Helgarpósturinn - 01.10.1982, Blaðsíða 17

Helgarpósturinn - 01.10.1982, Blaðsíða 17
ffis* ’rinn r 1. október 1982 Sigurður Karlsson trommari gefur út sólóplötu Sigurður Karlsson trommuleik- ari er fyrir löngu orðinn lands- þekktur fyrir húðabarning i ýsmum frægum hljómsveitum siðast i Friðryk. Nú er Sigurður hættur að spiia á dansiböllum og eftir rúma viku kemur fyrsta sóióplata hans á markað. „Ég hef verið aö möndla með gitarinn i þrjú ár og það hafa ýmsir hlutir verið að brjótast i nefni það Veran”. — Eitthvað fleira hefur þú á prjónunum. „Já, það næsta sem ég ætla aö gera er að útsetja Beirút fyrir 80 manna sinfóniuhljómsveit og kór. Ég ætla að lengja það, bæta við forleik og lokakafla, Grand Finale, þar sem ég vil fá fjórar fallbyssur. Þessu ætla ég að reyna að ljúka fyrir jólin og flytja byrja á henni fyrir jól en við gerö hennar ætla ég að fá til aðstoðar ýmsa tónlistarmenn sem ég hef áhuga á, einkum Phil Collins sem ég hef alltaf dáðst að. Ég vil vanda til þessarar plötu”. — Og þú ert alveg hættur dansi- ballaspilinu? „Já, ég fer aldrei út i það aftur. Það er ekki fyrir góða tónlistar- menn, með þvi eru þeir að nauðga FREKJUGANGUR ÍLAGINU” mér”, sagði Sigurður þegar Helgarpósturinn sótti hann heim. „Ég hef verið i músik siðan ég var 8 ára gamall og lifði svo við- burðariku lifi að fyrir þremur árum sprakk ég á þvi og varð að fara i meðferð. Eftir að henni lauk fann ég fyrir þrá eftir að tjá mig meira i músik, fékk mér gitar og fór að semja. Ég átti eitt lag á plötu Friðryks i fyrra, það var fyrsta lagið eftir mig á plötu siðan ég var i Svanfriði fyrir 10 árum. 1 vor fékk ég sent ljóð frá konu sem mér þykir vænt um. Það kveikti i mér svo ég samdi við það lag. En það var ekki nóg, það var fleira að brjótast i mér. Ég fékk þvi inni i Stemmu og tók upp fjögur lög. En eitt var eftir og það var einhver frekjugangur i þvi, það vildi út. Og þó mér sé, af skiljanlegum ástæðum, illa við rafmagnstrommur þá fannst mér þær eiga að vera i þessu lagi, þær tákna þar hörku og grimmd. Á móti setti ég svo átta kassagitara og 4 xylofóna til að tákna mann- lega mýkt. Ég spila á öll þessi hljóðfæri sjálfur. Með þetta lag fór ég til Kristjáns Hreinsmagar og bað hann að yrkja við það. Hann hreifst af laginu og orti við það Ijóð sem heitir Beirút, þetta vari þann mund sem lætin voru að byrja þar. Þetta lag verður á plötunni i tveimur útsetningum, sungið af Pálma Gunnarssyni og instrú- mental. Auk þess verða á plötunni 4 önnur lög. Mér til aðstoðar eru Pálmi sem syngur og spilar á bassa, Björn Thoroddsen, Tryggvi Hubner, Hjörtur Hanser og Pétur Hjaltested. Þessa plötu kalla ég Veruleiki? og gef hana út sjálfur. Ég stofnaði fyrirtæki i kringum plötuna og verkið á konsert. Ég gerði lika videóspólu með laginu og sendi m.a. eitt eintak af henni til Paul McCartney. Þegar þetta er búið ætla ég að gera aðra plötu, efni á hana er að miklu leyti tilbúið. Þar ætla ég ekki að velta fyrir mér vanda- málum mannsins og heimsins eins og á Veruleika? heldur á hin platan að fjalla um ástina, eina 10—12 þætti þeirrar góðu tilfinn- ingar. Hana ætla ég að taka upp erlendis þvi þessi stúdió sem hér eru starfrækt eru orðin úr sér gengin. Vonandi tekst mér að sjálfum sér. Út úr henni hafa menn komið margbrotnir á sáí og likama. Ef maður ætlar að verða góður tónlistarmaður sleppir maður öllum vimugjöfum, það hef ég lært. Ég er lika mjög trú- aður og það hefur hjálpað mér. Nú ætla ég að vinna að konsert- inum sem ég nefndi áðan og ekki koma fram fyrr en ég fæ það i gegn að hann verði haldinn. Þar safna ég saman i band og enda svo með sinfóniuhljómsveit. Og ég veit að þetta gengur”, sagði Sigurður Karlsson, brattur að vanda. — ÞH Erum aö rýma til fyrir nýjum plötum. Magnaö úrval: Reggí, rokk, fjútjúr, nýrómantik, ska og ég veit ekki hvaö og hvaö. Kond’ í STUÐ, þú finnur eitthvaö fyrir þig! Laugavegi20 Simi27670 Nýtttæki tiíb^H þjonustu reióubuió Olís hefur nú tekiö í notkun nýtt tæki, olíusugu sem gerirviöskiptavinum kleift að fá skipt um vélarolíu á bílum sínum á ein- faldan og hraövirkan hátt. Olíusugan sem er til ókeypis afnota, er sett upp miðsvæðis í borginni, á bensínaf- greiðslu Olís við Álfheima, gegnt Glæsibæ. Olíusugan er einföld í meðförum: Sog- röri er rennt niður um olíukvarðagat vélar- innar og óhreina olían sogast upp á auga- bragði. Síðan er nýrri og hreinni olíu hellt á vélina, lesið af kvarðanum til öryggis, — og ekið af stað. Við bendum bíleigendum á að ódýrasta og einfaldasta ráðið til að viðhalda bílvél- inni er að fylgjast vel með olíunni og skipta reglulega. Slíkt stuðlar einnig að minni eldsneytiseyðslu. Við bendum einnig á að Olís býður ein- göngu l.flokks gæða olíur frá B.P. og Mobil. Einföld olíuskipti — gjörið svo vel. OLÍUVERZLUN ÍSLANDS HF. „ÞAÐ VAR EINHVER

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.