Helgarpósturinn - 23.10.1981, Page 27

Helgarpósturinn - 23.10.1981, Page 27
27 __bialijarpnczfi irinn Föstudagur 23. október 1981 ASTRA Ármúla 42 Ætlar þú að fá þér sumar hús fyrir næsta vor? Hafðu þá samband sem fyrst ÞAK Simi 53473 Heimasimar: Gunnar 53931 Heiðar 72019 Frá U.S.A. en það er sjálfvirkur opnari fyrir bílskúrshurðir. I stað þess að berjast við hurðina styður þú á hnapp inni í hlýjum bílnum, hurð- in opnast sjálfkrafa og kveikir Ijðs. Þú ekur inn, styður á hnapp- inn og hurðin lokast. I tækinu er sérstakur rafeindaminnislykill þannig að ekkert ann- aðtækigetur opnaðþinn skúr — eða þína vörugeymslu. Kynnist þessari tækni, sláið á þráðinn — við erum í síma Árs ábyrgð 32030 Fullkomin viðgerða- og varahlutaþjónusta Fyrir: — fjölskylduna fyrirtæki fjölbýlishús Þeir ætla að taka Reagan á taugum Talið er fullvist að nokkrir gamlingjar i Kreml hafi i hyggju að heyja taugastrið við Reagan Bandarikjaforseta. Þeir hafa gert fifldjarfa áætlun sem kann að stofna heimsfriðinum i hættu. Þetta kemur fram i fyrsta tölu- blaði nýs timarits dálkahöfundar- ins Jack Anderson, The Investi- gator. í biaðinu segir Anderson: Þessi gamaimennaklika hefur starfað árum saman þótt fáir hafi vitað um tilvist hennar. Hana skipa m.a. Bresnéf, Ustinov varnar- málaráðherra, Gromyko utanrik- isráðherra, Agarkov, einn æðsti yfirmaður herjanna, og Andro- pov, yfirmaöur KGB. Kremlverjar þykjast eiga alls kostar við þennan nýja andstæð- ing sinn, Ronald Reagan. Þeir telja hann traustan mann sem hafi reyndar sin takmörk. Hann hefurá óbeinan hátt varað þá við öllu hernaðarbrölti hvar sem er i heiminum, ella verði gripið til hefndaraðgerða til dæmis i Libýu eða Kúbu. Eins kunni Banda- rikjamenn að senda Kinverjum stórar vopnasendingar. Þeir gömlu óttast ekki svona orðsendingar. Þeim er meira i mun að vita hvað hann gerir en hvaðhann segist munu gera. Þeir vilja vita hver viðbrögð hans verða þegar á hann er þrýst. Skyldi hann flýja af hólmi? Þvi verður ekki svarað fyrr en á hólminn er komið. Enn hefur ekki frést hvað Kremlverjar hafa i hyggju en eitthvað er það. Þetta verður uppgjör sem þeir gömlu geta ekki og mega ekki tapa. Þeim sviður enn sárt auð- mýkingin i tengslum við Kúbu- deiluna i forsetatið Kennedys. Þá varð þeim á sú skyssa að bjóöa Bandarikjaforseta byrginn á heimavelli hans sjálfs þar sem hann gat stuðst við miklu meiri herstyrk en þeir. Bandariskum herskipum var fyrirskipað að stöðva sovésk skip á leið til Kúbu með eldflaugar. Taldar voru helmingslikur fyrir þvi að þessari deilu lyki með kjarnorkusty r jöld. t herstöðvum Bandarikja- manna um allan heim voru menn viðbúnir hinu versta. Kjarnorku- eldflaugar i neðanjarðarbyrgjum eða um borð i kafbátum voru i skotstöðu. Allar B-52 sprengju- flugvélar, sem vettlingi gátu valdið, voru drifnar á loft og þeim haldið á lofti meðan ástandið var sem verst. Kennedy dró linu á landakortið sitt og skipaði herráði sinu að stöðva sovésku skipin áður en þau næðu henni. En Rússar létu sér hvergi bregða og sigldu að varn- arlinunni. Kennedy dró nú aðra linu á kort sitt og nú var hún nær Kúbu en hin fyrri. „Hingað og ekki lengra”, sagði hann. Sovésku skipin nálguðust hægt hina nýju varnarlinu. En áður en þau komust svo nærri að til ein- hverra tiðinda drægi bárust boð um það frá Moskvu að snúa skip- unum heim á leið. Þannig mörðu Bandarikjamenn sigur i þessum grámygluleik. A næstu mánuðum er hugsan- legt að Reagan komist i svipaða stöðu og Kennedy forðum, en óliklegt þykir að hann geti þá stuðst við hernaðaryfirburði sina. Sovétmenn geta egnt gildru sina hvar sem er, allt frá Kúbu til Kóreu, og þeir velja sér örugg- lega stað þar sem þeir mega sin meir en Bandarikjamenn. 1 fljótu bragði virðast löndin við Persa- flóa einna liklegust. Sem fyrr logar allt i óeirðum i tran. Vera sovésks herliðs i Af- ganistan stefnir friði á þessum slóðum i beinan voða. Eritreu- menn halda áfram baráttu gegn Eþiópiu, sem nýtur stuðnings Sovétmanna og Kúbumanna og i Jemen deila menn innbyrðis. Miðað við núverandi stöðu má ekki mikið útaf bera til að taki fyrir oliusölu frá þessum rikjum til Bandarikjanna og Evrópu og Reagan gerir sér ljósa grein i'yrir þvi. Lengsta handfang i heimi HEITIR

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.