Helgarpósturinn - 01.10.1982, Blaðsíða 20

Helgarpósturinn - 01.10.1982, Blaðsíða 20
20____________ „íslendingar hvorki betri né verri en aðrir’' l»e}>ar íslendingar eru að gorta af landi sínu oj> þjóð í eyru útlendinj>a heyrist þessi setniiij> æði oft: „Os svo eru enj>ir ghepir á Islandi.“ Hvað skyldi nú vera hæft í þessari fullyrð- inj>u? Erum við eins saklaus og við viljum vera láta? Þessar spurninj>ar lagði llelyarpósliirinn fyrir Erlend S. Baldursson sem vinnur hjá Skilorðseftirliti ríkisins. Hann er mcnntaður í afbrota-, félags- og sálarfræðum við Os- lóarháskóla og hefur þann starfa að fyigjast með ungu fólki á aldrinum 15-21 árs sem lent hefur upp á kant við lögin. „Ef við lítum á fangelsin og fjölda fanga miðað við 100 þúsund íbúa þá er þó nokkur munur á okkur og hinum Norðurlöndunum. Felstir fangar eru í Finnlandi eða 106, 72 í Svíþjóð, 68 í Danmörku, 46 í Noregi og 32 á íslandi. Þessar tölur eru mjög lágar ef borið er saman við fjölda fanga í Bandaríkjunum eöa Sovétríkjunum. í Bandaríkjunum eru þeir á bilinu 250-300 fyrir hverja 100.000 íbúa. Ein ástæðan fyrir því að færri eru í fangels- um hér á landi er sú að í Noregi, Danmörku og Svíþjóð er stór hluti fanga að afplána stutta dóma sent þeir hafa hlotið fyrir ölvun- arakstur. Þar fá menn oft fangelsisdóma fyrir fyrsta brot af því tagi og í Noregi verða þeir að afplána þriggja vikna fangelsi. i iér er ölv- unarakstur yfirleitt afgreiddur með dómssátt og sekt. Önnur ástæða fyrir því að fangar eru færri hér er sú að hér á landi er reynt að gera allt sem hægt er til að komast hjá því að senda ungt fólk í fangelsi. Af þeim 70-75 föngum sem sitja inni að jafnaði eru nú ekki nema 2 eða 3 undir tvítugu. í Noregi er mjög stór hiuti fanganna á aldrinum 16-20 ára.‘l Dómar styttast — Nú skera Finnar sig líka úr, í liina átt- ina. Af hverju stafar það? „Það stafar einkum af því að þar eru dómar yfirleitt mun lengri. Þróunin undanfarin ár hefur verið sú á Norðurlöndunum að dómar hafa styst verulega en Finnar hafa dregist afturúr í þeirri þróun. Þó hefur föngum fækk- að talsvert hjá þeim, úr 150 árið 1970 í 106. Mér á landi hefur þeim hins vegar fjölgað úr 19 í 32 á sama tíma. Það á sér skýringu í því að áður var algengt að dómar fyrntust og menn sluppu við að afplána þá. Það var líka tilvilj- unum háð oft á tíðum hverjir fóru inn. Nú er meiri festa á hlutunum, það þarf mikið til að menn sleppi við að afplána óskilorðsbundna dóma auk þess sem afbrotum hefur hugsan- lega fjölgað. Svo höfum við ekki við sania plássleysi í fangelsum að glíma og td. í Noregi og Danmörku. I Danmörku eru unt 10 þús- und rnanns á biðlista eftir að afplána, flestir fyrirölvun við akstur. Þar hefurverið rætt um aö leggja einhverja herstöðina undir fangelsi en sumir vilja frekar breyta refsingunum og Föstudagur 1. október farTTTTT^ sturmn afnema fangelsisdóma fyrir ölvunarakstur." — Er einhver munur á því hér og erlendis hverjir afplána sína dóma, úr hvaða stéttum fangar eru? „Nei, það er svipað hér og á Norðurlönd- unum. Það eru þeir sem hafa orðið undjr sem sitja inni. Þegar farið var að senda menn í fangelsi fyrir ölvun við akstur á hinum Norð- urlöndunum héldu margir að þetta myndi breytast, að nú lentu „fínu rónarnir" ekkert síður í fangelsum en þeir minna fínu. En könnun sem gerð var í Noregi leiddi merki- legt nokk hið gagnstæða í Ijós. Þeir sem lentu inni fyrir ölvun við akstur voru líka flestir úr lægri stéttum, bjuggu við erfiðar fjölskyldu- aðstæður og áttu við drykkjusýki að stríða. Menn hafa skýrt þetta með því að minni líkur séu á að forstjórinn sem ekur heim til sín úr vinnunni á fínum Volvo sé gómaður en sá sem er að þvælast drukkinn á gamalli Cortinu um miðja nótt.“ Vopnuð rán óþekkt — Þú nefndir töluna 70-75 fanga, hvernig skiptast þeir eftir tegundum afbrota? „Núna sitja 15 manns inni fyrir dráp, 7-8 fyrir fíkniefnamisferli, 8 fyrir kynferðisafbrot og ofbeldi og afgangurinn fyrir auðgunar- brot. Þessa stundina sitja 2 konur inni, báðar fyrir man'ndráp, en oft á tíðum hefur ekki verið nein kona í fangelsum landsins, enda varla hægt að segja að kvennafangelsi hafi verið til. Það er mjög sjaldgæft að konur lendi inni fyrir annað en alvarleg brot. í auðgunarbrotum er algengt að þær séu svona utan í þeim, þær eru ekki með ísjálfum þjófn- aðinum en taka þátt í að eyða þýfinu. Þær fá líka oftar skilorðsbundna dóma en karlar. Það er algengt að þær hætti eftir fyrsta dóm en karlarnir halda áfram." — Hvernig lítur þessi skipting út í saman- burði við hin Norðurlöndin? „Húnerósköpsvipuð. Héreru 2-3% fanga konur og í Noregi eru þær 2-5% fanga. Eini munurinn cr þetta með unga fólkiö sem ég nefndi áðan. Og svo er ein tegund afbrota óþekkt hér en mjög algeng á hinum Norður- löndunum. Þar á ég við vopnuð rán, banka - ránoþh. Þau hafa færst rnjög í vöxt á hinum Norðurlöndunum en hér man ég ekki eftir öðru en þessum dularfullu ránum í Sand- gerði. Eg hef ákveðna skýringu á því af hverju viö höfum sloppið við þessa tegund afbrota. Erlendis er algengast að menn reyni að komast úr landi með fenginn, en hvert eiga menn að fara hér? Svo er það líka ís- lenska myntin, það er ekki auðvelt að skipta stórum fjárhæðum í íslenskri mynt erlendis.“ Afbrot svipuð - en minna kært Erlendur gerði í fyrra könnun á sam- skiptum almennings og lögreglu. Þar spurði Rætt við Erlend S. Baldursson ■ m ■ um „ísland - landið sem laust er við glæpiT? hann ma. stóran hóp fólks frá þremur stöð- um, Reykjavík, Vestmannaeyjum og Suður- Múlasýslu, um það hvort það hefði orðið fyrir þremur tegundum afbrota sl. 12 mán- uði. Afbrotin sem um varspurt voru þjófnað- ir, ofbeldi og skemmdarverk. „Könnunin leiddi í ljós aðl l,3%aðspurðra höfðu orðið fyrir þjófnuðum, 9.2% fyrir ófbeldi og 16% fyrir skemmdarverkum. Þessar tölur eru ekki ósvipaðar því sem sams konar kannanir á hinum Norðurlöndunt hafa leitt í ljós og ég tel því enga ástæðu til að ætla að minna sé um afbrot hér en þar. Og þótt minna sé unt afbrot í Suður-Múlasýslu en Reykjavík er sá munur ekki verulegur. En það er niunur á því hvernig brugðist er við þessum afbrotum. Málin koma ekki endi- lega til kasta lögreglu heldur eru leyst öðru- vísi. Ef við lítum á ofbeldið kom td. í ljós að 22,8% þeirra sem höfðu orðið fyrir því leituðu læknis en einungis 10% kærðu til lög- reglunnar. Ástæður þessa eru einkum þær að menn töldu atvikið of lítilfjörlegt eða að þeir þekktu þann sem beitti ofbeldinu. Hvað þjófnaðina varðar þá kærðu 40% atvikin til lögreglu, hinir töldu það of lítilfjör- legt eða að tilgangslaust væri að kæra. Þó þetta hlutfall kynni að virðast lágt hefur það hækkað talsvert í seinni tíð og er það vafa- laust vegna þess að nú eru fleiri komnir með heimilistryggingu og til þess að fá tjónið bætt verður að kæra það til lögreglu." Svipaður fjöldi manndrápa — Talandi um ofbeldi, erum við íslending- ar ekki betri en frændur okkar á því sviði? „Það held ég ekki. Við erum td. orðnir mjög svipaðir þeim hvað manndráp áhrærir. Undanfarin ár hafa þau veriö þetta 1.2 og 3 á ári. í ár hafa tvö manndráp 'ærið framin og enn er árið ekki liðið. Við erum hins vegar lausir við manndráp sem stundum verða í vopnuðum ránurn, oftast vegna mistaka eða ef einhver ætlar að verjast ræningjunum. Blöðin hafa mikið reynt að blása það upp hve hættulegt sé að vera á ferli á vafasömum stöðum eftir að skyggja tekur vegna hættu á að á mann sé ráðist. Þetta er mesti misskiln- ingur. Það gildir það sama hér og á öðrum Norðurlöndum að heimilið er langhættuleg- asti staðurinn. Stærsti hluti manndrápa og ofbeldisverka gerist á heimilunum og þeir sem þau fremja eru oftast nánir vandamenn, td. makar. Ég sé því ekki neinn verulegan mun á okk- ur og frændum okkar að þessu leyti. Lögregl- an hefur ekki minna að gera hér. Hins vegar veldur fámennið því að hér er auðveldara að koma upp um glæpi. Það er alger hending að hér sé- framið ntanndráp án þess að dráps- maðurinn finnist." Að stela 25 þúsund krónum á dag — Nú er ntikið talað um að auðgunarbrot- um fjölgi í kjölfar aukinnar fíkniefnaneyslu. „Um það eru engar tölur til. Það kynni að vera að einhver slík tilvik hafi komið fyrir en ég er ekki trúaður á að það sé algengt. Yfir- völd og tryggingafélög á hinum Norðurlönd- unum hafa miklar áhyggjur af þessu, en ekki eru allir sámmála um að þetta sé eins útbreitt og þessir aðilar vilja vera láta. í Noregi er orðið talsvert um heróínneytendur og því hefur verið haldið fram að þeir fjármagni neysluna með því að stelpurnar stundi vændi en strákarnir innbrot. í því sambandi hefur verið bent á að heróín sé dýrt efni og að ekki sé óalgengt að neytendur þurfi að punga út með 6-8 þúsund krónur á dag til að halda sér gangandi. Ef þeir ættu að fjármagna þessa neyslu með innbrotum þyrftu þeir að stela verðmætum sem eru margfalt dýrari. Hvað endast menn lengi til að stela 20-25 þúsund krónum á dag? Slíkt gera ekki sjúklingar, það þarf þrautþjálfaða afbrotamenn til að standa í því. Ég held að flestir fjármagni sína fíkni- efnaneyslu með því að selja efnin sjálfir til annarra. En það er erfitt að gera sér grein fyrir um- fangi fíkniefnaneyslunnar hérlendis. Það eru svo miklir öfgar í því máli á báða bóga. Ég held þó að engin stökkbreyting hafi orðið. Tölur um fjölda mála benda ekki til þess og ef einhver fjölgun verður milli ára held ég að það stafi frekar af aukinni löggæslu en að brotunum fjölgi svo mjög.“ Afbrot unglinga svipuð — í þínu starfi hefur þú mikil afskipti af ungu fólki. Hvernig heldur þú að afbrotum þess sé hátiað miðað við jafnaldrana á hinum Norðurlöndunum? „Ég held að það sé líka mjög svipað. Árið 1976 var gerð samanburðarkönnun á reykvískum unglingum og jafnöldrum þeirra í Silkiborg í Danmörku. Þar voru unglingarn- ir spurðir hvað þeir hefðu brotið af sér og útkoman var mjög svipuð. Hér er hins vegar auðveldara að beina unglingunum inn á rétt- ar brautir af því að hér er nóg atvinna. Þeir sem verða fyrir barðinu á atvinnuleysi eiga mest á hættu að komast í kast við lögin. Ef þjóðfélagsþróunin verður svipuð hér og er- lendis er mikil hætta á að hér komi upp atvinnuleysi og þá mun afbrotum unglinga fjölga. Það er nefnilega jafnmikil pressa á þeim unglingum sem eiga mikla peninga og þeim sem eiga iitla. Auglýsingarnar segja þeim að þetta verði þeir að eignast og þeir gera það einhvern veginn.“ — Það er þá skoðun þín að lítill munur sé á íslendingum og öðrum Norðurlandabúum hvað afbrot snertir? „Já, ef vopnuðu ránin eru undanskilin get ég ekki séð að íslendingar séu neitt betri eða verri." viðtal: Þröstur Haraldsson mynd: Jim Smart

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.