Helgarpósturinn - 01.10.1982, Blaðsíða 10
10
Föstudagur 1. október 1982
jjfísturinn
Fflharmóníukórinn:
Nýtt
starfsár,
nýr
stjórnandi
„Aðalviðfangsefni Fil-
harmóniukórsins hingað til hafa
verið flutningur kórverka með
Sinfóníuhljómsveit og það verður
svo áfram að nokkru leyti i
vetur”, sagði Ragnar Arnason
stjórnarformaður kórsins i viðtali
við Helgarpóstinn. „Þó tökum viö
þátt i einum tónleikum með ls-
lensku hljómsveitinni, nýstofn-
uðu. Það verða aðventutónleikar,
þann 19. desember, undir stjórn
Guðmundar Emilssonar, sem
hefur verið ráðinn stjórnandi
kórsins en hann er einnig stjórn-
andi hljómsveitarinnar nýju”.
A aðventutónleikunum verður
flutt hátiðarmótetta In Ecclesiis,
eftir Giovanni Gabrieli fyrir tvö-
faidan kór og málmblásturshljóö-
færi, ásamt kantötunni Vakna
Sions verðir kalla, eftir Bach.
Guðmundur Emilsson.
Eftir áramót syngur kórinn á
tveim hljómleikum með Sinfóniu-
hljómsveitinni. 1 byrjun mars
mun kórinn syngja i konvertupp-
færslu á óperunni Tosca, eftir
Verdi, en stjórnandi á þeim tón-
leikum verður Jean-Pierre
Jaquillat, stjórnandi Sinfóniu-
hljómsveitarinnar.
Þann 14 april syngur kórinn
aftur með Sinfóniuhljómsveitinni
þegar flutt verður verkið
Requiem (Sálumessa) eftir
Fauré, en stjórnandi veröur Guð-
mundur Emilsson.
,,Ég vil sérstaklega leggja
áherslu á það, hversu mikill
fengur það er fyrir kórinn að hafa
ráðið svo góðan stjórnanda sem
Guðmundur Emilsson' er”, sagði
Ragnar. „Hann er vel látinn og
velmenntaður i kór- og hljóm-
sveitarstjórn, og það verður mik-
ill munur að vinna með sama
stjórnanda allan æfingartimann,
en ekki eins og áður, þegar menn
æfðu kórinn fyrir aðra stjórn-
endur, sem siðan komu aðeins til
að leggja siðustu hönd á verkiö”.
Ragnar sagöi aö I kórnum væru
nú um 100 félagar, en ætlunin
væri að fjölga nokkuð i honum,
upp i 140 manns. Einnig væri
ætlunin aðhafa námskeiö fyrir þá
nýliða, sem litið kynnu i tónlist,
en æfingar yrðu tvisvar i viku.
hph
Atómstöðin á Akureyri
Starfsemi Leikféiags Akur-
eyrar er nú hafin fyrir nokkru og
eru þeir norðanmenn nú að æfa
Atómstöðina eftir Halidór Lax-
ness, cn Briet Héðinsdóttir leik-
stýrir þeirri uppfærslu. Briet
gerði einnig nýja leikgerð af sög-
unni.
I sýningunni taka þátt 19 leik-
arar, þar af tveir á barnsaldri.
Aðalhlutverkiö Uglu, leikur Guð-
björg Thoroddsen, en Theodór
Júliusson og Sunna Borg leika Ar-
landshjónin. Börn þeirra hjóna
leika Ragnheiður Tryggvadóttir,
Bjarni Ingvarsson og Gunnar Ingi
Gunnsteinsson, og organistann
leikur Marinó borsteinsson.
Atómstöðin veröur frumsýnd
nú i byrjun október.
fyrsta verkefni
á leikári LA
I byrjun desember frumsýnir
LA svo nýtt barnaleikrit eftir
Signýju Pálsdóttur, leikhússtjóra
LA, en hún lei.kstýrir einnig
verkinu. Leikritið heitir „Siggi
var úti” og fjallar um ævintýri
sem verða úti i hrauni á tslandi,
þar sem verið er að rannsaka is-
lenska refinn. Sýningin verður öll
unnin af fastráðnu starfsfolki
leikhússins.
Leikritið Bréfberinn frá Arles,
eftir Ernst Bruun Olsen, hefur átt
miklum vinsældum að fagna á
Norðurlöndum undanfarin ár.
Leikritið er i gamansömum tón
og fjallar um siðustu æviár list-
málarans Van Gogh. Þetta verk
verður þaö þriðja i röðinni á verk-
efnaskrá féiagsins, og kemur
leikstjórinn Haukur Gunnarsson
sérstaklega frá Noregi til að
vinna þetta verk, sem og leik-
myndahönnuðurinn Svein Lund
Roland.
LA mun halda helgarnámskeið
fyrir starfsmenn áhugaleikféiaga
á Norðurlandi um miöjan októ-
ber, I grimugerð, leiktjaldasmiði,
ljósatækni, framsögn og leik-
túlkun. Kennarar verða úr hópi
fastráðins starfsfólks leikhússins.
•wflpajiST •" jwj
Starfsmcnn LA og leikendur I Atómstöðinni.
*
Nýlistasafnið opnar nú um
mánaðamótin sýningu á verkum
eftir Dieter Roth. Þetta er geysi-
stór sýning, með rúmlega 400
titlum, cn vegna þessarar sýn-
ingar gaf listamaðurinn Nýlista-
safninu um 360 verk ýmisskonar
svo sem grafikmyndir, teikn-
ingar, bækur, póstkort, plaköt,
„hluti”, og hljómplötur. Þá lánar
hann einnig myndbönd til sýn-
ingarinnar.
Þessi höfðinglega gjöf á sér
nokkra forsögu, en það var árið
1978, að Ragnar Kjartansson
myndhöggvari gaf Nýlistasafninu
um 50 verk eftir Dieter Roth, svo
sem grafikmyndir, bókverk,
skáldverk (ljóð) ýmsar sérút-
gáfur og fleira. Það var siðan
ætlun Nýlistasafnsins að sýna
þessi verk, en þegar listamaður-
inn frétti af þeirri ætlan, tók hann
sig til og safnaði saman viösvegar
að úr Evrópu verkum eftir sig og
gaf safninu. Nú munu aðstand-
endur safnsins varla hafa haft við
að rifa upp pakka siðustu dagana
fyrir sýningu.
Dieter Roth hefur lengi talist i
fremstu röð framsækinna lista-
manna og verið fulltrúi iands sins
(Sviss) á alþjóðlegum sýningum,
nú siðast á Biennalnum i Fen-
eyjum. Hann hefur tekið þátt i
óteljandi samsýningum og heldur
fjölda einkasýninga á hverju ári.
Sýningin á verkum Dieter Roth
stendur yfir frá fyrsta til sautj-
ánda október. Hún er opin dag-
lega frá kl. 4—10 en frá kl. 2—10
um helgar.
ÚTVAKIi
Föstudagur
1. október
.55 Daglegt mál. Já ekki veitir af.Þáttur Ólafs
Oddssonar endurtekinn frá kvöldinu áöur.
Svo getur maður bara lagt sig.
11. Það er svo margt að minnast á. Það er Torfi
Jónsson sem sér um þáttinn af mikilli snilld.
11.30 Létt tónlist. Létt segir íkynningu, en ef fólk
mundi reyna að spita eftir Nýja kompaníinu
efast ég um að hér mundi standa létt tón-
list. En við látum það nú standa.
13.00 Óskalög sjómanna. Hvernig verða þau
þessa vikuna? Þetta er spurning sem
brennur á vörum mér.
16.40 Hefurðu heyrt þetta? Nei, en lyder
spændende. Þetta er nefnilega þáttur fyrir
börn og unglinga um tónlist og ýmislegt
fleira.
17.00 Síðdegistónleikar.TónlisteftirTelemann
og Vivaldi. Jájá.
19.00 Kvöldfréttir. Þessu má nú enginn missa
af.
22.35 „ísland" eftir Tivari Leiviská. Þýðandi
Kristján Mántylá. Eftir UNM tónleikana hef
ég mikla trú á Finnum. Þess vegna ætla ég
að hluta á framhaldssöguna. Arnar Jóns-
son leikari byrjar lesturinn og les á sama
tíma næstu kvöld.
Laugardagur
2. október
9.30 Óskalög sjúklinga. Héma ætla ég að
vakna og fara að taka til heima hjá mér.
Ekki veitir al. Enda búið að vera nóg að
gera. Það sést best af einú. Ég segi ekki
hvað það er...
11.20 Kannski verð ég búin hér. Sumarsnæld-
an. þetta er þáttur fyrir börn. Ekki fyrir mig.
13.00 Helgarvaktin. Hún hefst hér í umsjá Arn-
þrúðar Vettvangs og Hróbjartar Stúdíó 4.
Kannski veröur þetta einskonar blanda af
þessum tveimur þáttum. Sennilega þó einn
syrpuþállurinn enn.
15.10 Svavar Gests í dægurlandi og hann ætl-
ar að spila fyrir okkur lög frá árunum 1930-
1960. Þá vitum við það.
16.20 I sjénmáliÞað er þáttur fyrir alla fjölskyld-
una. Vitiði að mér fyndist bara að fólk mætti
ráða á hvað það hlustaði. Það er óþolandi
þegar það er alltal verið að segja fyrir hvern
þessir þættir eru. Eins og maður geti ekki
sjálfur valið og hafnað.
16.50 Barnalög - Getiði fyrir hvern?
19.35 Hvern er verið að einoka? Brandari árs-
ins. Brandari ársins? Já, það er Helgi Pét-
ursson Washington sem flytur þáttinn.
23.00 Laugardagssyrpan hans Geira, elskan
gráttu ei. Var einhver að segja að Geiri
væri bróðir Bjössa? Gæti hann skýrt það
betur. Og hvað þá með Magga Hvar kem-
ur hann innf?
Sunnudagur
3. október
10.25 Út og suður. Dr. Bjöm Dagbjartsson segir
okkur frá Maldív eyjunum. Já fólk hefur
flakkað viða.
13.15 Söngleikur á Broddvei. Og Árni Blandon
heldur áfram að segja okkur frá mjálminu
þaðan.
14.00 Járnharpan er leikrit eftir Joseph O'Conor
en Karl Agúst Úlfsson þýddi það og bjójtil
útvarpsllutnings, Hallmar Sigurðsson æíl-
ar að leikstýra verkinu en leikendur eru
a.m.k. 11 (10 karlar og einkona) Borgar,
Sig Karls, ÞórhallurSig, Ragnh. Steindórs,
Kalli Gúmm, Rúrik. Gummi Ólafs, örn
Ólafs, öm Árna, Vúddí Egg, Emil O Witsch
(td.) og Kalli sjálfur.
15.50 Kaffitiminn. Kannski rjómapönnukökur
hjá mömmu.
16.50 Kokkur til sjós sumarið '71. Smásaga
eftir Guðrúnu Jakobssen.
17.00 Karol Sziymanowski - aldarminning.
Atli Heimir sér um hana.
19.25 Veistu svarið? Stjórnandi Guðmundur
Heiðar Frimannsson. Dómari Jón Hjartar-
son og aðstoðarkona Þórey Aðal-
steinsdóttir. Þetta er frá RUVAK
22.35 Nútímatónlist i um sjá Þorkels Sigurbjöms.
23.00 Kvöldstrengir I umsjá Helgu Alís Jó-
hannsdóttur en aðstoðarmaður er Snorri
Guðvarsson og þetta er einnig þáttur frá
RU VAK. Svo held ég maður skelli sér bara
í háttinn.
S.IONVARI*
Sjónvarp
Föstudagur
1.október
20.40 Á döfinni. Þetta mun vera þáttur um listir
og menningarviðburði. Afgreidd á tiu mín-
útum. Vel af sér vikið hjá sjónvarpinu.
20.50 Prúðuleikararnir. Ég veit það ekki. Þó er
alveg ótrúlegt hvað það er hægt að sýna
þetta sama endalaust. Hvaða barlómur er
þetta annars. Vist eru nýir gestir í hverjum
þætti og núna er það sjálfur Jean Pierre
Rampal.
21.15 Singapore fellur. Eða sko, þegar hún féll í
febrúar 1942. Þetta er bresk heimilda-
mynd. Ég segi ekki meira.
22.05 þrir bræður. (Tre fratelli) Já þetta er sko
mynd sem vert er að horfa á. Enginn Vino
Rosso sem leikstýrir heldur Francesco
Rosi. Myndin fjallar um þrjá bræður sem
hreppt hafa ólíkt hlutskipti I lifinu og greinir
á um margt þegar þeir hittast eftir langan
aðskilnað við útför móðúr sinnar.
Laugardagur
2. október
16.30 íþróttir. Upp með húmorinn og allir I fínu
formi. Skyidi það vera af hreyfingaleysi
sem maður er svona sloj í dag. Bjami af
hverju ekki að vera með iþróttir fyrir alla?
Svona til skiptis þú skilúr.
18.30 Riddarinn sjónumhryggi. Þá er það 28.
þáttur eftir langt hlé. Hefði mátt vera
lengra.
20.35 Sápa. Lux eða þessi nýja frá Frigg? Eða er
e.t.v. óhollt að nota sápu. Vatnið er best
ískalt.
21.00 Blágrasahátíð. Eftir að Halldor fór að hafa
blágrasaþættina I útvarpinu er eins og það
sé engin önnur tónlist til í heiminum, - eða
þannig.
21.30 Endalok Sheilu. Já og endalok min.Ég
veit ekki hvar ég verð eftir helgina. Hva, nei
nei þetta er bandarisk mynd Irá 73 og er
ekki við hæfi barna. Já alveg satt og kann-
ski ekki nema von. Raquel Welch, James
Coburn og James Mason leika aðalhlut-
verkin.
Sunnudagur
3. október
18.00 Sunnudagshugvekja. Upp, upp min sál.
Ekki veitir af.
18.10 Stundin okkar. Stundin kynnir nýja titil-
lagið og ég býst við að Bryndís rauli um eða
yfir. Svo förum við í sólbað á suðrænni
sólarströnd eða skoðum brúðumynda-
flokkinn um Róbert og Rósu. Og rúsínurnar
I pylsuendanum eru svo tveir hafnfirskir
löggumenn. Búddi fór I bæinn og Búddi fór í
búð. Ég verð ekki eldri.
20.55 Braseliufararnir. Þetta er ný íslensk heim-
ildamynd um flutning Islendinga til Braselíu
á harðindaárunum 1859-1873. Rakin er
saga útflytjendanna í máli og myndum og
afkomendur leitaðir uppi. Myndin er eftir
önnu Björnsdóttur og Jakob Magnússon.
Eitthvað kannast ég við nöfnin.
21.35 Jóhann Kristófer. Sögulok. Ég get nú bara
sagt ykkur það að mér leist hreinlega ekk-
ert á síðasta þátt. Hvað á svona dóna-
skapur að þýða hjá Jóhanni? Og hvað ger-
ist næst. Maður er bara spenntur.
22.30 Bangsi gamll. Nei ekki hann heldur elsta
kvikmyndafélag I heimi. Allt um það. Eða
ekkert.