Helgarpósturinn - 20.10.1983, Qupperneq 24
24
mánuði. Leiðindunum ollu for-
maður og gjaldkeri stjórnarinnar
sem fór frá. Þau höfðu dregið sér fé
úr sjóði FSS á tímabilinu maí 1982
til maí 1983, samtals um 160.000
krónur. Formaðurjnn tók ívið
meira en gjaldkerinn. Hann er ná-
kominn ættingi Halldórs V.
Sigurðssonar ríkisendurskoðanda,
starfaði hjá Ríkisendurskoðun, en
lét þar af störfum í byrjun septem-
ber í haust. Meðstjórnendur for-
mannsins og gjaldkerans fór að
gruna að ekki væri allt með felldu
síðla vetrar, þegar aðalfundi hafði
ítrekað verið frestað. Við athugun á
fjárreiðum FSS um mánaðamótin
maí-júní kom hið sanna í ljós og
málið fór til endurskoðanda. í ljós
kom að formaðurinn og gjaldker-
inn höfðu dregið sér féð í frekar
smáum skömmtum, og að þau voru
þegar farin að endurgreiða þessi
„lán“ sem þau höfðu tekið. Á aðal-
fundi FSS 6. september féllst félags-
fólk á þau málalok að formaðurinn
og gjaldkerinn endurgreiddu
peningana með fullum vöxtum og
að ný stjórn yrði kosin. Frekar var
ekki aðhafst í málinu, þó að raddir
væru uppi um málsókn. Félagar í
FSS eru um 230 og í því eru þeir
starfsmenn ráðuneytanna sem ekki
eru í Bandalagi háskólamanna...
íslenska söngkonan Janis
Carol er núna að verða
ein helsta stjarnan á söng-
leikjahimninum í London, þar sem
hún hefur búið undanfarin ár.
Janis, sem ytra heitir Carol Niels-
son, hefur nú tekið við aðalhlut-
verkinu í nýjasta söngleik Andrew
Lloyd Webber (Jesus Christ
Superstar, Evita, Cats) sem sýnt er
í Palace Theatre í West End. Aðal-
hlutverkið í sýningunni, sem heitir
Song an'd Dance, var í höndum
poppsöngkonunnar frægu Lulu en
þegar hún hætti var Janis boðið
hlutverkið sem hún hafði reyndar
æft sem varamaður á sínum tíma.
Þetta hlutverk er afar erfitt. Janis er
á sviðinu í klukkutíma samfellt,
syngur 23 númer og dansar auk
þess í síðari hluta sýningarinnar.
Þetta er vafalítið einhver mesti
árangur íslensks listamanns á þessu
sviðið erlendis...
Eysteins Helga-
/'J sonar af toppnum hjá
Samvinnuferðum—Landsýn,
sem hann hefur gert að annarri
stærstu ferðaskrifstofu landsins, og
til Iceland Seafood í Bandaríkjun-
um, er liður í frekari hreyfingum
milli toppanna hjá Sambandi
íslenskra samvinnufélaga.
Eysteinn verður aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Guðjóns B. Ólafs-
sonar og mun síðan taka við af hon-
um, en Guðjón þá flytjast heim og
fara inn í einhverja af toppstöðun-
um hjá SÍS hér. Þar er þess ekki
langt að bíða að Erlendur Einars-
son, forstjóri Sambandsins, láti af
störfum, eða u.þ.b. tvö ár, og er
talað um Sigurð Markússon for-
stjóra sjávarafurðadeildarinnar
sem arftaka hans. Þannig eru
valdatilfærslur undirbúnar með
hægðinni hjá SíS...
í ferðabransanum eru annars
talsverðar hræringar á
toppum um þessar mundir..
Nú mun sem næst afráðið að Steinn
Lárusson, sem verið hefur forstjóri
Úrvals í mörg ár, hætti að eigin ósk
og taki við starfi sölustjóra á skrif-
stofu Flugleiða í Ósló, en Flugleiðir
eiga Úrval á móti Eimskip. Við
stöðu Steins mun trúlega taka Karl
Sigurhjartarson, sem verið hefur
sölustjóri markaðsdeildar Flug-
leiða...
Vinnufélagar hjálpa gjarnan
f i hver öðrum í peningahallær-
inu á þessum síðustu og
verstu kjaraskerðingartímum. Það
er fallega gert að lána vinnufélag-
anum sem er í vandræðum. En það
er ljótt að fá lán hjá vinnufélagan-
um án þess að láta hann vita af því.
Leiðindamál af þessu tagi kom upp
í sumar hjá Félagi starfsmanna
stjórnarráðsins, og endaði með því
að skipt var um stjórn í félaginu á
framhaldsaðalfundi í síðasta
Skipulagsbreytingar standa
f' I nú yfir á geðdeild Landspítal-
ans, sem mun vera mikil og
vaxandi stofnun. Ætlunin mun vera
að skipta stöðu Lárusar Helga-
sonar, sem hefur verið höfuð geð-
deildarinnar, í tvennt. Þetta teljast
víst vera skipulagsbreytingar innan
deildarinnar og því var nýja staðan
ekki auglýst opinberlega. Fjórir
sóttust eftir stöðunni og þóttu tveir
þeirra koma helst til álita, Högni
Óskarsson og Jón G. Stcfánsson. í
læknaráði Landspítalans varð
Högni hlutskarpari, fékk 11
atkvæði, en Jón 3. Það sama varð
uppi á teningnum í stjórnarnefnd
Ríkisspítalanna; þar fékk Högni 3
atkvæði en Jón 2. Ekki vilja þó ailir
sætta sig við þessi málalok. Tómas
Helgascn, prófessor í geðlækning-
um við Háskólann og yfirlæknir á
Kleppsspítala, þykir mjög aðsóps-
mikill maður og ekki mikið um það
gefið að teknar séu stórákvarðanir í
geðheilbrigðismálum án samráðs
við sig. Tómasi mun mjög umhug-
að um að Jón G. Stefánsson fái yfir-
læknisstöðuna og er talið að stuðn-
ingur hans getið orðið þungur á
metunum. Þess má geta að Tómas
Helgason er bróðir Ragnhildar
Helgadóttur menntamálaráðherra,
en stöðuveitingin mun nú komin í
hendur flokksbróður hennar, Matt-
híasar Bjarnasonar heilbrigðisráð-
herra.
Síðustu fréttir herma að ráðherra
hafi gert upp hug sinn; Jón G.
Stefánsson fái stöðuna...
Fimmtudagur 27. október 1983
-f-
urinn
Heimildir í Sjálfstæðis
1 flokknum herma að Friðrik
'S' Sophusson sæki nú talsvert á
í slagnum um formannsembættið.
Allir frambjóðendurnir og stuðn-
ingsmenn þeirra eru með símasmöl-
un í gangi eins og við höfum áður
sagt frá. Einn þeirra, Þorsteinn
Pálsson, hefur sett upp formlegan
kontór undir stjórn Friðriks
Friðrikssonar og heyrum við að
fyrirtækið Frjálst framtak hafi
lánað húsnæði og ótakmörkuð
símaafnot fyrir þessa starfsemi
fram að landsfundinum. Barátta
hinna tveggja, Friðriks og Birgis ísl.
Gunnarssonar, mun hins vegar fara
fram í heimahúsum...
v ^ Aðrar heimildir innan Sjálf
f / stæðisflokksins telja að
Birgir ísleifur Gunnarsson
hafi saxað mjög á forskot Þorsteins
Pálssonar í formannskapphlaup-
inu, en Friðrik dregist heldur aftur
úr. Þessar heimildir telja Birgi Isleif
jafnvel sigurstranglegastan á lands-
fundinum með Davíð Oddsson sér
við hiið sem varaformanns-
kandídat. Meiningin með þessari
uppstillingu mun vera sú að Birgir
ísleifurgegni formannsembættinu
tvö kjörtímabil, en víki þá fyrir
Davíð, sem þá hafi unnið til tignar-
innar með því að vinna Reykja-
víkurborg á ný. Mikil vinna er nú
sögð vera lögð í framboð Birgis
Isleifs. Hann á enn hönk upp í bak-
ið á mörgum sjálfstæðismönnum í
Reykjavík frá borgarstjóratíð sinni.
Nú er komið að skuldadögum og
Birgir ísleifur er að innkalla gömul
loforð...
Nú bjóðum við þak og veggklæðningar úr stáli með inn-
brenndum litum, hvítt, brúnt, rautt, grátt blátt og svart.
Plöturnar eru 1.07 m á breidd. Lengd að óskum kaupanda allt að 10 m
klæðningarbreidd er 1 m.
Klæðningsstálið er auðvelt í uppsetningu og hefur viðurkennda yfir-
borðsáferð. Við afgreiðum alla fylgihluti t.d. við glugga, hurðir, horn, enda-
samskeyti og kyli á þök.
Afgreiðum pantanir á 2 dögum.
Verðið er með því ódýrasta sem þekkist á þessu sviði.
Leitið nánari upplýsinga í síma 33331.
BYGGINGAVOKUR HF
SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.