Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 20.10.1983, Qupperneq 13

Helgarpósturinn - 20.10.1983, Qupperneq 13
] verði við vandamálum ríkja þriðja heimsins áður en þau verða gjaldþrota og fólkið þar hungurmorða". — Hvernig gengur bindismálið? „Bindismálið, já. Þetta er nú ekki stórmál, en jú, það er komin lausn á því, eða áfangi að lausn. Hæstvirtur forseti neðri deildar Al- þingis, Ingvar Gíslason, hefur lýst yfir að ég þurfi ekki að vera í jakkafötum og með bindi á deildarfundum. Hann færir þau rök fyrir þessu, að á sama hátt og menn gátu aflagt kjólföt og pípuhatt sem vinnuklæðnað á Al- þingi hljóti menn líka að geta aflagt dökk jakkaföt og hálsbindi. Mér finnst að menn ættu að geta klæðst þeim vinnufatnaði sem þeim líður vel í og mér hafa alltaf þótt jakka- föt heldur óþægilegur vinnuklæðnaður. En mér finnst sjálfsagt að taka eðlilegt tillit til hefða í klæðaburði í þinginu og sjálfsagt set ég upp bindi ef öðrum þingmönnum fer bein- línis að líða illa við það að sjá mig bindislaus- an. Ég er á móti því að fólk sé dæmt eftir klæðaburði. í mínu tilviki er það gamla goð- sögnin um róttæka byltingarsinnan sem geng- ur aftur í þessu máli, og ég hafna svona grein- ingu. Þetta er sama vitleysan og á skemmti- stöðunum þar sem þeir sem bregða út frá venju i klæðaburði eru veiddir úr við útidyrn- ar vegna þess að þeir þykja líklegastir til ó- skemmtilegra uppátækja. Þetta rekur sig allt aftur til þess tíma þegar stéttaskiptingin var undirstrikuð í klæðaburði". — Hvernig leggst líf stjórnmáiamannsins í þig? „Það leggst vel í mig. Það á mjög vel við mig að ferðast um kjördæmið og spjalla við fólk um framfaramál — hitta hugmyndaríkt og framtakssamt fólk. Langar fundasetur eiga kannski verr við mig. Ég er að vissu leyti kvíðinn pólitísku karpi og því umtali og sögu- gangi sem fylgir starfinu. Maður kvíðir því líka nokkuð að fá e.t.v. ekki að eiga sitt einka- líf í friði, en fjölskyldan styður við bakið á manni. Ég er heppinn. Frændfólk mitt et mjög frændrækið. Við verðum að halda stóru fjölskyldunni saman“. — Finnur þú fyrir vöidunum í stöðu þinni sem þingmaður? „Maður gerir sér grein fyrir ábyrgðinni. Maður finnur að maður er með hluti í hönd- unum sem geta skipt fjölda fólks miklu máli. Það væri líklega marklítill stjórnmálamaður sem fyndi ekki til þessarar ábyrgðar. Maður veit að oft er verið að taka stórar og afdrifa- ríkar ákvarðanir á stuttum tíma, t.d. í stjórn- armyndunarviðræðum, og það fylgja þessu kvíði og áhyggjur af því hvort maður er að gera rétt, fara rétt með umboð sitt. En ég finn ekki til þess, að ég fái neina sérstaka ánægju út úr því að hafa þessa hluti að einhverju leyti í hendi mér. Ég spennist ekkert upp við þessi völd“. — Hver verða helstu baráttumál þín á þingi, að frátöldum umhverfis- og afvopnun- armálum og noröur-suður umræðunni? „Það hefur lengi verið mér áhugamál að eyða þeim ríg sem kynt er undir öllum stund- um milli landsbyggðarinnar og höfuðborgar- svæðisins. Hér eru á ferðinni hættulegar ein- faldanir. Hvor þarf á hinum að halda, borgar- búinn og landsbyggðarmaðurinn. Undirrótin að þessum ríg held ég að sé einfaldlega fá- fræði. Menn sem kynda undir þessu bera mikla ábyrgð, t.d. sumir ritstjórar blaða. Ef ég gæti þröngvað einhverri skynsemisglætu inn í þennan myrkvið, þá teldi ég mig ekki hafa set- ið á Alþingi til einskis. Það er til dæmis um- hugsunarefni að nú orðið eru margir farnir að trúa því að framleiðsluatvinnuvegirnir, sér- staklega landbúnaður og líka sjávarútvegur, séu orðnir baggi á þjóðinni. Hér er illt í efni. Menn halda t.d. sumir að ég sé eitthvað skrít- inn þegar ég held því fram að það þurfi að endurnýja fiskiskipaflotann! Það hefur ekki öll fjárfesting i sjávarútvegi verið óþörf, þótt sumt af henni hafi verið það. Ef ekki má Viðiai: HalKjrímur Thorsleinsson Mynd: Jim Smart byggja ný fiskiskip hjá fiskveiðiþjóð, þá er illa farið. Það er á ferðinni vaxandi tilhneiging til að skipta þjóðinni upp á bagalegan og hættuleg- an máta. Það þarf að vinna skipulega gegn þessu og það er ástæða til að auka verulega kennslu í grundvallarsannindum um íslensk- an þjóðarbúskap. Það er alltaf verið að tala um tap í sjávarút- vegi en aldrei það fjármagn sem fært er til í þjóðfélaginu frá sjávarútveginum. Hvað ef sjávarútvegurinn nyti alls afrakstursins sjálf- ur? Hvar ætti þá að taka peninga fyrir inn- flutningi? Verða þeir til af engu? Hvaðan urðu peningar t.d. til í Seðlabankahöllina; bjó Jóhannes Nordal þá til? Ég segi nei“. — En hefurðu yfirsýn yfir efnahagslífið, sérðu í hendi þér hvernig þetta virkar allt? „Góður hugmyndafræðingur, vinur minn að norðan, notar gjarna einfalda greiningar- aðferð í efnahagsmálum. Hann lítur á þjóðar- búið sem fyrirtæki, skoðar hverja deild fyrir sig. Hann skoðar framleiðsludeildina, og þar má greinilega bæta skipulagið. Svo er það markaðsdeildin — jú, jú, þar mætti líka bæta ýmislegt. Þá er það innkaupadeildin; þar finnst honum fjandans mikil umsetning og ansi margir starfsmenn í vinnu — hjá ekki stærra fyrirtæki. Og menn verða svolítið hissa í þessu fyrirtæki á beiðni frá innkaupadeild- inni um að byggja nýtt 30.000 fermetra hús undir starfsemina. Það er dálítið uggvænlegt finnst manni ef þetta er talið brýnast, eins og staðan er núna hjá fyrirtækinu. Væri ekki sniðugra að framleiðsludeildin fengi fjár- magnið? Stórgrósserarnir leggja ekki lengur áhættu- fé í útgerð. Peningarnir leita þangað sem á- hættan er minnst og afraksturinn mestur. Þetta er spurning um hvaða óskráð lög eigi að gilda, gróðahyggjan eða mannleg sjónarmið. Mér finnst verið að boða komu nýs Guðs og að Mammoni sé nú sungið meira lof og meiri dýrð en hér hefur áður þekkst". — Er stefna núverandi rikisstjórnar svipuð því sem þú bjóst við af samstarfi þessara flokka? „Já, svipuð og verri. Ég átti von á skelfing- um í herstöðvarmálinu og í álmálinu, en ég átti satt að segja ekki von á eins skelfilegri harðskeytni í garð launþega og afnám samn- ingsréttarins er. Ég hef líklega verið óþarflega bláeygur — íhaldsstjórnir hafa jafnan komist upp með ýmislegt. Fyrir hvert 1% sem Marga- ret Thatcher kom verðbólgu niður jókst at- vinnuleysi um 2% og af þessu hældi hún sér. Veturinn verður þessari ríkisstjórn þungur í skauti, eins og þjóðinni allri. Öll ytri skilyrði eru erfið. Þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru eins og görótt lyf. Ég er hræddur um að sjúklingurinn ráði ekki við aukaverkanirnar. Þær eru svo hastarlegar. Ég held að margir sakni nú vinar í stað, þegar Alþýðubandalagið er horfið úr stjórn; það hélt uppi varnarbar- áttu í launamálum“. — Hvernig leggst þessi fyrsti vetur þinn á þingi í þig? „Bara vel. Ég hef tröllatrú á jákvæðri af- stöðu. Það er ekkert sem hjálpar manni meira. Ég tek heilshugar undir það sem forset- inn hafði um það mál að segja við þingsetn- inguna, að það ætti ekki að draga kjárk úr fólki. Ég vil sjá verkin ganga. Ég er uppalinn í erfiðismannastétt, hjá fólki sem hefur haft mikið fyrir hlutunum og notið verkalaunanna ríkulega. Þetta er eins og í íþróttum. Maður leggur mikið á sig og hefur ánægju af. Ég hef verið keppnismaður í blaki í 1. deild með Í.S. undanfarna vetur og ég reyni að gutla eitthvað með í vetur til að halda skrokknum við og hressa upp á sálina. Það er ekkert jafn gott og hressileg æfing og gott bað eftir fundahöld. Það má skemmta sér við þá hugmynd, að al- þingismenn tækju sig saman um það í vetur að skokka svo sem eins og tvo hringi í kring- um Tjörnina nokkrum sinnum í viku. Það eru, veit ég, antisportistar á meðal þing- manna, en ég er viss um að þó nokkrir myndu hafa hug á þessu. Samstarfið yrði örugglega betra í þinginu og virðing Alþingis myndi stóraukast".

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.