa tiltekiö um-
hverfi til kynna. Leikararnir
eiga að fá áhorfendur til aö
imynda sér landslagið eða um-
hverfið.
Pekingóperan mun sýna amk.
fjórum si'nnum i Þjóðleikhiisinu.
Verð aðgöngumiöa er 200 kr. 100
kr. á efri svölum.
— GG
fíokk er betra en fúí tæm djobb
Kamarorghestar —
Bísar i banastuði
Mikiö hlýtur aö vera gaman
að vera á blsanum i Köben.
Amk. eru Kamarorghestarnir i
banastuöi. Og rokkkabarettinn
þeirra er svo sannarlega það
sem hann á að vera: skémmti-
legur og meinhæðinn i senn. En
með einlægum undirtón: „segðu
mér/ef viö gætum valiö/þá vær-
um viö/sjálfsagtekkihér/þvi ég
veit um annaö staö/sem er fal-
inn/falinn djúpt I mér og þér”.
Rokkkabarett Kamarorghest-
anna samanstendur af 12 söngv-
um skrifuöum af meðlimum
sveitarinnar, nema Magnea
Matt áeinn pillutexta. Tónlistin
og viöhorf textanna eru frekar
gamaldags, og I rauninni má
segja að það sé búið að gera
þetta alltsaman áður, og betur,
af fólki einsog Stuömönnum,
Spilverkinu, og jafnvel meist-
ara Megasi.
En var þá kannski betur
heima setiö, e:naf staö farið?
Nei, ekki vil ég meina þaö.
Það sem bjargar bisunum, og
gerir kabarett þeirra eigulegan,
er banastuðið. Tdnlistin er flutt
af miklum galsa, jafnt söngur
og leikur, — kærkomnu æðru-
leysi. Auk þess er i textunum að
finna nokkur seinnitima við-
fangsefni og viðhorf, — pönk
(„bitti rassgatiö á þér”) og
kvenréttindabaráttu („sam-
viskubit/yfir aö fá sér á snip-
inn”). Og umslagiö er gott.
Þaö veröur gaman aö fylgjast
meö Kamarorghestunum á
næstu rokkreiðum.
Graffk — Út i kuldan-
um
Þessi plata er ekki góö^ vegna
þess, aö þeir sem að henni
standa geröu allt sjálfir, heldur
þrátt fyrir þá staðreynd. Hér
sannast aö þeir standa sig einna
bestihinu nýja kuldarokki, sem
eru skólaöir i allskyns rokki fyr-
ir. Kuldinn er viökunnanlegri og
ekki eins nistandi. Og á köflum
er ekki einusinni kalt.
Atta lög, þaraf tvö instrú-
metnal.og allt samiö af Graffk-
erum, utan textinn Guöjón Þor-
steinsson bifreiöastjóri sem er
eftir Þórarinn Eldjárn. Þaö og
Videó eru einna liklegusttil vin-
sælda, en þaö lag sem ris hæst
er Út i kuldann. Þaö ku hefjast á
austurlenskri giftingarveislu,
hverfa siöan yfir i Marlene
Dietrich-timabiliö, svo I Nútim-
ann meö öllu hans stressi og
enda á erfingjum heimsins,
börnunum á leikvellinum (ekki
heföi ég fattaö þetta ef ég heföi
ekki lesiö þaö á prenti).
Tdnlistarflutningurinn er til
mStillar fyrirmyndar, sérstak-
lega langar mig aö nefna
trommuleik Rafns Jónssonar og
gitarleik Rúnars Þórissonar, en
þeir sýnast mér (eöa heyrist)
eiga mestan heiöurinn af þess-
ari plötu. Hinir standa vel fyrir
siru.
E.S. Sérstakar og persónuleg-
ar heilladskir til Sæma...
Utangarðsmenn — í
upphafi skyldi endinn
skoða
SiöastliKÖ ár eöa svo, hafa
Utangarösmenn veriö atkvæöa-
mestir i islensku rokklifi, þann-
ig aö jafnvel er hægt aö tala um
Bubba-byltinguna. Eftir þá
félaga liggja fimm plötur út-
komnar, og heilmikiö af upp-
teknu en óútgefnu efni. Hluti
þess kemur fram á þessum
grafreithljtímsveitarinnar. Lög
sem skipuðu háan sess á hlióm-
leikum þeirra.ss. Siöasta bldm-
iö, Júdas frá Iskariot, I don’t
wanna be your dog, enskar út-
gáfur, ss. I don’t wanna girl like
you, og 1 bland nokkur helstu lög
platnanna, ss. Hirósima, The
Big Print, aö ógleymdum Jóni
pönkara, laginu sem kom Utan-
garösmönnum saman i fyrsta
skipti.
Nytsamlegar upplýsingar
fylgjaá sérprentuöu blaði, og er
þar greint frá hvenær hvert lag
var hljóöritaö, hvar komið úr
osfrv... og verða þærekki tiund-
aöar hér.
Aö lokum langar mig bara til
aö biöja Steinar vin minn um aö
þrykkja á vinyl fleiri lögum
þessarar merku hljdmsveitar.
Ég veit aö þaö er meira til...
Jóhann Helgason —
Take Your Time/Burn-
ing Love
Að lokum ein lftil.
Mætti ég ráða, þá myndi Jói
Helga og Kobbi Magg stofna
saman hljómsveit. Samstarf
þeirra áþessarilitlu plötu (sem
er kannski ekki svo lítil þegar
allt kemur til alls), er mjög
sannfærandi og lofar góöu um
stóru plötuna. Þetta er plata
sem á að geta slegiö I gegn i
Kuldanum mikla sem rikir i
Evrópu i dag. Bæöi lögin, en þó
einkum Take Your Time,
mundu sóma sér vel i „lengdri
dansútgáfu” á nútfmadiskóteki.
Bob Seger — nine To-
night
Bob Seger er gamall
amerikurokkari af bestu gerö,
oft kallaöur ,,one of the great
lost figures of rock’n’roll”. All-
ar götur siðan ’66 hefur hann
sent frá sér rokkplötur, en aldr-
ei náð almennilega að komast i
gegnum isinn. Það var ekki
fyrren I fyrra, eöa var þaö hitt-
iðfyrra?, aö gamli maðurinn
komst ærlega á blaö, og þá var
það með kántrislagara i far-
angrinum, Against the wind.
Nú er aö koma út meö Bob
Seger og Silfurkúlusveitinni
hans tveggjaplatna hljdmleika-
albúm sem heitir Nine Tonight
Og hefur aö geyma marga góöa
kunningja,ss. Old Time Rock
And RoD, F eel Like A N um ber,
Hollywood Nights, Fire Lake,
Against The Wind, Betty Lou’s
gettin’ Out Tonight, Night Mov-
es, Let It Roek og átta önnur
þekkt lög.
1 stuttu máli, þá svíkur Bobbi
gamli ekki aödáendur sfna
fremuren fyrri daginn. Þetta er
ósvikiö tækifæri fyrir miðaldra
rokkara, að slá upp konsert
heima f stofu. Allir geta verið
meö....
Madness — 7
Þaö þekkja alUr Madness.
Skahljómsveitina bresku sem
gerði garöinn frægan hér um ár-
ið með A Message f. You Rudy...
Nú eru þeir aö frumsýna fyrstu
biómynd sina f London sem ku
heita Take It Or Leave It, meö
þá sjálfa i' aðalhlutverkum. Og
jafnframt kemur út þriöja
breiöskífan, sem kallast ein-
faldlega 7 af þvi þaö eru sjö
menn í hljómsveitinni. Þetta er
þó ekki, eftirþvf sem ég fæ best
séö, sándtrakk, heldur sjálfstæö
plata.
Hún hefur aö geyma 12 lög, i
alkunnum Madness-stfl, nema
þaö er einsog þeir hafi kúlitver-
ast örli'tið. Hér er margar perlur
aö finna, Grey Day er þegar
oröiö mjög vinsælt. Þaö er ljóst
aö Madness ætla sér aö halda
forystuhlutverki sfnu I ska-
bylgjunni, ásamt Specials og
Beat.
Þetta erþeirra besta plata til
þessa.