Helgarpósturinn - 05.01.1984, Blaðsíða 9
sveit Gunnars Þórðarsonar sem
leikur á Broadway á von á góðum
liðsauka eftir áramót; sjálfum -
Björgvin Halldórssyni söngvara.
Bjöggi hefur verið á mála hjá bóka-
klúbbnum Veröld við gerð hljóm-
piötu Kristjáns Jóhannssonar
söngvara, og sér nú um dreifingu
hennar. Bjöggi hefur einnig átt ann-
ríkt við að syngja inn á útvarps- og
sjónvarpsauglýsingar fyrir jólin. En
eftir áramót bíður sem sagt sviðið á
Broadway...
ftl
■ ■ rafn Gunnlaugsson er nú
að leggja síðustu hönd á kvikmynd
sína „Hrafninn flýgur." Hefur Hrafn
unnið lokavinnsluna í Svíþjóð. Með-
al þeirra sem hafa skoðað myndina
í klippiborði er fulltrúi frá kvik-
myndahátíðarnefnd Berlínar en sú
kvikmyndahátíð er haldin árlega og
er ein hæst metna samkeppni í
heimi. Fulltrúinn var svo hrifinn af
mynd Hrafns að hann hefur fullan
hug á að koma myndinni í úrslitin
eða alla vega halda sérstaka hátíð-
arsýningu á myndinni. Kvikmyndin
verður frumsýnd í byrjun febrúar á
íslandi og mun verða opnunarkvik-
mynd Kvikmyndahátíðar...
fldj
■ «1 ú hefur Brynjóflur
Bjarnason tekið við Bæjarútgerð
Reykjavíkur af gömlu forstjórunum
tveimur Einari Sveinssyni og -
Björgvin Guðmundssyni.
Björgvin mun vera að svipast um
eftir góðu starfi, en við heyrum að
Einar sé kominn á fulla ferð við að
koma Þormóði ramma á Siglufirði á
réttan kjöl. Hann er einn þriggja
fulltrúa fjármálaráðuneytisins í
nokkurs konar fjárhaldsnefnd sem
á að taka þar á málum, en hann
mun nú helga sig því starfi að mestu
og er sagt að hann kunni jafnvel að
taka við framkvæmdastjórastarfi
við Þormóð ramma. Þá mun Sæ-
mundur Arelíusson, sem verið
hefur framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins, taka við sama starfi hjá Siglósíld
sem selt hefur verið nýju hlutafé-
lagi....
^^Sinsog menn muna varð mikið
ósætti milli Stefáns Valgeirsson-
ar alþingismanns og forystu Fram-
sóknarflokksins þegar hann hlaut
ekki stuðning hennar í stöðu banka-
stjóra Búnaðarbankans, og mætti
Stefán ekki á þingflokksfundi um
nokkurra vikna skeið. Stefán mun
hafa hugsað sinn gang nú yfir hátíð-
arnar og hefur heyrst að hann íhugi
enn að ganga ekki til liðs við þing-
flokkinn á ný eftir að þing kemur
saman. Hins vegar hafa stuðnings-
menn Stefáns í Norðurlandskjör-
dæmi eystra lagt mjög fast að hon-
um undanfarið að sættast við
flokksforystuna, því ella yrði hann
einangraður og áhrifalaus, en
Stefán hefur verið mjög virkur fyrir-
greiðsluþingmaður fyrir sitt kjör-
dæmi, sveitarfélög, bændur og
trillukarla...
s
^^æviptingar hafa orðið innan
fyrirtækjanna Herrahússins,
Adams og saumastofu Sportvers
sem rekin eru af sama hlutafélagi.
Þorvarður Árnason (bróðir
Tómasar kommisars) og fleiri hlut-
hafar hafa keypt út Björn Guö-
mundsson, sem hefur verið fram-
kvæmdastjóri fyrirtækjanna og stór
hluthafi, í því augnamiði m.a. að
selja saumastofuna sem Björn vildi
aftur á móti að rekin yrði áfram...
s
kunnugt er urðu for-
mannaskipti í stjórn SÁÁ á dög-
unum er Hendrik Berndsen tók
við af Björgólfi Gudmundssyni. -
Nú er ljóst að einnig verða fram-
kvæmdastjóraskipti hjá' samtökun-
um á árinu. Vilhjáimur Þ. Vil-
hjálmsson sem gegnt hefur starf-
inu undanfarin ár tilkynnti á aðal-
fundi fyrir viku að hann hefði í
hyggju að hætta, og samkomulag
mun hafa orðið um að hann gegni
því fram í júlí. Ekki er vitað um eftir-
mann Vilhjálms, sem mun hins veg-
ar snúa sér að lögfræði- og stjórn-
málastörfum...
V
mW al SAA á dönskum hús-
gögnum í nýju sjúkrastöðina, sem
nú hefur hlotið nafnið Vogur, vakti
deilur á nýliðnu ári. í framhaldi af
því hafa gárungarnir uppnefnt nýju
stöðina Dannevog...
sw sw *w W W /W W W /W /W/W W W-W W
Dansinn er fyrir alla
V /I'
unga
sem aldna.
Dansskóli Heiðars Ást-
valdssonar mun verða
með tíma í eftirtöldum
dönsum í vetur:
Sértímar fyrir eldri borgara.
Einkatímar.
Sértímar í gömlu dönsunum.
Barnaflokkar.
Samkvæmisdansar.
Disco-dansar.
Rock N’Roll.
Innritun og upplýsingar
kl. 13—18.
Símar;
Kennslustaðir —
Reykjavík:
Brautarholt 4,
Drafnarfell 4,
Arsel. ^
Hafnarfjörður:
Gúttó,
Félagsheimili Hjálpar-
sveita skáta.
Seltjarnarnes:
Félagsheimilið.
Garðabær:
Félagsheimili
Garðabæjar.
ÍSTWBIBSSOnWB
Ælonóo
kanadíswr
KULDASKÓR
SEMHALDA
hFR HE'TEM
Áður en flug „Double Eagle 11“ hófst, leituðu
Ben, Maxi og ég að hlýjustu kuldaskóm sem
völ væri á, vegna hins mikla kulda sem við
áttum í vændum.
Ben og Maxi fengu sér snjósleðastígvél ein
mikil. Ég ákvað hinsvegar að vera í V/± árs
gömlu „Blondo“ kuldaskónum mínum.
í fluginu reyndust JBIondo“ skórnir framar
vonum, - hlýir og þægilegir. Núna, 2 árum
eftir að ég keypti þá, geng ég ennþá í sömu
skónum, sem sýnir hvað þeir duga vel.
Þakka ykkur fyrir að framleiða vandaða
vöru.
Larry Newman Flugfari „Double Eagle 11“
ÚTSÖLUSTAÐIR UM ALLT LAND!
Útsalan
stendur yfir
—verhlistiiui
Laugalæk.
HELGARPÓSTURINN 9