Helgarpósturinn - 18.12.1981, Side 4
NAFN: Ketkrókur Grýluson. STARF: Jólasveinn. FÆDDUR: í myrkrí fornöld.
HEIMILI: Á ýmsum stöðum til fjalla. HEIMILISHAGIR: Býr einhleypur með bræðrum sínum
BIFREIÐ: Wagooner árg. 1982. ÁHUGAMÁL: Þingseta, og að fara i allra kvikinda líki
„Ég hef komið auga á að þingmanns
starfið hentar mér prýðisvel”
Kctkrókur sonur Grýlu koni i Yfirheyrslu Helgarpóstsins að þessu sinni. Rcyndar höfum við lcngi
beðiö færis að ná jólasveini í yfirhcyrslu, en eins og gefur aö skilja, gefa jólasveinar sjaldau færi á sér
nema á jólum. Ketkrókur var meö erfiöari yfirheyrsluefnum Heigarpóstsins, lét ýmsum iilum látum á
meöan viö reyndum að tala viö hann, sneri út úr og margt af þvi sem hann lét sér um munn fara viö
blaöamenn getur ekki talist prenthæft. Svör hans viö spurningum okkar reyndust æöi hál, enda eru jóla-
sveinar aldir upp við útúrsnúninga ogker ni og rökrétta hugsun telja þeir sér ekki samboöna. Yfirleitt
taldi hann sér fáttmennskt viökomandi, en lét þó stööugt Iljós áhuga á aö þjóðin kysisig á þing.
Hvers vegna gerðistu jólasveinn?
Það er án efa erfitt fyrir
nútimafólk að skilja það, en hér á
öldum áður.var ekki um að ræða
að maðurfengiað velja sér starf.
Ég fæddist til starfans, er sam-
gróinn honum og get ekki hugsað
mérannarskonar tilveru. Ég játa
þó, að á seinni timum, þegar
maður horfir upp á allt það val-
frelsi sem nútimabömin standa
andspænis, þá flögrar stundum
að manni, aö þaö hefði kannski
verið gaman að hafa eitthvert
annað starf. Að minnsta kosti
svona i igripum. Ég gæti helst
hugsað mér eitthvert létt hluta-
starf til að hvila mig á jólasveins-
rútínunni, svo sem eins og að láta
kjósa mig á þing.
Mörg börn virðast núoröið
standa iþeirri trú, aö jólasveinn-
inn sé góöur og göfugur — er ekki
mikiu nær að lita á þig sem þann
hrekkjalóm sem þú lltur út fyrir
að vera?
Fólk má ekki láta útlitið
blekkja sig. t raun og veru tek ég
mér ýmis gervi, eftir þvi hvernig
stendurupp á tiðina. Fyrir mörg-
um öldum var ég grámóskulegur
og gerði fólki gjarna glennu,
sjálfum mér til skemmtunar. En
á seinni timum, þegar sumir hafa
allt til alls og aðrir þykjast hafa
það, þá verð ég var við, að fólkið
hefurþörf fyrir einhvern sem gef-
ur sig út fyrir að hafa göfugt
hjartalag. Það er eins og main
viljihafa jólasveininn eins og þeir
vildu gjarna vera sjálfir.
Þú þykist sem sagt góöur og
göfugur núna?
Þykist, já.
Mörgum finnst það grátt gam-
an og eiga litið skilt viö göfug-
mennsku, þetla meö aö koma á
glugga og gefa börnum gott i skó.
Þú mismunar börnum með þessu
moti og ert notaöur sem Grýla?
Mér kippir náttúrlega i' kynið.
Ég er sonur Grýlu móður minnar
og því ekki fjarri að nota mig á
gamaldags hátt sem uppalanda.
En hvaö á þaö að þýða aö mis-
muna börnum i gjöfum? Fátæk
börn, eða þau sem eiga fátæka
foreldra,fá óhjákvæmilega minna
i skóinn, færri jólapakka en þau
riku. Finnst þér það sjáifsagt?
Sko — nú ertu farinn að spyrja
eins og út Ur einhverri pólitiskri
kú. Ég hef ekkert vit á pólitík.
Það er satt. Rikir fá meira en
fátækir. Þangað vill fé sem fé er
fyrir. En skipting auðsins er ekki
mitt mál. Ég tilheyri þjóðtrúnni.
Hefurðu enga skoöun á skipt-
ingu auösins? Ertu pólitiskt
viðr ini?
Málið erekki svona einfalt. Sko
— mérfellur þungt að horfa upp á
hvernig mannanna börnum er
mismunað, en satt best að segja
er ég nokkuð fastur i þessum
gamla hugsunarhætti, að hver
maður sé fæddur til sins hlut-
verks. Ég hafði til dæmis ekkert
val. Sjálfur er ég fátækur.
En þú gengur irauöum fötum —
bendir þaö ekki til að þú sért hlið-
hollur vinstristefnu?
Hjartað i' mér slær vinstra
megin, það er satt og rétt — en
rauðiliturinn þykir aðeins hátið-
legur og táknar ekki byltingu
þegar ég ber hann. Siður en svo.
Ég er rauður eins og sunnudag-
arnir á dagatalinu. Það er allt og
sumt.
Hvaöa skýringu kanntu á þvi,
að grunnhyggnir menn og fljót-
færireru oft kallaöir jólasveinar?
Skýringin er einfaldlega sU, að
fólk telur mig og aðra jólasveina
grunnhyggna og fljótfæra. Það
merkir aftur að mér og bræðrum
minum hefur heppnast. Þaö er
eitt af hlutverkum jólasveins i
nútima þjóðfélagi að leika á fólk.
Koma fram i dulargervi. Það er
ekki allt sem sýnist, þegar við
bræður erum annars vegar.
Þú þykist barnavinur — ert
stööugt lofandi gjöfum og gotti.
En i raun ertu notaður sem vönd-
ur, ekki satt?
Nei.
Nei hvað?
Égerekki „barnavinur”. Ég er
aðeins vinur góðra bama. Góð
börn fá gott i skóinn. Hin —
ekkert.
Sum börn vakna upp viö hálf-
étna kexköku eða gamla kartöflu
í sinum skó — varst þú þar aö
verki?
Ég held nú það.
Hvers vegna teikurðu þér þann-
ig aö tilfinningum barna?
Börn eru ekki heilagir englar
fyrir mér. Ef þau hafa verið
óþæg, þá fá þau ekkert eða eitt-
hvað ómerkilegt. Þaö er fullkom-
lega eðlilegt að striða börnum,
þau eru oft argvitans óþekktar-
ormar sjálf.
Þú þykist vera nútimalegur
öörum þræöi — það er hætt við að
þessi grái leikur við vansæl börn
samrýmist ekki mannúöarhug-
myndum nútimans, hvaö þá að
þessar hrekkjalóm shugmyndir
þinar finni stuöning i sálar- eöa
uppeldisfræði?
Aldrei hef ég fræðimaður verið.
Maður hefur nú bara leikið sér
með lifið svona eftir hendinni.
Þú ert i raun og veru ekkert
annaö en handbendi glingursala,
þeirra sem græða á jólunum. Þú
ertnotaður til aö bregða glassúri
á helgibiæ jólanna og hjálpar
kaupmönnum til aö selja meira af
óþarfa, ekki satt?
Alveg hárrétt.
Og þú hlærð að þvi?
Ég hlæ að þvi. Sko — hvað sem
hver segir, þá er ég lifandi kom-
inn beint Ut Ur þjóðtrúnni, þjóðar-
sálinni.Efþú endilega vilt.þáget
ég romsað uppúr mér sögum og
kvæðum og blandað öllu saman
við pólitiska önnuli'su eða hvað
hún heitir. Staðreyndin er sú, að
ég er rótfastur i íslenskum fjöll-
um og þar með islensku þjóð-
félagi eins og það er á hverjum
tima. Ef kaupmenn nota mig sem
tálbeitu eða vörumerki, þá er það
þeirra mál og viðskiptavinanna,
ekki mitt. Þeir gætu alveg eins
sett m ynd af Esjunni eða Geysi og
Gullfossi á jólaumbúðimar — það
kemur mér raunverulega ekkert
við.
Þú ert saklaus?
Fullkomlega.
En samt genguröu erinda
neyslu- og misréttisþjóöfélagsins
meö þvi að gefa rikum börnum
ríkulega og fátækum börnum
fátæklega?
Ég er enginn sérstakur jafn-
aðarmaður. Láttu þér ekki detta
það I hug. Ef þið hér i byggðum
viljiðhafa misréttisþjóðfélag, þá
er það ekki mitt mál. Ég er
náttúrlega partur af þessu'
þjóðfélagi, stærri partur en flest-
ir, en ég samdi ekki stjórnar-
skrána, ég sem ekki um kaup og
kjör.
Þú ert þá algerlega
ábyrgðarlaus?
Fullkomlega.
En hefur samt áhuga á aö
komasl á þing?
Hvað kemur það ábyrgð við?
Þessi skrautlegi búningur þinn
rauð föt, rauö topphúfa, hjarn-
hvitt skegg — er þetta ekki inn-
flutt múndering og í hæsta máta
óþjóöieg?
Jú.
Hvcrs vegna klæöistu ekki á
þjóölegan máta i vaömál og sauð-
skinn og mórauða ull?
Gerðu það sjálfur.
Ég er ekki jólasveinn — þú
sagöist áðan vera stokkinn beint
út úr þjóöarsálinni en ert klæddur
einsog útlendingur — er ekki nær
aö kalla þig santa Klás?
Þjóðarsálin speglast án efa i
mér, alveg eins og hún speglast i
þér og mörgum öðrum en þó
einkanlega i' þingmönnum.
Reyndar var það ekki ég sem
valdi á mig þennan alklæðnað,
heldur þeir aðilar i þjóðfélaginu
sem telja sér hag i að fá mig i
heimsókn. Ef þjóðin vill setja mig
i vaðmál, þá get ég svo sem farið i
það en ég tek fram að vaðmál er
fjandanum óþægilegra að bera
utan um skrokkinn. Menn mega
lika kalla mig santa Klás ef þeir
vilja. Það skiptir mig engu.
Hefurðu engar áhyggjur af
svona amcríkaniseringu?
No sir.
En þetta þingsetutal þitt — ertu
haldinn þráíátri ög ófullnægðri
þingsetuf ikn?
Það er engin fikn. Það er bara
skynsemi. Ég hef komið auga á
að þingmannsstarfið hentar mér
prýðisvel. Há laun, löng fri og ótal
forréttindi — hver hefur ekki
áhuga á þvi? Nú skilst mér að eigi
að fara að fjölga þingmönnum, og
þá hlýt ég að koma til greina eins
oghverannar. Ég hef reyndar lit-
ið þarna inn og mér sýnist vera
þarna margt skemmtilegra
manna og á margan hátt með
svipuð áhugamál og ég hef sjálf-
ur. Hver er svo kominn til með að
segja að jólasveinar nútimans
eigi alla tið að vera á f jöllum? Er
ekki alveg eins hægt að halda þvi
fram aö Karvelog Guðmundur J.
og Steingrimur og Stefán V. og
reyndar allir hinir lika eigi að
vera á fjöllum. Margir þessara
þingmanna virðastlika ofteins og
þeir séu að koma af fjöllum.
Ertu ekki hræddur um aö þing-
seta myndi truf la þig i þinu raun-
verulega starfi?
Siöur en svo. Friin eru löng og
mitt aðalstarf iþyngir mér ekki
nema rétt um jólin og þá eru
þingmenn bara if járlögum og svo
i frii.
Þingsetuáhugi þinn ber nú vitni
unt þjóömálaáhuga þinn — og ef
þú vilt endilega i póiitfk hlýturðu
að hafa einhverjar hugmyndir
um skiptingu þegnanna i rika og
fátæka?
Hefur þingseta eitthvað með
pólitiskar hugmyndir að gera?
Ertu nokkuö annaö en
venjulegur hræsnari?
Ég held að ég sé mjög
óvenjulegur hræsnari — en
hræsnari er ég sjálfsagt.
tllfur i sauðargæru?
Það voru ekki min orð.
Nú hefur maöur grun um aö
greind börn trúi ekki beinlinis aö
þú sért til — þau halda aö þú sért
bara venjulegur maður sem hefur
limt á sig skegg — hvaö segiröu
um þaö?
Þaö er náttúrlega alrangt. Ég
hef nákvæma ættartölu að leggja
fram, félagsskirteini i ótilgreindu
félagi, ökuskirteini gefið út af
sýslumanninum á Blönduósi og
ég er formaöur I félagi sem hefur
það að markmiði að fá stjórnvöld
til aö láta undan fyrir kröfum um
frjálsari markað. Ég er ekkert
plat.
En mörg börn eru hálft um
hálft blendin i trúnni.Þeim finnst
gaman aö þykjast trúa á þig, vilja
nú heldur aö þú sért ekki til —
finnst þér erfitt aö búa viö aö fólk
almennt trúi naumast aö þú sért
til?
Það veldur mér miklum von-
brigðum aö heyra þetta. Ég hef
svo sannarlega lagt trúnað á að
fólk tæki mig nokkuð alvarlega.
Það eru sungnir um mig söngvar.
Það er tekið við mér á jólatrés-
skemmtunum. Ég fæ að hafa bil-
próf og aka um bæinn og manni er
att á allar hugsanlegar glugga-
kistur að setja eitthvað gott eða
eitthvað litið og ljótt i skó smá-
barnanna. Ég skil ekki svona tal.
Hvernig lýsiröu sjálfum þér?
Ég er eins og menn vilja hafa
mig. Ég get verið hávaxinn, lág-
vaxinn, skeggjaður, rakaður,
kátur, byrstur, heimskur, gáfað-
ur, heiðarlegur, svikull, feitur,
mjór. Ég birtist i byggðum i
svartasta skemmdeginu og bregð
á leik til að stytta fólki stundir,
færa þvi gjafir og hræra upp i
mannlifinu Ég geng rauðklæddur
núorðið, á svört stigvél og rauða
topphúfu, en ef menn endilega
vilja.get ég klætt mig eins og ein-
hver gamaldags mýra-móri og
verið grár i mi'nu gamni.
Hver er uppáha ldsm aturinn
þinn?
Ég vil gratineraða snigla I for-
rétt, nautalundir i vinsósu i aðal-
rétt og bananasplitt á eftir.
Ertu raunverulcga til?
Yes Kid.
eftir Gunnar Gunnarsson
myndir: Jim Smart