Helgarpósturinn - 20.10.1983, Side 10

Helgarpósturinn - 20.10.1983, Side 10
10 Fimmtudagur 27. október 1983 ^posturínn Kjarval í húsi sínu Ég kynntist talsvert vel gamal- menninu Kjarval, það er nætur- hrafninum, þau tvö ár sem ég starfaði sem næturvörður á hóteli þar sem hann dvaldi siðustu starfsár ævinnar, þá orðinn tals- vert hrumur og drykkfelldur og kom ég honum oft í bælið, köld- um og hröktum, stoltum og ein- mana en ekki vitund skrýtnum. Eina nóttina gaf hann mér stórt málverk eftir sig úr einkasafni sínu sem hann vildi ekki selja og kvaðst geyma handa sjálfum sér, vegna þess að sérhver málari yrði að eiga sitt einkasafn. Það væri eins konar kjarni ferils hans, og þangað sækti hann eilíflega nýja orku í sjóð. Slík söfn væru móðurlíf málarans og listar hans, og ef vel tækist til færi fram stöð- ug fæðing. Við ræddum oft á nóttunni um lífið og listina og hann sýndi mér og bar undir mig skreytingar við ljóð sem hann gerði á þessum tíma og fleygði annað hvort eða birti í Lesbók Morgunblaðsins. Honum var afar hlýtt til Matt- híasar Johannessen en yfir höfuð var lund hans köld eða hlutlaus. Og ég man hvað líkami hans var kaldur þegar ég kom honum ósjálfbjarga í rúmið. Engu að síð- ur var hann á afar heitu Iífi. Menning hans og þekking var ekki víðfeðm en hann var íhugull og forvitinn eins og margir „gaml- ir íslendingar". Sjálfsathyglin beindist annað hvort algerlega að honum eða gersamlega frá hon- um. Hann virtist ekki þekkja mundangshófið, aðal vitsmun- anna, og þess vegna þótt hann ætti þá í ríkum mæli fóru þeir oft í súginn á kjánalegan hátt, óðar en þriðji maðurinn kom á vett- vang. Þá greip hann feimni, næst- um barnsleg skelfing og hann setti strax upp grímu. Og hvernig sem þriðji maðurinn reyndi að kynn- ast manninum Kjarval fékk hann aðeins að kynnast grímunni. Eftir leikinn var Kjarval örmagna og leitaði einveru. Hann hafði ekki lengur lífsorku til að leika og lík- lega hefur hann ævinlega þurft langan tíma til að jafna sig eftir leiki sína. Þörfin fyrir einveru hefur því ekki verið sérviska, ein- ræna, heldur lífsnauðsyn. I huga hans fór fram stöðug tæming og fylling. Ég fann þess vegna oft sárt til með honum, hvað hann var sár. Kynni okkar hófust þannig að ég skipti mér ekkert af honum, hafði hreinlega engan áhuga á honum, sá í gegnum hann, þekkti eðli hans. Það þoldi hann ekki og þá leitaði hann til mín. En ætlun mín er ekki að segja frá Kjarval. Sýningin sem nú er á Kjarvalsstöðum er einhver merk- asta sýning sem haldin hefur verið á verkum hans, slíkt er jafnvægið innan hennar, skilningur á list. Við að sjá sýninguna dettur áhorfandanum í hug að kannski sé tími til kominn að nálgast verk Kjarvals sem listaverk. Það er með Kjarval eins og íslensku þjóðina. Við fjöllum eða höfum tilhneigingu til að fjalla um þjóð okkar og okkur sjálf eins og um trúarbrögð væri að ræða en ekki þjóðfélagslegt, landfræðilegt og hagfræðilegt fyrirbrigði, það er að segja eðlilegan hlut sem verður að vera í sífelldri athugun og endurskoðun. Eins er gjarna rætt um list Kjarvals sem goðsöguleg atriði. En Kjarval var engin guða- vera og hann var ekki talinn vera það, að minnsta kosti ekki meðan hann gekk milli húsa í Skerjafirð- inum og seldi eða reyndi að selja málverk sín, líkur farandsala og bróðir hans lék á fiðlu til að laða að kaupendur. En þeir löðuðu fremur að sér strákalýðinn og voru hraktir burt með grjótkasti. Og grjótkastið sat eftir í sál hans á nóttunni fremur en hrós. Kannski þess vegna geymdi hann ævinlega lyklana að Kjarvalshúsinu í vasanum, til þess að enginn kæmist inn í það. Hann naut þess að húsið væri tómt og hann færi aldrei í það, líkt og hann væri maður haldinn kvala- losta. Honum hefði líkað það vel að núna er húsið skóli fyrir van- gefna. Oft sagði hann: Fyrr gef ég húsið fávitum en ég fari í það sjálfur. Hann vissi að hús hans yrði brátt dauðans hús. Sýningin er undurgott sam- bland af Kjarval, nema það vant- ar í hana verstu hliðarnar. Bland- að er saman teikningum og mál- verkum frá hinum ýmsu tímabil- um, svo útkoman verður hinn blíði og látlausi Kjarval, maður hinnar hárfínu Ijóðrænu taugar sem hafði hemil á þörf sinni fyrir að skreyta. Leikur hans (en leikur er ætíð skraut hversdagsleikans) í návist annarra var að sjálfsögðu ekki sprottinn af engu. í dráttum pensilsins er talsverður leikur, talsvert flúr og jafnvel sláttur eða fyrirsláttur. Vegna skorts á þeirri tamningu sem víð þekking og hugsun veitir gaf Kjarval sig allan i hverju málverki. Hann gaf sig stundum af of miklu taumleysi, mér liggur við að segja af of mikl- um samfarakrafti. Kynferðislegri bælingu sinni veitti hann úr túbunum beint á óspjallað léreft- ið. Hann hefur auðsæilega notið þess að kreista litinn úr túbunum. Og þörfin fyrir að kreista er stundum eins og glerþil milli lista- mannsins og annarra manna. Af þeim sökum á hann í rauninni ekkert annað en list sína til að vera við í ástarleikjum sínum. Frumdrættir í Hallgrímskirkju Fátt er jafn fróðlegt og athyglis- vert og það að fá að skyggnast inn í það hvernig verk verða til, sjá að- draganda þeirra, að minnsta kosti þann sem sýnilegur er og hægt er að tjá í orðum eða Iínum, það sem við köllum frumdrætti. Lítið er um að listamenn Ieyfi hinum almenna áhugamanni um listir að sjá frumdrætti verka sinna. Sumir eru feimnir við slíkt, telja frumdrættina vera einkamál sitt, og til eru þeir listamenn sem óttast að með slíkum sýningum sé hulunni svipt af leyndardómi sköpunarinnar, enn aðrir vilja láta líta svo út sem listaverkið komi fullskapað úr höfði lista- mannsins, án fums, hiks eða fálms. En allt á aðdraganda sem verður að lúta endalausum breyt- ingum, og breytingarnar eru jafn áhugaverðar eða áhugaverðari en lokastigið. Leifur Breiðfjörð sýnir sökum örlætis síns og öryggis frumdrög sem hann hefur gert við gerð ýmissa glugga, og sýningin á þeim er í anddyri Hallgrímskirkju á blessuðum vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt hefur verið gert hérlendis en er algengt erlendis. Þegar komið er inn í Picassosafnið í Barcelona er þar sægur af teikningum lista- mannsins, pári og öðru sem lista- menn gera sér til dundurs, mynd- listarmennirnir; og líkist þetta vangaveltum rithöfundanna og ljóðskáldanna. Að fara í gegnum párið er þreytandi fyrir viðvaning- inn en auðgandi fyrir listvininn og nauðsynlegt fyrir fræðimanninn, en óskiljanlegt öllum öðrum. Eins og segir í sýningarská sem fylgir sýningunni er Arkiv safnið í Lundi á þessu sérsviði frum- drátta og þar eru mörg íslensk verk eða frumdrög, og reyndar héldu ráðamenn safnsins sýningu ættaða frá Finnlandi með verkum okkar sumra sem vorum í SÚM, hina fórðlegustu sýningu fyrir nokkrum árum, og gafst mér þá kostur á að skoða eigur safnsins. Að Kjarvalsstöðum er vísir að svipaðri ,,innsýn“ í heim Kjarvals og er það þakkarvert framtak að leyfa listvininum að hverfa á bak við þil og skoða ljósmyndir af öðrum verkum en eru á sýningun- um. Það auðgar á sama hátt og allur samanburður. Á síðustu öldum hefur ekki komið fram neitt nýtt viðhorf til birtunnar. Gluggar og rúður eru til þess að hleypa birtu inn í híbýli' manna. Menn og lífið nærast að mestu á birtu og yl og best fer ef birta og ylur fara saman, bæði hin mannlega hlýja og innra ljós mannsins sem hann veitir öðrum. Hlutverk kirkjunnar var slíkt hið sama, það að veita trúuðum birtu og hlýju, skjól og húsnæði, áður en þeir hurfu endanlega í hús guðs, þar sem herbergin eru sögð vera mörg og engin húsnæðis- vandræði þar. Öryggi guðs er öryggi hússins. Ef guðstrúin er einlæg þá er hún leynd vissunnar, og til að auka hana eru kirkjugluggar jafn- an litaðir. Það sama eða svipað er að segja um inngang í hús: for- stofugluggarnir eða gluggarnir í útidyrunum eru tíðum með lituðu gleri, og í hinu litaða hálfrökkri er gestinum fagnað. Forstofur eða skúrar voru þannig hér „í gamla daga“. Ég veit ekkert um kenningar, hugmyndir eða viðhorf Leifs um ljósið, annað en það sem hægt er að ráða af því hvernig glerið er skorið og litað. En að lesa viðhorf á glerblöðum er erfitt og ég fjalla því hér fremur um formgerð verk- anna en hvernig litunum er raðað og hvað hægt sé að lesa úr þeirri ljóssins bók sem glugginn er. Gluggar með steindu gleri eru andstæður glugga með rúðu, vegna þess að rúður í gluggum eiga að vera heilar en í hinum gluggunum brotnar. Sá munur er reyndar ævinlega á iðnaði og list: listin brýtur og myndar nýjá heild úr brotunum; án eyðileggingar væri engin list til. í brotunum er viðhorf gluggagerðarmannsins til gíuggans, glersins, birtunnar, brotanna. Glugginn er brotin heild. Vegna brotanna er glugginn á hreyfingu. Óbrotinn gluggi er hreyfingarlaus. Leifur Breiðfjörð leikur sér að samblandi af lauffalli og glerbrot- um í gluggum sínum. Á svipaðan hátt og í rokokostílnum er þyngdarpunktur gluggans gjarna fyrir utan miðjuna. Þetta á eink- um við í hinum „veraldlegri“ verkum, ef hann hefur ekki að handleiðslu glerungslist ættaða frá Limoge, þar sem hann gengur út frá doppunni. Eitthvert athyglisverðasta verk- ið á sýningunni er Píslargangan. Hún er sambland af píslargöngu og bardaga. Hún leitar öll upp á við í odd (spjótsins og mænisins). Líkt og á mörgum málverkum er Kristur í miklu prikahafi (líkt og hjá Titian) og það er þessi skír- sicotun til málverka, skírskotun sem er á mörkum meðvitundar og hins ómeðvitaða sem gerir listina svo heillandi og forðar henni frá eftirlíkingu. Kristur er falinn í prikahafinu. Það er erfitt að finna hann öðruvísi en tákn. Tákn hans eru nokkrir þríhyrningar, örlitlir, tákn þyrnikórónunnar, og svo prik hans, krossinn með þver- priki. En krossar hermannanna eru engu minni, vopnin sem þeir bera; og það er í þessum samruna hins pínda og þess sem pínir sem við- horf listamannsins kemur svo greinilega fram, í annars óljósri mynd af rísandi flugi. Og þegar öllu er á botninn hvolft er þarna kjarninn: Hvor líður meiri píslir, hinn kvaldi eða sá sem kvelur? Hvort er mann- kyninu meiri kvöl að kvelja eða vera kvalið? Valdamenn heimsins ættu að spyrja sig þeirrar spurningar áður en þeir þvo hendur sínar á ný. Gleðiboðskapur Garners Erroll Garner; GEMS (CBS 21062) Dreifing: Steinar Erroll Garner: GEMINI (MPS 68.054) Dreifing: Fálkinn. Það eru sex ár liðin frá dauða Errolls Garner. Sex ár síðan þessi brosmildi snillingur yfirgaf lífs- stjörnuna. Samt er hann hér enn á hundruðum hljóðritana sem munu hljóma svo lengi sem ein-' hver kann að meta sterka sveiflu. Fáir hafa náð slíkum meistaratök- um á galdri sveiflunnar. Einn við flygilinn gat hann tryllt á við heilt Basieband og stundum hélt hann okkur Iengi í heljargreipum: skyldi vinstri höndin aldrei ætla að marka taktslagið? Þegar það féll — hárnákvæmt — var önd- inni varpað feginsamlega. Þarna og hvergi annars staðar átti það heima. Garner gat líka verið ljúf- ur og rómantískur en umfram allt var hann hinn gjöfuli veitandi er töfraði fram hið brosandi tár. Nú má fá endurútgáfur á tveim- ur glæstum Garnerskífum: Gems, sem er í skífuröð CBS: I Love Jazz (áður útgefin undir nafninu The Garner Touch) og Gemini sem gefin er út í upphaflegri mynd. Á Gems má finna tólf ópusa og þar sem upplýsingar um upptöku- ár eru röng á umslagi nefni ég hér rétta upptökudaga: Laura, Indi- ana, I’m in The Mood for Love, The Way You Look Tonight, Pent- house Serenade, Play Piano Play, Body And Soul og I Cover The Waterfront eru hljóðrituð 11.1. 1951. Lady Be Good 2.7. 1951 og Frenesi, Mean to Me og Easy to Love 30.3. 1953. Upphaflega voru þessir ópusar gefnir út á 78 snúninga Columbia plötum og kynntist ég þeim ungur á Sámsstöðum Klemenzar korn- bónda. Það var að vísu ekki Klemenz sem var forfallinn Garn- eraðdáandi heldur uppeldissonur hans, Þórir Guðmundsson, sem enn er djassgeggjari mikill. í plötustaflanum í stofunni þar sem grammófónninn stóð skipaði ImKirL Gáiiírcí CeMiWi Garner heiðurssess. Enn man ég hversu rýþmagaldurinn í Pent- house Serenade heltók mig svo ráðlegast var að kæla sig niður, snúa plötunni við og hlusta á tónaregnið rómantíska í Laura. Enn töfra þessir ópusar mann sem fyrrum og ekki síður hin svellandi sveifla í Indiana eða Play Piano Play, sem er eini frumsamdi ópus- inn á Gems. Þarna eru mörg klassísk verk í snilldar túlkun Garners og svo var Garner öllum öðrum djassleikurum fremri að umbreyta lagskrípum eins og Frenesi í tæran djass og er slíkt aðeins á valdi hinna miklu snill- inga. Nú er upplagt tækifæri fyrir þá sem eru búnir að brjóta og týna gömlu 78snúninga skífunum að endurnýja kynnin við Garner upp úr fimmtíu. Gemini er ein af heilsteyptustu skífum Garners frá síðari árum hans. Þó stíll hans hafi frá upp- hafi verið svo einstakur, að enginn gat eftir honum líkt utan það hljómaði sem innantóm .eftiröp- un, breyttist hann nokkuð í tím- ans rás. Hinir makalausu forleikir hans urðu flóknari og lengri, spennan í sveiflunni enn voldugri og ballöðutilfinningin næmari. Hápunkti náði Garner líklega þegar hann hljóðritaði Concert by The Sea en margt frá seinustu árum hans nálgast þá fullkomn- un. Kongótrommarinn Jose Mangual veitti ferskum straum- um í tríóið og var unaðslegt að skynja hið nána samband þeirra. Gemini hefst á sterkri sveiflu, How High The Moon, og lýkur á Ijúfri ballöðu, These Foolish Things, þar sem sveiflualdan er þó sterk. Þar á milli má heyra tvo frumsamda ópusa: Gemini og Eldorado, blússömbur, svo leikur hann Tea for Two djarflega og bregður á semballeik. Hann leik- ur einnig á sembal ásamt flygli í When A Gipsy Makes His Violin Cry og fer á kostum í sígaunaróm- antíkinni. Það eru líka tvær aðrar ljúfar ballöður á skífunni; Some- thing eftir George Harrisson hljómar eins og djassklassík og It Could Happen To You fær á sig gospelblæ. Það er alltaf gaman að láta sér líða vel og engan veit ég jafnslyng- an Garner að töfra mig úr gráum hversdagsleika á broslendur sveiflunnar.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.